Skipulags- og byggingarráð

1. desember 2009 kl. 08:15

í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6

Fundur 239

Ritari

  • Ólafur Helgi Árnason skrifstofustjóri
  1. Almenn erindi

    • SB040377 – Fundargerðir skipulags- og byggingarfulltrúa

      Lagðar fram fundargerðir frá afgreiðslufundum skipulags- og byggingarfulltrúa 18.11.2009 og 25.11.2009.

      <DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;A-hluti fundargerðanna fer til samþykktar bæjarstjórnar.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

    • 0810265 – Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2001-2024, Græni trefillinn, breytt skilgreining.

      Tekinn fyrir að nýju tölvupóstur dags. 25.08.2009 frá Haraldi Sigurðssyni verkefnisstjóra á skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkurborgar ásamt fylgigögnum, sem fjalla um athugasemdir við svæðisskipulagsbreytingu varðandi Græna trefilinn. Lagt er til að Hafnarfjarðarbær samþykki breytinguna. Lagður fram tölvupóstur frá Haraldi Sigurðssyni dags. 21.11.2009, þar sem fram kemur að samþykkt bæjarstjórnar þurfi fyrir erindinu. Sviðsstjóri vék af fundi við afgreiðslu málsins.

      <DIV&gt;<DIV&gt;Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:</DIV&gt;<DIV&gt;“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir tillögu að breytingu á Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001 – 2024, varðandi Græna trefilinn dags. 16.02.2009.</DIV&gt;</DIV&gt;

    • SB040347 – Umhverfisnefnd/staðardagskrá 21

      Lögð fram fundargerð umhverfisnefndar/Staðardagskrár 21 frá 30.11.2009.

      <DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Lagt fram.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

    • 0911556 – Krýsuvík deiliskipulag fyrir rannsóknarborholur

      Lögð fram tillaga VSÓ ráðgjafar f.h. HS-Orku að deiliskipulagi svæðis fyrir rannsóknarborholur í Krýsuvík, dags. 24.11.2009 ásamt tillögu að matslýsingu.

      <DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<P&gt;Skipulags- og byggingarráð samþykkir að deiliskipulagstillagan verði auglýst samkv. 1. mgr.&nbsp;26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð&nbsp;gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:</P&gt;<P&gt;“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að deiliskipulagi svæðis fyrir rannsóknarborholur í Krýsuvík dags. 24.11.2009 ásamt tillögu að matslýsingu verði auglýst skv. 1. mgr.&nbsp;26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.“<BR&gt;</P&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

    • 0903036 – Aðalskipulag Hafnarfjarðar, breyting Sléttuhlíð

      Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs dags. 04.03.2009 að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 – 2025 hvað varðar aukningu byggðar í Sléttuhlíð. Textabreyting. Skipulagstillagan var auglýst 24.08.2009 skv. 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og lauk athugasemdafresti 09.10.2009. Athugasemdir bárust. Lögð fram endurskoðuð samantekt skipulags- og byggingarsviðs dags. 20.11.2009 á innkomnum athugasemdum og tillaga að svörum við þeim.

      <DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Skipulags- og byggingarráð&nbsp;tekur undir umsögn skipulags- og byggingarsviðs. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 – 2025 hvað varðar aukningu byggðar í Sléttuhlíð&nbsp;dags. 04.03.2009 og að málinu verði lokið skv. 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.“<BR&gt;&nbsp;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

    • 0905031 – Gunnarssund 9, deiliskipulagsbreyting

      Tekið fyrir að nýju erindi Arks ehf sem leggur fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar fyrir lóðina skv. uppdrætti Jon Nordsteien dags. 06.05.2009. Erindið hefur verið grenndarkynnt skv. 2. mgr. 26. gr skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Athugasemdir bárust. Deiliskipulagið var samþykkt af skipulags- og byggingarráði 07.07.2009, en fellt úr gildi af Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála vegna formgalla á kynningu þess. Skipulags- og byggingarráð samþykkti 20.10.2009 að auglýsa tillöguna skv. 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga. Auglýsingartíminn er frá 22.10.2009 – 20.11.2009, og lýkur athugasemdafresti 07.12.2009. Sviðsstjóri gerir grein fyrir kynningarfundi um deiliskipulagstillöguna 23.11.2009.

