Smáforritið Orðagull er nýtt málörvunarforrit fyrir spjaldtölvur sem gefið var út í dag á Degi íslenskrar tungu. Orðagull miðar að því að styrkja orðaforða, vinnsluminni, heyrnræna úrvinnslu og máltjáningu. Leitast er við að virkja áhugahvöt nemenda með því að gera námsefnið áhugavert og skemmtilegt og þannig eru m.a. nýtt þau tækifæri sem felast í smáforritum […]
Flokkur: Fréttir
Lúvísa ráðin gæðastjóri
Hafnarfjarðarbær hefur ráðið til sín gæðastjóra en starf gæðastjóra var auglýst laust til umsóknar um miðjan september síðastliðinn. Lúvísa Sigurðardóttir hefur verið ráðin í starfið. Lúvísa lauk Msc gráðu í byggingarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2010 og Bsc í byggingartæknifræði frá sama skóla árið 2008. Lúvísa hefur síðastliðið ár starfað hjá Actavis, þar sem […]
Beint streymi frá íbúafundi
Bæjarstjóri heldur fund með íbúum Hafnarfjarðar um fjárhagsáætlun ársins 2017 í kvöld þriðjudaginn 15. nóvember n.k. Fundurinn er haldinn í Bæjarbíói og hefst stundvíslega kl. 20. Gera má ráð fyrir að fundurinn standi yfir í c.a. 1,5 klst. Á fundinum munu bæjarstjóri og sviðsstjórar Hafnarfjarðarbæjar kynna helstu áherslur og niðurstöður í frumvarpi að fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar […]
Ásvallalaug lokuð um helgina
Kæru íbúar takið eftir! Ásvallalaug verður lokuð frá föstudeginum 18. nóvember til og með sunnudeginum 20. nóvember vegna Íslandsmeistaramóts í sundi. Suðurbæjarlaug og Sundhöll verða opnar til kl. 21 á föstudagskvöld og Suðurbæjarlaug opin frá 8-18 á laugardeginum og 8-17 á sunnudeginum. Fyrirfram takk fyrir sýndan skilning!
Röskun á skólastarfi
Slökkvilið og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendu í morgun frá sér eftirfarandi tilkynningu: Tilkynning vegna veðurs. Rok og rigning getur seinkað ferðum nemenda til skóla í morgunsárið. Skólar eru opnir, en mikilvægt er að foreldrar gæti þess að yngri börn fari ekki ein í skóla, þetta á sérstaklega við í efri byggðum og þar sem börn […]
Útboð – nýr íþróttasalur
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í byggingu á nýjum íþróttasal við Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Verkið nær til að byggingar íþróttasalar og fullnaðarfrágangs að utan sem innan ásamt frágangi lóðar. Stærð íþróttasalar með áhaldageymslum og tæknirýmum eru 2.411 m2 . Helstu magntölur eru: Mót 3.440 m2 Steypa […]
Tilboð í lóðir samþykkt
Tilboð bárust frá sjö aðilum þegar Hafnarfjarðarbær auglýsti sex fjölbýlishúsalóðir í Skarðshlíð í haust. Eftir að tilboðsfresti lauk hófst mat og rýni tilboða út frá skilgreindum skilmálum samhliða fundum með hæstbjóðendum. Bæjarráð samþykkti þann 3. nóvember sl. að taka annars vegar tilboðum frá Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars hf. um tvær lóðir og hins vegar frá […]
Nýr sviðsstjóri stjórnsýslu
Bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar samþykkti í dag tillögu bæjarráðs að ráða Sigríði Kristinsdóttur, bæjarlögmann, í stöðu sviðsstjóra stjórnsýslusviðs. Samhliða verður gerð sú breyting að störf sviðsstjóra og bæjarlögmanns verða sameinuð. Sigríður tekur við starfinu í lok nóvember. Sigríður Kristinsdóttir, sem er bæjarlögmaður Hafnarfjarðarbæjar, hefur verið ráðin í stöðu sviðsstjóra stjórnsýslusviðs. Sigríður tekur við af Kristjáni Sturlusyni sem […]
Birtir til í rekstri bæjarins
554 milljón króna væntur afgangur af rekstrinum og útsvar lækkar. Frumvarp að fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2017 liggur nú fyrir. Rekstur ársins 2016 og fjárhagsáætlun 2017 endurspegla skýrt áherslur bæjarstjórnar Hafnarfjarðar á að auka þjónustu, draga úr álögum á íbúa, greiða niður skuldir og fjárfesta í auknu mæli fyrir eigið fé. Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar 2017 […]
Bæjarstjórnarfundur 9. nóv
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 9. nóvember. Fundurinn hefst kl. 14:30 í Hafnarborg, Strandgötu 34. Opinn fundur um fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar hefst kl. 13:00. Fundir verður streymt beint á heimasíðu bæjarins. Á opnum fundi munu sviðsstjórar Hafnarfjarðarbæjar ásamt bæjarstjóra fara yfir sín fagsvið í áætlun. Hér er hægt að nálgast dagskrá fundar Hér er hægt að horfa […]