Sundkennsla nemenda í Barnaskóla Hjallastefnunnar í Hafnarfirði fer fram á Hrafnistu í vetur. Fulltrúar Hafnarfjarðarbæjar, Hrafnistu og Barnaskólans undirrituðu samkomulag í vikunni þar sem tryggt er að nemendur Barnaskólans geti notað sundlaugina í Hrafnistu í vetur. Á Hrafnistu er að finna kjöraðstæður fyrir börn og kennara að ógleymdu frábæru fólki sem býr þar og starfar […]
Flokkur: Fréttir
Útboð á sérhæfðri akstursþjónustu – hagræðing og skilvirkni
Nærþjónusta sem byggir á trausti og persónulegri þjónustu Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar í dag voru lögð fram til kynningar tilboð sem bárust í útboð um sérhæfða akstursþjónustu í Hafnarfirði sem nær til þjónustu við fatlað fólk og eldri borgara í sveitarfélaginu. Tilboð bárust frá fimm aðilum og er lægsta tilboð 420.623.100.- kr undir kostnaðaráætlun verkefnis […]
Deila sköpun sinni með nærsamfélaginu
Valhópur í myndmennt við Öldutúnsskóla hefur verið að skoða myndlist út frá fleiri hliðum en hinu hefðbundna málverki eða skúlptúr sem finna má í listasöfnum og galleríum um heim allan. Hópurinn hefur verið að vinna með listsköpun sem tengir samfélagið og nærumhverfið. Með því að gefa vinnu sína og deila sköpun sinni með samfélaginu má […]
Fyrstu leigjendurnir flytja inn fyrir jólin
Öllum leiguíbúðum við Hádegisskarð í Skarðshlíð hefur verið úthlutað Rúmlega 120 umsóknir bárust í þær 10 íbúðir sem auglýstar voru lausar til umsóknar við Hádegisskarð í Skarðshlíð. Þessum leiguíbúðunum er ætlað að tryggja tekjulægri einstaklingum og fjölskyldum aðgengi að öruggu húsnæði í langtímaleigu. Opnað var fyrir umsóknir í upphafi október og rann umsóknarfrestur út um […]
Hellnahraun – Rauðhella 2
Skipulags- og byggingarfulltrúi Hafnarfjarðar, samþykkti á fundi sínum þann 6.11. 2019, að grenndarkynna tillögu um breytingu á deiliskipulagi Hellnahrauns 1. áfanga vegna lóðarinnar að Rauðhellu 2 í Hafnarfirði í samræmi við 2. mgr. 43. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í að byggingarreitur er stækkaður og nýrri innkeyrslu á lóðinni norðanverðri er bætt við. Að […]
Afreksíþróttafólk á fullum launum á íþróttamótum
Á haustmánuðum samþykkti bæjarráð Hafnarfjarðarbæjar nýjar reglur um leyfi starfsfólks til þátttöku í íþróttamótum og er stjórnendum heimilt að veita starfsfólki leyfi frá störfum án skerðingar fastra launa til að taka þátt í íþróttamótum. Leyfi þetta takmarkast við leikmenn, fararstjóra og þjálfara vegna þátttöku í Ólympíuleikum, heimsmeistaramótum, Evrópumeistaramótum, Norðurlandamótum og landskeppni. Hafnarfjarðarbær vill með þessari […]
Vatnsleysi vegna viðgerða – hús við Stuðlaberg og Ljósaberg
Vegna viðgerða hjá vatnsveitu má búast við vatnsleysi þriðjudaginn 17. desember í þeim húsum sem eru innan svæðisins á teikningunni hér að neðan. Reiknað er með að lokað verði fyrir vatnið kl 9:00 og að viðgerð verði lokið um kl 13:00. Íbúar eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för […]
Alltaf verið meðvituð um sínar sterku hafnfirsku rætur
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, hefur alltaf verið meðvituð um sínar sterku hafnfirsku rætur þrátt fyrir að hafa búið í Hlíðunum í Reykjavík fyrstu tíu æviárin. Við tíu ára aldurinn flutti hún full eftirvæntingar í norðurbæinn í hús sem foreldrar hennar byggðu sjálf. á þáttinn Í viðtali Vitans við Rósu er víða komið við. Rætt […]
Núvitund í skólastarfi: Meiri samkennd – minni streita
Núvitund innleidd í starf Smáralundar Hafinn er annar vetur verkefnis þar sem innleidd er núvitund í starf leikskólans Smáralundar. Fyrsta árið var eingöngu unnið með starfsfólkið þar sem það fann á eigin skinni hvernig er að nýta sér núvitund í dagsins önn. Að sögn Ingu Fríðu Tryggvadóttur skólastjóra finnur starfsfólk skólans nú þegar að verið […]
Brenna fyrir innleiðingu núvitundar
Veturinn 2017-2018 bauðst Áslandsskóla að taka þátt í rannsóknarverkefni á innleiðingu núvitundar í grunnskólum í samstarfi við Núvitundarsetrið og Embætti landlæknis. Verkefnið var styrkt af Lýðheilsusjóði og markmið þess er að meta árangur innleiðingar núvitundar á líðan, seiglu, almenna stýrifærni (t.d. tilfinningastjórnun og einbeitingu) og núvitundarfærni nemenda og starfsfólks. Bæjarblaðið Hafnfirðingur hitti Kristínu Jónu Magnúsdóttur […]