      <DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Lagt fram.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

    • 0812152 – Selvogsgata 1, byggingarleyfi

      Lagt fram bréf Bjögvins Þórðarsonar Lex lögmannsstofu f.h. íbúa að Brekkugötu 26 dags. 24.11.2009, þar sem gerð er athugasemd við framkvæmdir við Selvogsgötu 1, þar sem steypt er fyrir glugga í kjallaraíbúð Brekkugötu 1. Gerð er athugasemd við þau gögn sem fylgdu grenndarkynningunni.

      <DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Komið hefur í ljós að&nbsp;vafasamt er að&nbsp;uppdrættir þeir sem sendir voru í grenndarkynningu fyrir viðbyggingu við Selvogsgötu 1 uppfylli ákvæði gr. 18.3 í&nbsp;byggingarreglugerð nr. 441/1998 m. s.br.&nbsp;Óvíst er því hvort útsend gögn hafi uppfyllt kröfur sem gera verður til hönnunargagna, þannig að nágrannar gætu gert&nbsp;sér grein fyrir áhrifum breytinganna á hús sitt. Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að leita álits Skipulagsstofnunar um&nbsp;það í samræmi við 4. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br., og biðja um flýtimeðferð á málinu. Skipulags- og byggingarráð gerir eiganda Selvogsgötu 1 skylt að stöðva tímabundið&nbsp;framkvæmdir við vegginn að Brekkugötu 26&nbsp;þar til&nbsp;álit Skipulagsstofnunar liggur fyrir. Eigandi framkvæmda getur komið að athugasemdum hjá Skipulagsstofnun og/eða Skipulags- og byggingarsviði vegna þessarar ákvörðunar.</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

    • 0712080 – Miðbær - Hraun, deiliskipulag

      Tekið fyrir að nýju deiliskipulag svæðis sem afmarkast af Flatahrauni, Álfaskeiði, Arnarhrauni og Reykjavíkurvegi. Áður lagður fram uppdráttur Arkitektur.is dags. 07.05.01 og drög að skipulagsskilmálum dags. 03.05.01. Skipulags- og byggingarráð fól skipulags- og byggingarsviði 18.12.2007 að vinna áfram að deiliskipulaginu. Lagður fram endurskoðaður uppdráttur og skipulagsskilmálar Arkitektur.is dags. 15. október 2009. Páll Tómasson Arkitektur.is mætir á fundinn og kynnir.

      <DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Skipulags- og byggingarráð þakkar Páli Tómassyni fyrir kynninguna. </DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

    • 0902008 – Námur, stefnumótun, starfshópur

      Framkvæmdasvið kynnir niðurstöðu starfshópsins fyrir Skipulags- og byggingarráði jafnframt því sem óskað er eftir umsögn ráðsins.

      <DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Skipulags- og byggingarráð þakkar Helgu Stefánsdóttur fyrir kynninguna.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

    • 0702005 – Aðalskipulag Hafnarfjarðar, raflínur og tengivirki.

      Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 18.11.2009 varðandi auglýsingu á breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 – 2025 hvað varðar Suðvesturlínur í Hafnarfirði.

      <DIV><DIV><DIV><DIV>Lagt fram. </DIV><DIV>&nbsp;</DIV><DIV>Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að taka saman athugasemdir og svör við bréfi Skipulagsstofnunar og leita umsagnar þeirra aðila sem Skipulagsstofnun vísar til.</DIV></DIV></DIV></DIV>

    • 0911594 – Alcan - Rio Tinto

      Sviðsstjóri gerir grein fyrir viðræðum við fulltrúa Alcan – Rio Tinto 16.11.2009.

      &lt;DIV&gt;&lt;DIV&gt;&lt;DIV&gt;&lt;DIV&gt;&lt;DIV&gt;Skipulags- og byggingarráð felur sviðsstjóra að gera grein fyrir viðræðunum&nbsp;á næsta&nbsp;fundi&nbsp;Bæjarráðs.&lt;/DIV&gt;&lt;DIV&gt;&nbsp;&lt;/DIV&gt;&lt;/DIV&gt;&lt;/DIV&gt;&lt;/DIV&gt;&lt;/DIV&gt;

    • 0906057 – Náttúruverndaráætlun 2009-2013, tillaga til þingsályktunar

      Umhverfisnefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um náttúruverndaráætlun 2009-2013. Tillagan var send til umsagnar á 136. og 137. löggjafarþingi, og er umsagnaraðilum gefinn kostur á að leggja fram nýja umsögn fyrir 30.11.2009 eða láta fyrri umsögn gilda.

