Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst […]
Flokkur: Fréttir
1500 fundur Hafnarstjórnar
1500 fundur Hafnarstjórnar var haldinn nú í morgun. Fyrsti fundur „Hafnarnefndar“ var haldinn 9. september 1909. Í nefndinni áttu þá sæti Magnús Jónsson bæjarstjóri, Sigfús Bergmann og Guðmundur Helgason bæjarfulltrúar. Fyrsta verkefni nefndarinnar var að undirbúa byggingu hafskipabryggju. Það þótti vel við hæfi í tilefni dagsins í dag að á 1500 fundi Hafnarstjórnar væru kynntar […]
Hraunin vestur – tillögur hönnuða
Fjölmennur fundur um skipulagshugmyndir í vesturhluta Hrauna var haldinn í Hafnarborg í gær þar sem tillögur hönnunarhópa voru meðal annars kynntar. Fyrirhuguð er deiliskipulagsvinna á reit sem afmarkast af Fjarðarhrauni, Reykjavíkurvegi og Flatahrauni sem hefur það að meginmarkmiði að þétta byggð á svæðinu og breyta landnotkun í blandaða byggð íbúða/atvinnustarfsemi. Hafnarfjarðarbær kallaði eftir hugmyndum fimm […]
Tímasett heildarstefna vegabóta
Hafnarfjarðarbær áréttar að mikil þörf er á að marka heildarstefnu varðandi vegabætur á stofnvegakerfi sem liggur í gegnum Hafnarfjörð. Síðustu misseri hefur umferð á þessari leið aukist mjög mikið og sýna tölur glöggt að tvö slysahæstu hringtorgin á höfuðborgarsvæðinu eru hringtorg við Lækjargötu og Flatahraun og eru þau einnig efst á blaði þegar kemur að […]
Vel lukkað Ungmennaþing
Ungmennaráð Hafnarfjarðar ásamt starfsfólki félagsmiðstöðva Hafnarfjarðar stóðu fyrir Ungmennaþingi ,,Nýtt ár! Nýr Hafnarfjörður „ þann 25. janúar s.l. Tilgangur þingsins var m.a. að fá hugmyndir frá ungu fólki að verkefnum og lausnum sem geta bætt hag ungmenna í Hafnarfirði. Þátttakendum þingsins stóð til boða að taka þátt í þremur umræðuhópum; skólamál, félagslíf og menning og […]
Í bæjarfréttum er þetta helst…
Orð mánaðarins frá bæjarstjóra Hafnarfjarðarbæjar Fyrsti mánuðurinn af nýja árinu er nú liðinn og er óhætt að segja að hann hafi liðið ansi hratt enda í mörgu að snúast á stóru heimili, heimili sem við öll viljum sjá vaxa og dafna og munum sjá vaxa og dafna á næstu misserum. Árið 2016 var um margt […]
Skipulagsbreyting Eskivellir 11 og 13
Breyting á deiliskipulagi Eskivalla 11 og 13, Vellir 5. Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 13.12.2016 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi við Eskivelli 11 í samræmi við 1. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í: 5.4.1. Fjölbýlishús F1. Við Eskivelli 11 verður eitt sex hæða fjölbýlishús (F1) með 39 íbúðum Byggingarreitur […]
Blóðsöfnun við Fjarðarkaup
Blóðbankabíllinn verður við Fjarðarkaup á fimmtudaginn frá 13-17. Með blóðgjöf björgum við lífi og léttum það þeim sem þurfa þessa mikilvægu gjöf. Slysin gera ekki boð á undan sér fremur en veikindin oft og tíðum. Og svo merkilegt sem það er er tiltölulega fyrirhafnarlítið eða –laust að líta við í Blóðbankabílnum og veita sjúkum og […]
Fulltrúar okkar á Samfés
Föstudaginn 20. janúar var Söngkeppni félagsmiðstöðva Hafnarfjarðar haldin en þessi árlega keppni er undankeppni Söngkeppni Samfés sem verður í Laugardalshöll laugardaginn 24. mars næstkomandi. Sigurvegarar kvöldsins voru Birta Guðný Árnadóttir úr Vitanum og Agnes Björk Rúnarsdóttir úr Öldunni. Bæjarbíó fullt af hæfileikaríkum hafnfirskum ungmennum Keppnin fór fram í Bæjarbíói og var húsið troðfullt og dúndrandi […]
Opinberi vefur ársins 2016
Síðastliðinn föstudag voru Íslensku vefverðlaunin fyrir árið 2016 veitt við hátíðlega athöfn í Silfurbergi Hörpunnar. Vefur Hafnarfjarðarbæjar – hafnarfjordur.is – fékk verðlaun sem besti opinberi vefur ársins 2016. Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða. Vefur […]