Flokkur: Fréttir

Einkenni góðra kennara

Menntavísindasvið Háskóla Íslands kallar eftir tilnefningum frá almenningi um góða kennara. Tilgangurinn með átakinu er að vekja athygli þjóðarinnar á kennarastarfinu; hversu áhugavert og skemmtilegt það er og hversu mikil áhrif kennarar geta haft á einstaklinga og samfélagið. Niðurstöður átaksins verða kynntar við hátíðlega athöfn í húsnæði Menntavísindasvið við Stakkahlíð þann 1. júní klukkan 17:00. […]

Stöðugjöld á gámum

Hafnarfjarðarbær hefur ákveðið að taka upp það verklag að innheimta stöðugjöld á gámum, samkvæmt  2.6.1. gr byggingingarreglugerðar nr.112/2012 og reglum um stöðuleyfi sem samþykktar voru í bæjarstjórn Hafnarfjarðar 20. janúar 2016. Gjaldið er til eins árs í senn og er fyrsta gjaldtímabilið frá 1. maí 2016 – 30. apríl 2017. Eitt gjald fyrir allar stærðir af […]

Bæjarstjórnarfundur 11. maí

  Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 11. maí nk. og hefst fundurinn kl. 14:00 í Hafnarborg, Strandgötu 34.   Hér er hægt að nálgast dagskrá bæjarstjórnarfundarins. Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu. Útsending hefst kl 14:00. 

Grunnskólameistarar 2015-2016

Lækjarskóli er sigurveg­ari í íþróttamóti grunn­skóla Hafnarfjarðar skólaárið 2015-2016. Mótið er haldið árlega og eru það 9. bekk­ingar grunnskólanna sem keppa fyrir hönd skólanna ár hvert. Keppnin var haldin á Ásvöllum í ár en skipst er á að halda keppnina á Ás­völlum og í Kaplakrika. Sömuleiðis er örlítið mismunandi eftir keppnisstöðum í hvaða íþrótta­greinum er […]

Útboð – matur fyrir mötuneyti

ÚTBOÐ  á framleiðslu á mat fyrir skólamötuneyti Innkaupadeild Hafnarfjarðarbæjar óskar eftir tilboðum í framleiðslu á mat fyrir leik- og grunnskóla í bæjarins. Þjónustuverkefnið felst í því að framleiða matinn og afhenda á tilteknum tíma í viðkomandi leik- og grunnskólum og framreiða hann ásamt samantekt að máltíð lokinni. Samningstími er 4 ár með ákvæðum að hægt verði að […]

Forskráning í skólagarða

Í sumar eiga börn á aldrinum 7 – 12 ára (fædd 2004-2009) forgang í að skrá sig í skólagarða Hafnarfjarðarbæjar.  Skráning hófst á Sumardaginn fyrsta og lýkur 14. maí. Eftir þann tíma gefst öllum öðrum sem hafa lögheimili í Hafnarfirði kost á að leigja sér garð. Skólagarðarnir eru á eftirfarandi stöðum: Á Víðistöðum s. 664-5769 […]

Hornfirðingar í heimsókn

Á síðasta ári kom upp sú hugmynd hjá fulltrúum í Ungmennaráði Hafnarfjarðar að bjóða öðru ungmennaráði í heimsókn. Fyrst voru uppi umræður um að bjóða ungmennaráði í nærliggjandi sveitarfélagi í heimsókn með það fyrir augum að kynnast störfum og starfsaðferðum hjá öðru ungmennaráði. Á meðan á þessum hugleiðingum stóð leitaði Ungmennaráð Hornafjarðar til Ungmennaráðs Hafnarfjarðar. Hornfirðingarnir […]

Sumarstarf – fristund.is

Skráning í sumarstarf á vegum Hafnarfjarðarbæjar er hafin! Skráningin fer fram á Mínum síðum – „leikjanámskeið, skólagarðar og róló“ undir umsóknir í grunnskóla.  Á vegum Hafnarfjarðarbæjar er boðið uppá leikjanámskeið fyrir 7 – 9 ára við alla skóla, skólagarða fyrir alla fjölskylduna í Mosahlíð, á Holtinu, Öldugötu, við Víðistaði og á Völlum, tómstund fyrir 10-13 ára og […]

Uppskeruhátíð hreinsunar

Með samhentu samfélagsátaki í hreinsun þá verður Hafnarfjörður ofurhreinn á stuttum tíma. Fimmtudaginn 12. maí eru starfsmenn fyrirtækja og stofnana ásamt nemendum og kennurum allra skólastiga í Hafnarfirði hvattir til að bretta upp ermarnar, skella sér í gúmmískóna, setja upp hanska og drífa sig út í ruslatínslu og hreinsun. Framlag hvers og eins skiptir máli. […]

Lokað vegna sundmóts og 1. maí

Ásvallalaug verður lokuð föstudaginn 29. apríl frá kl. 16:30 og allan laugardaginn 30. apríl vegna sundmóts.  Suðurbæjarlaug verður opin fyrir almenning frá kl. 8 – 18 á morgun laugardag en báðar laugar; Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug verða lokaðar sunnudaginn 1. maí á alþjóðlegum frídegi verkafólks og baráttudegi verkalýðshreyfingarinnar.