      <DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Trausti Baldursson vék af fundi við afgreiðslu málsins.</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Skipulags- og byggingarráð ákveður að láta fyrri umsögn dags, 19.06. 2009&nbsp;gilda.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

    • 0911585 – Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2001-2024, Mosfellsbær

      Lagt fram bréf Haraldar Sverrissonar bæjarstjóra dags. 24.11.2009 ásamt tillögu að óverulegri breytingu á Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001 – 2024, stækkun athafnasvæðis á tungumelum. óskað er eftir athugasemdum fyrir 24.12.2009.

      <DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að&nbsp;vinna&nbsp;drög að umsögn um tillöguna.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

    • 0901233 – Aðalskipulag Grindavíkur 2000-2020, Vatnskarðsnámur og Suðurstrandavegur

      Lagt fram bréf Ingvars Þórs Gunnlaugssonar forstöðumanns tæknideildar Grindavíkur, þar sem óskað er umsagnar um tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Grindavíkur 2000 – 2020 vegna breyttrar legu Suðurstrandarvegar ásamt umhverfisskýrslu. Tillagan er í auglýsingu og er athugasemdafrestur almennings til 30.12.2009.

      <DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að gera&nbsp;drög að umsögn um tillöguna.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

    • 0911591 – Fjárhagsáætlun 2010 Skipulags- og byggingarsvið

      Sviðsstjóri leggur fram drög að fjárhagsáætlun 2010 og langtímaáætlun fyrir 2010 – 2012 áætlun um skipulagsvinnu 2010 – 2012 og stöðu verkefna 2009.

      &lt;DIV&gt;&lt;DIV&gt;Lagt fram.&lt;/DIV&gt;&lt;/DIV&gt;

    • 0903127 – Bæjarmörk Hafnarfjarðar og Garðabæjar við Hrafnistu

      Sviðsstjóri gerði áður grein fyrir viðræðum við skipulagsstjóra Garðabæjar varðandi breytingu á sveitarfélagsmörkum Hafnarfjarðar og Garðabæjar vegna nýbyggingar Hrafnistu og annarra minniháttar breytinga. Áður lagður fram uppdráttur skipulags- og byggingarsviðs með hugsanlegri breytingu við Hrafnistu. Lagður fram tölvupóstur frá Arinbirni Vilhjálmssyni skipulagsstjóra Garðabæjar dags. 26.11.2009 varðandi afgreiðslu bæjarráðs Garðabæjar á erindinu.

      <DIV&gt;<DIV&gt;Lagt fram.</DIV&gt;</DIV&gt;

    • 0901130 – Reykjavíkurvegur 50, breyting verslun

      Lagðar höfðu verið á dagsektir, þar sem byggingarleyfi hafði verið samþykkt með fyrirvara um að leiðréttum gögnum (skráningartöflu) yrði skilað inn. Þau gögn hafa nú borist og telst því dagsektarmáli þar með lokið.

      <DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Lagt fram. </DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

    • 0905152 – Hvaleyrarbraut 35, ólögleg búseta.

      Borist hafa upplýsingar um ólöglega búsetu í húsinu. Einnig að húsið sé enn skráð á byggingarstigi 1 og að lögboðnar úttektir hafi ekki farið fram, þar á meðal fokheldisúttekt. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 20.05.2009 eigendum skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Svar barst ekki. Skipulags- og byggingarfulltrúi vísaði 10.06.2009 málinu til skipulags- og byggingarráðs. Skipulags- og byggingarráð gerði 23.06.2009 eigendum skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Bærust þær ekki innan þess tíma mundi skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um að beitt verði dagsektum skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 þar til bætt verður úr. Skipulags- og byggingarráð féllst á að veita frest til septembermánaðar. Frekari skýringar bárust ekki að þeim tíma liðnum. Greint frá fundi skipulags- og byggingarsviðs með Ívari Erlendssyni fulltrúa eigenda hússins, sem neitaði því að þar væri búseta, en varnaði skoðunarmanni inngöngu til að sannreyna það. Skipulags- og byggingarráð gerði 20.10.2009 kröfu um að byggingarstjóri verði settur á húsið innan tveggja vikna og boði þá þegar til stöðuúttektar. Einnig gerði skipulags- og byggingarráð þá kröfu að eftirlitsmanni skipulags- og byggingarsviðs verði tafarlaust veittur aðgangur til að sannreyna hvort búseta sé í húsinu. Yrði ekki brugðist við hvoru tveggja innan tveggja vikna mundi skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um að beitt verði dagsektum í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Ekki hefur verið brugðist við erindinu.

