Category: Fréttir

Skapandi tilgangur með tækni

Leikskólar í Hafnarfirði halda Dag leikskólans hátíðlegan m.a. með formlegri opnun og kynningu á nýrri heimasíðu sem hefur að geyma myndbönd og upplýsingar um skapandi verkefni sem leikskólar í Hafnarfirði hafa verið að vinna að á síðustu misserum. Markmið með síðunni er sér í lagi að vekja athygli á skapandi notkun spjaldtölva í skólastarfi.   Hafnarfjarðarbær […]

Miðstöð öldrunarþjónustu

Hafinn er undirbúningur að byggingu nýs sextíu rýma hjúkrunarheimilis á Sólvangsreitnum og eru hugmyndir bæjaryfirvalda í Hafnarfirði á þá leið að tengja bygginguna við Sólvang og nýta Sólvang að hluta sem þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara í sveitarfélaginu. Að auki er gert ráð fyrir að þar verði tuttugu hjúkrunarrými til viðbótar fallist velferðarráðuneyti á tillögur bæjaryfirvalda […]

Fræði og fjölmenning

Uppbygging og þróun íslensks fjölmenningarsamfélags Ráðstefnan Fræði og fjölmenning 2016 fer fram í Háskóla Íslands laugardaginn 6. febrúar frá kl. 10:00-14.30. Ráðstefnunni er ætlað að miðla og byggja upp frekari þekkingu á sviði fjölmenningar. Fjallað verður m.a. um það hvernig íslenskt fræða- og fagsamfélag getur unnið nánar saman að aukinni þekkingu á málaflokknum og hvernig […]

Íbúafundi frestað

Ákveðið hefur verið að fresta opnum fundi um málefni eldri borgara í Hafnarfirði vegna viðvörunar Almannavarna um óveður þegar líður tekur á daginn. Ráðgert er að halda fundinn á sama stað og á sama tíma fimmtudaginn 11. febrúar frá kl. 18:00 – 20:30. Endilega takið daginn frá. Verður auglýst betur þegar nær dregur! __________________________________________ HAFÐU […]

Til hamingju leikskólar!

Dagur leikskólans er í dag og er hann haldinn hátíðlegur um land allt, nú í níunda sinn. Allir þeir sem starfa innan leikskóla landsins eru hvattir til að halda upp á daginn með leikskólabörnunum og nýta hann til þess að kynna opinberlega hið mikilvæga starf sem fram fer í leikskólum landsins.  Heimsókn í Álfaberg Haraldur […]

Úthlutun afreksstyrkja

Stjórn Afreksmannasjóðs ÍBH úthlutaði í dag styrkjum til aðildarfélaga ÍBH vegna stórmóta á árinu 2015 í fullorðins-, unglinga- og ungmennaflokkum.  Styrkhæf verkefni í ár reyndust vera átján í fullorðinsflokkum og sextán í unglinga-/ungmennaflokkum að mati stjórnar sjóðsins. Hlutverk Afreksmannasjóðs ÍBH er að vinna eftir reglugerð um sjóðinn en undir hana falla eftirtaldir liðir: ferðastyrkir, afreksstyrkir á […]

Grunnskólahátíðin 2016

Miðvikudaginn 3. febrúar fer fram Grunnskólahátíðin í Hafnarfirði. Félagsmiðstöðvarnar og grunnskólarnir í Hafnarfirði hafa staðið að þessu verkefni í áraraðir og hefur hátíðin verið unglingunum og verkefnum þeirra til mikils sóma. Um daginn verða leiksýningar  í Gaflaraleikhúsinu kl. 13:00 og 15:00 þar sem nemendur úr skólum bæjarins sýna afrakstur allskonar listtengdrar vinnu.  Leiksýning kl. 13:00 […]

Safnanótt í Hafnarfirði

Söfn í Hafnarfirði taka virkan þátt í Safnanótt föstudaginn 5. febrúar með fjölbreyttri dagskrá. Í Hafnarfirði verða rúmlega tuttugu viðburðir í boði. Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð.  Bókasafn Hafnarfjarðar, Byggðasafn Hafnarfjarðar og Hafnarborg taka þátt í hátíðinni með virkum hætti og fjölbreyttri dagskrá.  Söfnin þrjú verða opin frá kl. 19 til […]

Mótmæla breytingu

Fjölskylduráð Hafnarfjarðar mótmælir þeirri ákvörðun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) að flytja starfsemi heimahjúkrunar í Hafnarfirði frá starfsstöðvum að Sólvangi og Firði til Kópavogs án alls samráðs. Skilvirk nýting í þágu notenda Framkvæmdastjórn HH hefur ákveðið að sameina heimahjúkrun á suðursvæðinu (Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð) og er gert ráð fyrir að ný starfsemi hefjist í maí 2016. […]

Magnað myrkur – vetrarhátíð

Fjögurra daga glæsileg Vetrarhátíð verður haldin frá  4. – 7. febrúar og fer hátíðin fram í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Þetta er í þrettánda sinn sem þessi hátíð ljóss og myrkurs er haldin en fjórar meginstoðir hátíðarinnar eru: Safnanótt, Sundlauganótt, Snjófögnuður og ljósalist ásamt 150 viðburðum sem þeim tengjast. Megintilgangur Vetrarhátíðar er að skemmta fólki […]