Þessa daga vinna nemendur saman að fjölbreyttum verkefnum í aldursblönduðum hópum. Þau ganga á milli stöðva þar sem fjölbreytt verkefni eru lögð fyrir. Má þar nefna: keðjulangstökk, skák, sápukúlu og vísindastöð, kimsleik, dans, söng, hnýtingar, fallegasta orðið, landafræði, mósaík, lífsleikni og jafnvægislistir. Flest verkefnin reyna á að börnin vinni saman og styðji við hvert annað. […]
Flokkur: Fréttir
Hvað finnst þér ?
Starfshópur um endurskoðun frístundaheimila, frístundastyrkja og fyrirkomulags niðurgreiðslna og gjalda hefur ásamt starfsmönnum tómstundaskrifstofu unnið að samþykkt um starfsemi frístundaheimila. Sú samþykkt tengist fjölmörgum aðilum í Hafnarfirði og því er það mikilvægt að fá umsögn frá sem flestum aðilum. Í dag er engin slík samþykkt til. Frítími barna og fullorðinna er dýrmætur og í vaxandi […]
Bæjarstjórnarfundur 18.mars kl. 14.00
Boðað hefur verið til fundar í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 18.mars 14.00. Bæjarbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum hér á vefnum.
Undanúrslit í Veistu svarið?
Mánudaginn 16. mars fóru fram undanúrslit í Veistu Svarið, spurningakeppni grunnskóla Hafnarfjarðar, annars vegar í félagsmiðstöðinni Öldunni þar sem Öldutúnsskóli mætti Áslandsskóla, og hins vegar í félagsmiðstöðinni Setrinu þar sem Setbergsskóli mætti Lækjarskóla. Svo fór að Setbergsskóli sigraði Lækjarskóla 27-19 og Áslandsskóli vann Öldutúnsskóla 34-21. Fyrsta umferð fór fram mánudaginn 2. mars. Kepptu þá lið […]
Kynning á heilsueflandi skóla
Í dag var haldinn kynningarfundur um heilsueflandi leik- og grunnskóla fyrir stjórnendur í leik- og grunnskólum bæjarins í tilefni þess að Hafnarfjörður hefur gert samning um að gerast heilsueflandi samfélag. Fundurinn var haldinn í Hraunvallaskóla þar sem nálægt 30 manns tóku þátt í fundinum. Á fundinum kynntu þrír skólar, Flensborgarskólinn, Hraunvallaskóli og Hvaleyrarskóli, hvernig þeir […]
Markaðsstofa Hafnarfjarðar
Þriðjudaginn 17.mars kl. 17.15 verður haldinn umræðufundur í Hafnarborg þar sem rætt verður um starfssemi Markaðsstofu Hafnarfjarðar sem stofnuð verður á næstu vikum. Markaðsstofan mun leggja áherslu á að gera Hafnarfjörð að öflugum valkosti fyrir fólk og fyrirtæki til búsetu, atvinnu og afþreyingar. Fundarstjóri – Helgi Ásgeir Harðarson Dagskrá fundarins; Inngangur – Pétur Óskarsson Markaðsstofa […]
Barnakóramóti frestað
Barnakóramóti Hafnarfjarðar sem halda átti á morgun, 14. mars, í Víðistaðakirkju er frestað um óákveðinn tíma vegna veðurs. Ný dagsetning kynnt síðar. Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar.
Sigurvegarar í Stóru upplestrarkeppninni ljósir
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Hafnarfirði fór fram í Hásölum í dag en fresta þurfti keppninni vegna veðurs frá þriðjudeginum síðasta. Hátíðin var falleg og ljúf að venju og erfitt að velja sigurvegara. Sigurvegara varð þó að velja. Í þriðja sæti varð Gunnar Árnason úr Setbergsskóla og í öðru sæti Katla Sif Snorradóttir úr Áslandsskóla. Sigurvegari […]
Hönnun í Hafnarfirði
12.-15. mars verður lögð áhersla á hönnun í Hafnarfirði. Hafnarborg, Íshús Hafnarfjarðar og Litla Hönnunar Búðin taka þátt í Hönnunarmars og vill Hafnarfjarðarbær vekja athygli á gróskumikilli hönnun í bænum. Aðgangur ókeypis. Hafnarborg, Strandgötu 34 Á gráu svæði / Gray Area. Sýning á nýjum verkum skoska hönnuðarins David Taylor sem liggja á mörkum hönnunar og […]
Mikill áhugi fyrir lóðum í Hafnarfirði
Mikill áhugi var fyrir lóðinni Kirkjuvöllum 12 sem nýlega var auglýst laus til umsóknar. Sjö aðilar sóttu um að fá að byggja fjölbýlishús á lóðinni sem er í eldri hluta Vallahverfisins. Vellirnir hafa byggst hratt upp og nú búa þar um 4900 manns. Vellirnir eru hverfi sem hefur upp á allt að bjóða, á svæðinu […]