Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Frístundaakstur hefur verið felldur niður. Fólk hvatt til að sækja börn sín snemma á frístundaheimili sem verða þó opin. Íþróttafélög hafa verið hvött til að fella niður æfingar í dag. Sundlaugar bæjarins og bókasafnið lokar kl. 14. Þjónustuverið lokar kl. 15
Ákveðið hefur verið að fella niður frístundaakstur í Hafnarfjarðarbæ í dag. Fólk hvatt til að sækja börn sín snemma í frístundaheimili sem verða þó opin. Íþróttafélög hafa verið hvött til að gera viðeigandi ráðstafanir og fella niður æfingar í dag. Ástæðan er ofankoman og appelsínugul viðvörun.
Sjá tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á höfuðborgarsvæðinu:
Vegna áframhaldandi snjókomu á höfuðborgarsvæðinu er fólk eindregið hvatt til að halda sig heima og vera alls ekki á ferðinni að nauðsynjalausa. Gul viðvörun vegna veðurs er í gildi í umdæminu, en hún mun breytast í appelsínugula viðvörun kl. 17, en áfram er spáð mikilli snjókomu eða slyddu með lélegu skyggni. Fólk sem fór að heiman í morgun er beðið um að huga að heimferð sem allra, allra fyrst (mjög gott ef fólk er komið til síns heima fyrir kl. 15) því færðin og veðrið á bara eftir að versna eftir því sem líður á daginn. Áfram má búast miklum samgöngutruflununum og fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám. Þetta er dagurinn og kvöldið til að vera heima og hafa það notalegt, en ekki ana út í umferðina og sitja þar fastur! Fólk er beðið um að sækja ekki þjónustu í dag sem getur auðveldlega beðið betri tíma, t.d. sundlaugar og bókasöfn, en hvatt er til að þeim verði lokað. Nauðsynlegri þjónustu verður hins vegar haldið úti, t.d heilbrigðisstofnanir og ýmiss velferðarþjónusta.
Þá er það ítrekað, enn og aftur, að ökumenn á vanbúnum ökutækjum eiga alls ekki að vera í umferðinni í þessari miklu vetrarfærð. Þrátt fyrir aðvarnanir hefur borið mikið á því dag og hefur það ollið mjög miklum vandræðum. Vanbúin ökutæki verða fjarlægð á kostnað eigenda. Best er samt að allir sem mögulega geta haldi sig heima á meðan veðrið gengur yfir, óháð öllum dekkjabúnaði ökutækja.
Gangi ykkur vel í dag og megið þið öll komast örugg heim.
Vegna vegaframkvæmda verður Ásvallabraut (akbraut til vesturs) lokuð frá mánudeginum 10.nóvember kl.9:00, til þriðjudagsins 11.nóvember kl.18:00.
Íbúafundur verður haldinn í íþróttamiðstöð Hauka þriðjudaginn næsta 11. nóvember kl. 17. Þar verður farið yfir endurskoðun aðalskipulags Hafnarfjarðar 2025…
Lokun gatna á opnunartíma Jólaþorpsins. Í gildi frá 14.nóvember kl.17:00 til 23.desember kl.20:00.
Vegna flugeldasýningar verður Fjarðargata lokuð föstudaginn 21.nóvember milli kl.19:15-19:30.
Vegna kvikmyndatöku verður Strandgata milli Linnetsstígs og Bæjartorgs lokuð þriðjudaginn 11.nóvember milli kl.16:30-19:00.
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 5. nóvember. Formlegur fundur hefst kl. 14 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34.
Vegna vegaframkvæmda verður Kaldárselsvegur lokaður frá þriðjudeginum 4.nóvember kl.8:00, til miðvikudagsins 5.nóvember kl.18:00.
Vegna vegaframkvæmda verður gönguleiðum við Reykjavíkurveg 60-62 og Hjallahraun 2-4 lokað frá 1.nóvember 2025 kl.9:00 til 5.janúar 2026 kl.18:00.
Búist er við að viðvaranir falli niður á miðnætti. Aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins biður samt fólk mjög eindregið um að halda sig…
Frístundaakstur hefur verið felldur niður. Fólk hvatt til að sækja börn sín snemma á frístundaheimili sem verða þó opin. Íþróttafélög…