Bæjarráð

9. mars 2023 kl. 08:15

í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6

Fundur 3623

Mætt til fundar

  • Valdimar Víðisson formaður
  • Kristinn Andersen aðalmaður
  • Guðmundur Árni Stefánsson aðalmaður
  • Sigrún Sverrisdóttir aðalmaður
  • Jón Ingi Hákonarson áheyrnarfulltrúi
  • Rósa Guðbjartsdóttir varamaður

Einnig sat fundinn Sigurður Nordal sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.

Ritari

  • Ása Bergsdóttir Sandholt lögmaður á stjórnsýslusviði

Einnig sat fundinn Sigurður Nordal sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.

  1. Almenn erindi

    • 2302448 – Gallup, þjónusta sveitarfélaga 2022

      Þjónustukönnun. Kynning.
      Jóna Karen Sverrisdóttir hjá Gallup og Árdís Ármannsdóttir samskiptastjóri mæta til fundarins.

      Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna.
      Umræður.

    • 2303181 – Stofnun menningarhúss í Hafnarfirði

      Lagt fram erindi um stofnun Menningahúss í Hafnarfirði.

      Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við fulltrúa áhugahóps um stofnun Menningarhúss í Hafnarfirði

    • 2303193 – Kiwanisklúbburinn Hraunborg, skákmót grunnskóla í Hafnarfirði

      Lagt fram erindi frá Kiwanisklúbbnum Hraunborg, kynning á fyrirhuguðu skákmóti grunnskóla.

      Bæjarráð fagnar fyrirhuguðu skákmóti meðal nemenda í 5. ? 7. bekk í grunnskólum Hafnarfjarðar.
      Samþykkt að bærinn styðji við verkefnið eins og óskað er eftir í erindinu.

    • 2303270 – Kleifarvatn, samningur um veiði og fiskirækt

      Endurnýjun samnings við Stangveiðifélag Hafnarfjarðar.
      Sigurður Haraldsson sviðsstjóri mætir til fundarins.

      Bæjarráð samþykkir að samningur við stangveiðifélag Hafnarfjarðar verði endurnýjaður. Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi.

    • 1405419 – Hlíðarbraut 2, lóðarleigusamningur

      Endurnýjun lóðarleigusamnings. Sigurður Haraldsson sviðsstjóri mætir til fundarins.

      Bæjarráð samþykkir framlagðan lóðaleigusamning.

    • 2302570 – Eyrartröð 7-9, endurnýjun lóðarleigusamnings

      Endurnýjun lóðarleigusamnings. Sigurður Haraldsson sviðsstjóri mætir til fundarins.

      Bæjarráð samþykkir framlagðan lóðaleigusamning.

    • 2212007 – Unnarstígur 3, breyting á deiliskipulag

      Lögð fram umsókn um lóðarstækkun. Umsögn skipulags- og byggingasviðs liggur fyrir. Sigurður Haraldsson sviðsstjóri mætir til fundarins.

      Skipulags- og byggingarsviði falið að leita lausna með eigendum þannig húsið komist með góðu móti innan lóðarinnar eins og bent er á í umsögn.

    • 2209096 – Lækjargata 11, lóðarstækkun

      Lögð fram umsókn um lóðarstækkun. Umsögn skipulags- og byggingarsviðs liggur fyrir. Sigurður Haraldsson sviðsstjóri mætir til fundarins.

      Bæjarráð samþykkir lóðarstækkun.

    • 2001560 – Húsnæði stjórnsýslunnar

      Til umræðu. Sigurður Haraldsson sviðsstjóri mætir til fundarins.

      Til umræðu.

    • 2301148 – Fornubúðir, 14 lóðamál

      1.liður úr fundargerð hafnarstjórnar frá 21.febrúar sl.
      Lagt fram nýstaðfest deiliskipulag fyrir lóðirnar Fornubúðir 14 og Fornubúðir 14A. Jafnframt lögð fram drög að lóðaleigusamningum fyrir lóðirnar Fornubúðir 14 og Fornubúðir 14A.

      Hafnarstjórn samþykkir að leggja til við bæjarráð að samþykkja fyrirliggjandi lóðasamninga við Hafnarfjarðarhöfn kt. 590169-5529 fyrir lóðina Fornubúðir 14 og við Skeljung ehf. kt. 630921-2010 fyrir lóðina Fornubúðir 14A.

      Bæjarráð samþykkir framlagaða lóðarleigusamninga.

    • 2303307 – Tunguhella 15 og 17, ósk um vilyrði

      Lögð fram beiðni um lóðarvilyrði.

      Bæjarráð samþykkir að veita vilyrði fyrir lóðunum sem að Tunguhellu 15 og 17. Vilyrðið er veitt fyrir þá uppbyggingu sem fram kemur í umsókn. Endanleg úthlutun lóða getur ekki farið fram fyrr en að lokinni skipulagsvinnu og að fengnu samþykki sveitarstjórnar.

