Flokkur: Fréttir

Landsfundur bókasafna

Starfsfólk Bókasafns Hafnarfjarðar tekur þátt í Landsfundi starfsfólks bókasafna. Af þeim sökum verður röskun á afgreiðslutíma bókasafnsins í lok vikunnar.  Fimmtudagur 29. september : OPIÐ 13 – 19 Föstudagur 30. september : LOKAР Laugardagur 1. október : OPIÐ 11 – 15 Skiladagur gagna sem þegar eru í útláni og voru með þessa skiladaga færist yfir á mánudaginn 3. […]

Þrjú erindi frá Hafnarfjarðarbæ

Fjöldi áhugaverðra erinda voru flutt á árlegri fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2016 sem fram fór dagana 22. – 23. september. Þar á meðal komu þrjú erindi úr ranni starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar, erindi sem sneru að einkaframkvæmdum sveitarfélaga, fjölskylduþjónustu og fræðsluþjónustu og byggðu á reynslu og áralangri þekkingu í málaflokkunum. Haraldur L. Haraldsson,  bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar hefur til fjölda ára […]

Lýðheilsa ungs fólks 2016

Nýverið kom út ný skýrsla um unglinga  í 8. – 10. bekk í Hafnarfirði. Í skýrslunni eru bornir saman unglingar úr Hafnarfirði við jafnaldra sína á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu. Allir nemendur sem mættu í skólann þegar þessi rannsókn fór fram tóku þátt eða um 85% unglinga í Hafnarfirði. Skýrslan tekur á fjölda þátta í […]

Átta tilboð frá sjö lögaðilum

Í byrjun september óskaði Hafnarfjarðarbær eftir tilboðum í sex fjölbýlishúsalóðir í 1. áfanga Skarðshlíðar, hverfi sem er í skjóli hlíðar sunnan og vestan í Ásfjalli. Tilboðsfrestur rann út á hádegi þriðjudaginn 20. september og bárust í átta tilboð í lóðirnar frá sjö lögaðilum. Um er að ræða sex lóðir fyrir 18 fjölbýlishús með 167 íbúðum […]

Jákvætt umhverfi og upplifun

  Krónan er eitt þeirra fyrirtækja sem nú í ágúst hlaut viðurkenningu Hafnarfjarðarbæjar fyrir snyrtileika, góða umgengni og faglegt framlag til umhverfismála. „Við hjá Krónunni erum þakklát og stolt af þessari viðurkenningu. Allir aðilar sem komu að byggingu Krónunnar á Flatahrauni lögðust á eitt við það að gera verslunina og umhverfi hennar sem snyrtilegast og […]

Eiríkur Smith

Látinn er á 92 aldursári listmálarinn og Hafnfirðingurinn Eiríkur Smith. Eiríkur fæddist árið 1925 og ólst upp í Straumi við Straumsvík fyrstu árin. Fjölskyldan fluttist inn til Hafnarfjarðar árið 1931 og bjó Eiríkur í Hafnarfirði nær alla tíð síðan. Hann byrjaði snemma að teikna skip og báta á pappír sem honum áskotnaðist. Teikningar hans vöktu […]

Fjármálaráðstefna 2016

Árleg fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2016 verður haldinn dagana 22. og 23. september á Hilton Reykjavik Nordica.  Ráðstefnan hefst kl. 10 á fimmtudaginn með ræðu formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga, Halldórs Halldórssonar. Á fjármálaráðstefnunni verða flutt erindi um margvísleg efni sem snúa að fjármálum og stjórnsýslu sveitarfélaga.  Fyrri daginn verður m.a. tekið fyrir efni sem snýr að efnahag […]

Stílhreint yfirbragð umhverfis

Fjölskyldufyrirtækið Te & Kaffi byrjaði sem lítil verslun með kaffi og te árið 1984 og er nú ört stækkandi fyrirtæki með um 200 manns í vinnu við framleiðslu, markaðssetningu og sölu. Fyrirtækið hefur til fjölda ára verið með framleiðslu sína og vöruhús við Stapahraun í Hafnarfirði og ætti öllum þeim sem leið eiga um svæðið […]

Snyrtimennska er fjárfesting

Þegar Héðinn flutti starfsemi sína í Gjáhelluna í árslok 2008 var tekin sú ákvörðun að vanda sem best til umhirðu og stuðla að snyrtimennsku á lóð fyrirtækisins. Það átti ekki bara við um framhliðina sem snýr að viðskiptavinum, heldur ekki síður baklóðina. „Lóðin er 30 þúsund fermetrar og mikilvægt að hafa þar allt í röð […]

Tilboðslóðir í Skarðshlíð

Fyrir sjö árum síðan voru íbúar í Hafnarfirði 25.890 talsins. Í dag er talan komin upp í 28.450 og fer hækkandi. Eftirspurn eftir íbúðum á svæðinu er mikil og miða breytingar á skipulagi, uppbygging innviða og sala lóða að því að hægt sé að svara eftirspurn í auknum mæli og taka vel á móti vaxandi […]