Ásvallalaug verður takmarkað opin dagana 20. -23. október. Á morgun laugardag verður laugin lokuð allan daginn vegna sundmóts og það til hádegis á sunnudag. Sundlaugin er opin frá kl. 14-17 á sunnudag. Í vetrarfríi grunnskóla Hafnarfjarðar, dagana 22. og 23. október, verður laugin lokuð vegna nauðsynlegra viðhaldsverkefna. Suðurbæjarlaug verður sem fyrr opin um helgina frá […]
Flokkur: Fréttir
Vegna umræðu um mötuneyti í Áslandsskóla
Á fyrsta fundi nýs fræðsluráðs, þann 26. júní 2018, var tekið fyrir bréf frá umboðsmanni barna varðandi mötuneyti Áslandsskóla og það fyrirkomulag að nemendur í mataráskrift matist í öðru rými en nemendur sem koma með nesti að heiman. Fræðslustjóra Hafnarfjarðarbæjar var á fundinum falið að fylgja bréfinu eftir sbr. bókun. Afrit af bréfi var birt […]
Bæjarstjórnarfundur 17.október
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 17.október. Fundurinn hefst kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34. Hér er hægt að sjá dagskrá fundar. Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu
Markvissar aðgerðir gegn hrakandi málþroska
Mikil umræða hefur átt sér stað um að málþroska og orðaforða íslenskra barna sé að hraka og að það hafi síðar áhrif á lesskilning og námsforsendur. Nýtt verkefni hjá Hafnarfjarðarbæ miðar að því að ná til foreldra barna á aldrinum 6-24 mánaða þannig að börnin séu efld í málþroska frá unga aldri og fyrr sé […]
13 verkefni hljóta menningarstyrk
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar hefur nú lokið úthlutun menningarstyrkja ársins 2018. Þrettán verkefni hljóta styrk að þessu sinni; einstaklingar, menningarhópar eða samtök sem eiga öll það sammerkt að tengjast Hafnarfirði með einum eða öðrum hætti. Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar eru afhentir tvisvar sinnum á ári til aðila og verkefna sem líkleg eru til að […]
Endurgerð Kaldárselsvegar
Þessa dagana standa yfir framkvæmdir við endurgerð Kaldárselsvegar frá Sörlatorg að Flóttamannavegi. Fram eftir októbermánuði verður truflun á umferð og lokanir á ákveðnum leiðum á verksvæðinu. Flóttamannavegur og Klettahlíð við Kaldárselsveg verður lokaður frá deginum í dag fram á miðvikudagur. Eftir það verða truflanir á umferð. Vegfarendur eru beðnir að fylgjast vel með merkingum á […]
Hópsöfnun unglinga í miðbæ Hafnarfjarðar
Orð til hafnfirskra foreldra frá Geir Bjarnasyni, íþrótta- og tómstundafulltrúa Í haust hefur borið á því að hópur ungs fólks hafi verið að safnast saman niður í miðbæ til að hanga í og við Fjörð. Þetta hefur verið að gerast eftir að skóla lýkur, um helgar og fram á kvöld. Þessi hópasöfnun getur haft slæmar […]
Fundur með lögreglu
Bæjarstjóri og sviðsstjórar Hafnarfjarðarbæjar fengu á sinn fund í gær stjórnendur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem staðsettir eru í Hafnarfirði m.a. í kjölfar umræðu inn á hverfasíðum Hafnarfjarðarbæjar um innbrot í bíla, grunsamlegar mannaferðir í kringum heimili og boð um þjónustu sem samræmist ekki íslenskum lögum. Á fundi var farið var yfir stöðu mála hér í […]
Hjúkrunarrýmum í Hafnarfirði fjölgar um 33
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur veitt Hafnarfjarðarbæ heimild sem gerir kleift að fjölga hjúkrunarrýmum í bæjarfélaginu um 33 innan tveggja ára. Hjúkrunarrými á Sólvangi í Hafnarfirði verða þar með 93. Ráðherra kynnti Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra ákvörðun sína í Hafnarfirði í dag. Ákvörðunin er liður í stórátaki stjórnvalda um uppbyggingu hjúkrunarrýma sem heilbrigðisráðherra kynnti fyrr á þessu […]
Breytt lega Ásvallabrautar og tengingar við Kaldárselsveg
Niðurstöður bæjarstjórnar samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 Nýtt deiliskipulag fyrir Ásvallabraut Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 14. febrúar tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Ásvallabraut. Tillagan var auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir bárust og hefur þeim sem gerðu athugasemdir verið send umsögn sveitarstjórnar. Hægt er að […]