Flokkur: Fréttir

Skuggakosningar í Flensborg

  Skuggakosningar verða haldnar í Flensborgarskóla fimmtudaginn 13. október.  Verkefnið gengur út á það að virkja ungmenni til þátttöku í lýðræði og munu ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna fá tækifæri til að halda kynningar í hádegishléum og taka þátt í pallborðsumræðum í aðdraganda kosninganna. Skuggakosningar í Hafnarfirði var eitt þeirra verkefna sem hlaut styrk úr Jafnréttissjóði Íslands í […]

Heimanámsaðstoð

Heimanámsaðstoð fyrir nemendur með erlendan bakgrunn Heimanámsaðstoð er nú í boði fyrir nemendur með erlendan bakgrunn í 8.-10 bekk í Hafnarfirði. Verkefnið er ætlað þeim nemendum sem vantar aðstoð við heimanám og hafa áhuga að hittast einu sinni í viku og fá aðstoð frá sjálfboðaliðum. Heimanámsaðstoðin er í boði alla miðvikudaga frá kl. 16:30 – […]

Byggðasafn í bleiku ljósi

Hinn formlegi bleiki mánuður er genginn í garð þar sem bleiki liturinn tekur öll völd. Við hjá Hafnarfjarðarbæ böðum okkur með bleikum ljósum við elsta hús Hafnarfjarðar, sjálft Sívertsen-húsið og Lækinn í október og viljum með því sýna stuðning við baráttuna gegn krabbameini hjá konum. Hinn eiginlegi bleiki dagur er föstudagurinn 14.október og munu allir […]

Jólahús – opið fyrir umsóknir

Já, jólin nálgast óðfluga. Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Jólaþorp Hafnarfjarðar 2016. Sem fyrr vill Jólaþorpið fá til liðs við sig einstaklinga, samtök og fyrirtæki sem hafa til sölu gæðavöru á góðu verði og fjölbreytt úrval varnings með loforði um líf og jólafjör á á sölubásnum. Í Jólaþorpinu eru 20 söluhús, skreytt einingahús sem […]

Miklar framfarir í lestri

Miklar framfarir í lestri meðal hafnfirskra grunnskólanemenda Niðurstöður mælinga á lestrargetu nemenda í 5.-10. bekkjum í grunnskólum Hafnarfjarðar skólaárið 2015-2016 sýna að fjöldi getumikilla nemenda í lestri tvöfaldast og fjöldi nemenda sem þarf að efla lestrargetu sína minnkar verulega eða um 50%. Þetta eru niðurstöður sem sýna sig í mælingum á lestrargetu um 2.200 nemenda […]

Alþjóðadagur kennara

Alþjóðadagur kennara er haldinn hátíðlegur um heim allan 5. október og hefur svo verið gert síðan 1996. Markmið alþjóðadagsins er að vekja athygli á því mikilvæga starfi sem kennarar inna af hendi á degi hverjum. Til hamingju með daginn kæru kennarar! Metum kennara að verðleikum – styrkjum stöðu þeirra Stofnað var til Alþjóðadags kennara að frumkvæði UNESCO […]

eTwinning viðurkenning

Á dögunum hlaut Hjördís Ýrr Skúladóttir, kennari við Hraunvallaskóla, viðurkenningu fyrir þátttöku í eTwinning verkefni á síðasta skólaári, svokallað eTwinning Quality label. Verkefnið var unnið í samstarfi nokkurra Evrópuþjóða með það að markmiði að auka vitund barna um ofnotkun á plasti. Var ýmsum aðferðum beitt s.s. að láta plastið fá nýtt líf í listaverkum eða […]

Fyrirtækjafundir Markaðsstofu

Markaðsstofa Hafnarfjarðar er sjálfseignarstofnun rekin af fyrirtækjunum í bænum og hafa nú þegar hátt í 60 fyrirtæki gerst aðilar að stofunni. Til viðbótar kemur framlag frá Hafnarfjarðarbæ. Eitt af hlutverkum Markaðsstofu Hafnarfjarðar er að efla atvinnuþróun og starfa að ferða- og markaðsmálum í Hafnarfirði í nánu samstarfi við atvinnulíf, sveitarfélag og aðra þá sem vilja […]

Umsjón og rekstur Bæjarbíós

Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir áhugasömum aðilum til að taka að sér rekstur Bæjarbíós undir lifandi menningarstarfsemi og annað sem styrkir rekstur hússins.  Umsóknir verða metnar á grundvelli eftirfarandi þátta: Að starfsemin efli menningarlíf í Hafnarfirði Að fjölþætt menningarstarfsemi sé í húsinu árið um kring og að skipuleggjendur menningarstarfs geti nýtt sér aðstöðuna á sanngjörnum kjörum Rekstraráforma […]

Norðurljósasýning í Hafnarfirði

Það stefnir allt í mikil og falleg norðurljós í kvöld og hefur Hafnarfjarðarbær ákveðið svara ákalli íbúa og slökkva á götulýsingu á völdum stöðum. Vonumst er til þess að íbúar Hafnarfjarðar og aðrir gestir og gangandi geti notið þeirrar fallegu norðurljósasýningar sem er í kortum kvöldsins. Norðurljósin hafa glatt okkur mikið síðustu daga og lofar […]