Hafnarfjarðarbær og RFC. ehf. (Reebok Fitness) hafa samið um opnun á nýrri líkamsræktarstöð í Ásvallalaug næsta haust. Haraldur Haraldsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar og Guðmundur Ágúst Pétursson, forstjóri Reebok Fitness, skrifuðu á dögunum undir leigusamning til fimm ára. Reebok Fitness ætlar að höfða til breiðs hóps í nýrri starfsstöð sinni í Ásvallalaug og gefa viðskiptavinum færi á […]
Flokkur: Fréttir
Útboð – Skarðshlíð 1. áfangi
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í gatnagerð og lokafrágang núverandi gatna í Skarðshlíð 1. áfanga vegna breytts skipulags í hverfinu, ásamt breytingum á fráveitulögnum, neysluvatnslögnum og lögnum veitna. Útboðsgögn verða seld hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, Norðurhellu 2, frá og með þriðjudegi 26. júlí 2016. Verð kr. 5.000,- Tilboð verða opnuð á sama stað, mánudaginn 15. […]
Samningar undirritaðir á sjó
Það eru fáir staðir meira viðeigandi en höfnin þegar skrifað er undir samning við Siglingaklúbbinn Þyt. Bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Haraldur L. Haraldsson og Pétur Th. Pétursson, formaður siglingaklúbbsins undirrituðu tvo samstarfssamninga í höfninni í Hafnarfirði í vikunni. Annarsvegar þjónustusamning sem felur í sér styrk til að standa fyrir starfsemi fyrir börn og unglinga og hinsvegar rekstrarsamning […]
Unwanted items in sewers
ENGLISH Unwanted and inappropriate items in the toilets and drains in Hafnarfjörður are becoming a problem. The problem is not new but seems to have been pacing up in the recent weeks and months causing breakdowns of pumps and other equipment. All this leads to costs that otherwise could be used for the development and maintenance of […]
Óleyfilegt niðurhal
Nokkuð mikið hefur borið á því að óæskilegir hlutir séu að skila sér í salerni og niðurföll Hafnfirðinga. Vandamálið er ekki nýtt af nálinni en virðist hafa verið að færast í aukana síðustu vikur og mánuði með tilheyrandi bilunum á dælum og öðrum tækjabúnaði. Allt þetta leiðir til kostnaðar sem annars væri hægt að nýta […]
Skipulagsbreytingar
Auglýsing um skipulag í Hafnarfjarðarbæ Deiliskipulag við Reykjanesbraut – tenging við Rauðhellu/Krýsuvíkurveg Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 28.júní 2016 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Reykjanesbrautar vegna tengingar við Rauðhellu/ Krýsuvíkurveg í samræmi við 1. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í stækkun hringtorgs miðað við það sem fyrirhugað var […]
Gleðigangan í undirbúningi
Laugardaginn 6. ágúst fer fram hin árlega gleðiganga Hinsegin daga. Hafnarfjarðarbær mun í ár, líkt og fyrri ár, taka þátt í göngunni og stendur undirbúningur nú yfir. Jafningjafræðslan Competo ásamt listahópi og skapandi sumarstörfum í Vinnuskóla Hafnarfjarðar sjá um skipulagningu göngunnar í ár. Slagorð göngu er tilbúið, heimagerðar skreytingar í vinnslu og atriði á palli […]
Í bæjarfréttum er þetta helst
Nú er orðið nokkuð um liðið frá síðustu birtingu. Ástæðan er einföld…það er margt um að vera á stóru heimili og í forgangi að sinna heimilisverkunum. Nú hefur aðeins hægst um og svigrúm skapast til skrifa. Síðustu mánuðir hafa sem fyrr einkennst af miklu lífi, hátíðarhöldum og verkefnum sem tengjast sumri og uppskeru á öllum […]
Húsnæði óskast
Þriggja herbergja íbúð fyrir flóttamannafjölskyldu. Hafnarfjarðarbær óskar eftir að taka á leigu 3ja herbergja íbúð í sveitarfélaginu fyrir flóttamannafjölskyldu sem væntanleg er til landsins. Upplýsingar gefur þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar í síma: 585-5500 | netfang: hafnarfjordur@hafnarfjordur.is Óskað er eftir að upplýsingar um húsnæði berist fyrir 27. ágúst n.k.
Stutt í næsta bekk
Brúkum bekki er samfélagsverkefni sem staðið hefur yfir frá árinu 2013 og er nú svo komið að Hafnfirðingar og aðrir gestir geta gengið um nær öll hverfi Hafnarfjarðar og hvílt sig á bekk með um 250 – 300 metra millibili. Um er að ræða sameiginlegt verkefni Öldungaráðs, Félags eldri borgara í Hafnarfirði, Félags sjúkraþjálfara og […]