Sænskur skólastjóri heimsækir Ísland Annelie van Lunteren, skólastjóri í Malmö í Svíþjóð, hélt erindi fyrir íslenska skólastjórnendur og kennara í grunnskólum höfuðborgarsvæðisins síðastliðinn föstudag. Koma Annelie til Íslands er framhald af námsferð íslenskra grunnskólakennara til Svíþjóðar á síðasta skólaári til að kynnast námi, kennslu og aðlögun innflytjenda inn í norræn skólakerfi. Ferðin var styrkt af […]
Flokkur: Fréttir
Skarðshlíð 2.áfangi – endurtekin
Auglýsing vegna skilmálabreytinga deiliskipulags Skarðshlíðar 2. áfanga er endurtekin. Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 26. júní 2018 breytingar, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, á skilmálum deiliskipulags Skarðshlíðar 2. áfanga. Breytingar skilmálanna snúa að gólfkóta einbýlishúss við Hádegisskarð 11 og parhúsa við Hádegisskarð nr. 3-5, 7-9 og 13-15. Vikmörk […]
Bæjarstjórnarfundur 28. nóvember
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 28. nóvember. Formlegur fundur hefst kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34. Hér er hægt að sjá dagskrá fundar. Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu
Jólaævintýrið hefst í Hafnarfirði – tendrun ljósa og jólaþorp
Fyrstu helgina í desember hefjast jólin formlega í Hafnarfirði með opnun Jólaþorpsins og tendrun jólaljósa á Thorsplani. Litlu fagurlega skreyttu jólahúsin í Jólaþorpinu í Hafnarfirði eru orðin landsþekktur söluvettvangur fyrir ýmiskonar gjafavöru, handverk og hönnun sem tilvalið er að setja í jólapakkann ásamt gómsætu ljúfmeti til að borða á staðnum og eða taka með heim […]
Vika íslenskrar tungu í Hvaleyrarskóla
Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur um land allt síðastliðinn föstudag þann 16. nóvember. Í Hvaleyrarskóla, líkt og í öðrum skólum í Hafnarfirði , var Stóra upplestrarkeppnin sett. Læsisteymi skólans ákvað að nýta tækifærið og leggja ríka áherslu á hið fallega íslenska tungumál í eina viku og lauk þeirri viku nú í morgun með samsöng […]
Brenniskarð 1-3
Á fundi Skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar þann 6.11.2018 var samþykkt að auglýsa tillögu að deiliskipulagsbreytingu við lóðina að Brenniskarði 1-3 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í að: bílastæði í kjallara Brenniskarð 1 færist undir hús við Brenniskarð 3 innan sömu lóðar. Fyrirkomulag bílastæða innan lóðar breytist. Jafnframt er […]
Árlegt eldvarnaátak hófst í dag
Árlegt eldvarnaátak slökkviliðsmanna hófst í Lækjarskóla í Hafnarfirði í dag og stendur það fram í byrjun aðventu. Slökkviliðsmenn heimsækja nemendur í 3. bekk grunnskóla um allt land og fræða þá um eldvarnir. Einn slíkur heimsótti nemendur í 3.bekk í Lækjarskóla í dag á upphafsdegi átaksins og spjölluðu þau Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri við börnin um eldvarnir. […]
Mögulegar truflanir á afhendingu neysluvatns vegna viðhalds
Vegna viðhalds á vatnsveitulögn má búast við einhverjum truflunum á afhendingu neysluvatns í Hafnarfirði frá kl. 20:00 miðvikudagskvöldið 21. nóvember, fram eftir morgni og jafnvel degi fimmtudaginn 22.nóvember. Vonir standa til þess að engar truflanir verði á afhendingu vatns en til öryggis er íbúum og fyrirtækjum bent á að passa sérstaklega upp á að skrúfað […]
BRÚIN – Barn | Ráðgjöf | Úrræði
Brúin er ný nálgun í þjónustu við leik- og grunnskólabörn í Hafnarfirði sem unnið hefur verið að síðan í lok árs 2016. Þetta viðamikla verkefni snýr að því að finna leiðir til að bæta þjónustu við leik- og grunnskólabörn bæjarins og fjölskyldur þeirra en undanfarin ár hefur fagfólk og foreldrar lýst yfir áhyggjum af því […]
Ábendingagátt um þjónustu bæjarins – þitt álit takk!
Hvernig hefur þjónusta bæjarins reynst þér? Hafnarfjarðarbær hefur ráðist í verkefni, í samstarfi við Capacent, sem miðar að því að bæta þjónustu og skilvirkni í starfsemi og rekstri sveitarfélagsins. Ráðgjafar Capacent vinna nú að greiningu sem er fyrsta skref verkefnisins. Í því felst meðal annars að fá innsýn í upplifun notenda þjónustunnar, það er bæjarbúa […]