    • 0809072 – Hjallabraut 33, kosning í húsfélag

      Til umræðu.

      Til umræðu.

    • 2302625 – Næturstrætó

      Til umræðu.

      Til umræðu.
      Meirihluti bæjarráðs leggur fram eftirfarandi bókun:
      Meirihluti bæjarráðs veit að næturstrætó er góð þjónusta en hún var lögð af í stjórn Strætó í fyrra vegna mikilla rekstrarörðugleika byggðasamlagsins Strætó, sem liður í hagræðingaraðgerðum. Þjónustan var tekin upp á sínum tíma meðal annars af tilstuðlan núverandi meirihlutaflokka í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Fullur hugur er á að skoða málið áfram með nágrannasveitarfélögunum og fá upplýsingar um reynsluna af næturstrætó hjá Reykjavíkurborg eftir að borgin tók aksturinn upp á nýjan leik. En þegar rekstur Strætó hefur verið eins þungur og raun ber vitni þarf að ígrunda vel ráðstöfun fjármuna og hvenær réttlætanlegt er að bæta við þjónustuna.

      Fulltrúi Viðreisnar leggur fram eftirfarandi bókun:
      Fulltrúi Viðreisnar telur að fara eigi strax í þá vinnu að koma hér á næturstrætó. Þetta er mikið hagsmunamál ungs fólks. Kostnaður er áætlaður 12 til 15 milljónir á ári. Með því að fá Kópavog og Garðabæ með í verkefnið lækkar þessi upphæð verulega. Það að leggja 15 milljónir á ári í Áfangastofu Höfuðborgarinnar án kröfu um um sérstakan ávinning sýnir að til er fé. Fulltrúi Viðreisnar skorar á meirihlutann að koma á þessari mikilvægu þjónustu.

      Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
      Málið er tekið upp að frumkvæði fulltrúa Samfylkingarinnar. Enginn vilji virðist liggja fyrir hjá meirihlutanum, að taka af skarið og hefja akstur næturstrætó, sem myndi að líkindum kosta bæjarfélagið rúmar fimm milljónir króna nettó. Engin greiningarvinna hefur átt sér stað milli funda af hálfu meirihlutans. Áhuginn er enginn.
      Það eru vonbrigði. Hér er um að ræða þjónustu sem eykur öryggi og þjónustu, ekki síst gagnvart unga fólkinu í bænum.

    • 2208659 – Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2023 og 2024-2026

      Til umræðu.

      Til umræðu.

      Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
      Fulltrúar Samfylkingarinnar setja málið á dagskrá og spyrja um mótvægisaðgerðir meirirhlutans vegna tekjuvöntunar á fjárhagsáætlun upp á tæpar 180 milljónir, sem leiddu af minni hækkun fasteignagjalda af völdum reikningsskekkju hjá bænum. Uplýst er að ennþá hefur engin vinna hafist við að grípa til mótvægisaðgerða af hálfu meirihlutans, þ.e. hvernig bregðast skuli við þessu “gati” í fjárhagsáætlun bæjarins 2023.

      Meirihluti bæjarráðs leggur fram eftirfarandi bókun.
      Unnið er að málinu á fjármálasviði og verður útfærslan kynnt í næsta viðauka við fjárhagsáætlun, eins og greint hefur verið frá hér á þessum fundi. Fullyrðingar Samfylkingarinnar dæma sig sjálfar.

    • 2303286 – Ráðning æðstu stjórnenda skv.56. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138 árið 2011 og 80. gr. samþykktar um stjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar nr. 240 árið 2021

      Lagt fram drög að erindisbréfi valnefndar.

      Til umræðu.

    Fundargerðir

    • 2010458 – Kolefnisförgun í Straumsvík, Kolefnisförgunarver, Carbfix Coda Terminal

      Lögð fram fundargerð starfshópsins frá 30.janúar sl.

      Til umræðu.

    • 2302015F – Hafnarstjórn - 1635

      Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 21.febrúar sl.

    • 2301155 – Heilbrigðiseftirlit, fundargerðir 2023.

      Lögð fram fundargerð heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes frá 6.mars sl.

    • 2302025F – Menningar- og ferðamálanefnd - 404

      Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 1.mars sl.

    • 2301150 – Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerðir 2023

      Lögð fram fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28.febrúar sl.

    • 2301151 – Stjórn SSH, fundargerðir 2023

      Lagðar fram fundargerðir stjórnar SSH frá 3. og 20.febrúar sl.

    • 2301153 – Sorpa bs, fundargerðir 2023.

      Lagðar fram fundargerðir stjórnar SORPU b. frá 24.janúar og 14.febrúar sl.

    • 2301152 – Strætó bs, fundargerðir 2023

      Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 24.febrúar sl.

Ábendingagátt