Orð mánaðarins frá bæjarstjóra Hafnarfjarðarbæjar Fyrsti mánuðurinn af nýja árinu er nú liðinn og er óhætt að segja að hann hafi liðið ansi hratt enda í mörgu að snúast á stóru heimili, heimili sem við öll viljum sjá vaxa og dafna og munum sjá vaxa og dafna á næstu misserum. Árið 2016 var um margt […]
Flokkur: Fréttir
1500 fundur Hafnarstjórnar
1500 fundur Hafnarstjórnar var haldinn nú í morgun. Fyrsti fundur „Hafnarnefndar“ var haldinn 9. september 1909. Í nefndinni áttu þá sæti Magnús Jónsson bæjarstjóri, Sigfús Bergmann og Guðmundur Helgason bæjarfulltrúar. Fyrsta verkefni nefndarinnar var að undirbúa byggingu hafskipabryggju. Það þótti vel við hæfi í tilefni dagsins í dag að á 1500 fundi Hafnarstjórnar væru kynntar […]
Hraunin vestur – tillögur hönnuða
Fjölmennur fundur um skipulagshugmyndir í vesturhluta Hrauna var haldinn í Hafnarborg í gær þar sem tillögur hönnunarhópa voru meðal annars kynntar. Fyrirhuguð er deiliskipulagsvinna á reit sem afmarkast af Fjarðarhrauni, Reykjavíkurvegi og Flatahrauni sem hefur það að meginmarkmiði að þétta byggð á svæðinu og breyta landnotkun í blandaða byggð íbúða/atvinnustarfsemi. Hafnarfjarðarbær kallaði eftir hugmyndum fimm […]
Skipulagsbreyting Eskivellir 11 og 13
Breyting á deiliskipulagi Eskivalla 11 og 13, Vellir 5. Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 13.12.2016 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi við Eskivelli 11 í samræmi við 1. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í: 5.4.1. Fjölbýlishús F1. Við Eskivelli 11 verður eitt sex hæða fjölbýlishús (F1) með 39 íbúðum Byggingarreitur […]
Blóðsöfnun við Fjarðarkaup
Blóðbankabíllinn verður við Fjarðarkaup á fimmtudaginn frá 13-17. Með blóðgjöf björgum við lífi og léttum það þeim sem þurfa þessa mikilvægu gjöf. Slysin gera ekki boð á undan sér fremur en veikindin oft og tíðum. Og svo merkilegt sem það er er tiltölulega fyrirhafnarlítið eða –laust að líta við í Blóðbankabílnum og veita sjúkum og […]
Fulltrúar okkar á Samfés
Föstudaginn 20. janúar var Söngkeppni félagsmiðstöðva Hafnarfjarðar haldin en þessi árlega keppni er undankeppni Söngkeppni Samfés sem verður í Laugardalshöll laugardaginn 24. mars næstkomandi. Sigurvegarar kvöldsins voru Birta Guðný Árnadóttir úr Vitanum og Agnes Björk Rúnarsdóttir úr Öldunni. Bæjarbíó fullt af hæfileikaríkum hafnfirskum ungmennum Keppnin fór fram í Bæjarbíói og var húsið troðfullt og dúndrandi […]
Opinberi vefur ársins 2016
Síðastliðinn föstudag voru Íslensku vefverðlaunin fyrir árið 2016 veitt við hátíðlega athöfn í Silfurbergi Hörpunnar. Vefur Hafnarfjarðarbæjar – hafnarfjordur.is – fékk verðlaun sem besti opinberi vefur ársins 2016. Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða. Vefur […]
Magnað myrkur – Vetrarhátíð
Fjögurra daga glæsileg Vetrarhátíð verður haldin dagana 2. – 5. febrúar. Höfuðborgarstofa skipuleggur og framkvæmir Vetrarhátíð sem nú er haldin í 16 sinn og fer hátíðin fram í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Þessi hátíð ljóss og myrkurs samanstendur af fjórum meginstoðum: Safnanótt, Sundlauganótt, Snjófögnuði og ljósalist ásamt yfir 150 viðburðum þar sem fjöldi listamanna tekur […]
Bæjarstjórnarfundur 1. feb
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 1. febrúar. Fundurinn hefst kl. 14:00 í Hafnarborg, Strandgötu 34. Fundi er streymt beint á heimasíðu bæjarins. Hér má sjá dagskrá fundar Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu Útsending hefst stundvíslega kl. 14:00. Meðal efnis á fundi eru aðalskipulag Hafnarfjarðar og breyting vegna vatnsverndarmarka til samræmis […]
Allir lesa – landsleikur í lestri
Lestur gerir lífið einfaldlega skemmtilegra! Við hvetjum ALLA til að taka þátt í ALLIR LESA – landsleik í lestri Á fundi sínum í vikunni vakti fræðsluráð Hafnarfjarðarbæjar sérstaka athygli á lestrarkeppninni Landsleikur í lestri sem samtökin Allir lesa standa að og stendur yfir á landsvísu dagana 27. janúar – Konudagsins 19. febrúar. Fræðsluráð hvetur bæjarbúa til […]