      <DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:</DIV&gt;<DIV&gt;“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að lagðar verði dagsektir á húseiganda kr. 50.000 á dag frá og með 1. janúar 2010 verði ekki brugðist við því erindi að setja byggingarstjóra á verkið, leggja inn reyndarteikningar að húsinu, sækja um lögboðnar úttektir&nbsp;og&nbsp;veita skoðunarmanni skipulags- og byggingarfulltrúa aðgang að húsinu til að sannreyna hvort þar sé búseta.“</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

    • 0910988 – Burknavellir 1 A,B,C, lokaúttekt

      Lagt fram erindi húsfélagsins að Burknavöllum 1 A, B og C dags. 03.10.2009 þar sem þess er farið á leit að skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 07.10.2009 byggingarstjóra skylt að sækja um lokaúttekt á húsinu innan fjögurra vikna í samræmi við grein 53.1 í byggingarreglugerð. Yrði ekki brugðist við þessu mundi skipulags- og byggingarfulltrúi vísa málinu til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 18.11.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: „Skipulags- og byggingarráð gerir byggingarstjóra hússins skylt að sækja um lokaúttekt á húsinu innan fjögurra vikna í samræmi við grein 53.1 í byggingarreglugerð. Verði ekki brugðist við þessu mun skipulags- og byggingarráð vísa málinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.“

      <DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Skipulags- og byggingarráð gerir byggingarstjóra hússins skylt að sækja um lokaúttekt á húsinu innan fjögurra vikna í samræmi við grein 53.1 í byggingarreglugerð. Verði ekki brugðist við þessu mun skipulags- og byggingarráð vísa málinu til&nbsp;bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

    • 0908111 – Furuvellir 3 og 5, lóðarmörk

      Björg Gunnarsdóttir Furuvöllum 5 gerir með bréfi dags. 15.08.2009 athugasemd við opna geymslu á lóðamörkum, sem reist hefur verið án leyfis. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði á sínum tíma athugasemd við skúr sem reistur var án leyfis á lóðinni utan byggingarreits. Ítrekun barst 12.11.2009. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 19.08.2009 eiganda Furuvalla 3 skylt að fjarlægja hin ólögmætu mannvirki, sem eru brot á 11. og 67. greinum byggingarreglugerðar. Yrði ekki brugðist við þessu innan tveggja vikna mundi skipulags- og byggingarfulltrúi gera tillögu til skipulags- og byggingarráðs um beitingu dagsekta í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 18.11.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: „Skipulags- og byggingarráð gerir eiganda Furuvalla 3 skylt að fjarlægja hin ólögmætu mannvirki, sem eru brot á 11. og 67. greinum byggingarreglugerðar. Verði ekki brugðist við þessu innan tveggja vikna mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um beitingu dagsekta í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.“

      <DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Skipulags- og byggingarráð gerir eiganda Furuvalla 3 skylt að fjarlægja hin ólögmætu mannvirki, sem eru brot á 11. og 67. greinum byggingarreglugerðar. Verði ekki brugðist við þessu innan tveggja vikna mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til&nbsp;bæjarstjórnar um beitingu dagsekta í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

    • 0804310 – Miðvangur 41 íbúð 205, breytingar

      Borist hafa athugasemdir frá stjórn húsfélagsins Miðvangi 41 dags. 22.04.2008 þar sem segir að ólöglegar framkvæmdir séu í gangi í íbúð 205. Við vettvangsskoðun hefur komið í ljós að verið er að framkvæma breytingar án tilskilins leyfis. Íbúðareiganda var 14.05.2008 gert að stöðva framkvæmdir þá þegar í samræmi við 56 gr. skipulags- og byggingarlaga. Samkvæmt upplýsingum er búið að opna milli stofu og svala og verið að endurgera íbúðina. Skipulags- og byggingarfulltrúi óskaði 06.05.2009 eftir teikningum sem sýna umræddar framkvæmdir, einkum hvort breytt hafi verið burðarvirki hússins. Ekkert svar barst. Skipulags- og byggingarráð gerði íbúðareiganda 11.08.2009 skylt að skila inn teikningum af breytingunum innan 4 vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarráð leggja til við bæjarstjórn að beitt verði dagsektum í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

      <DIV&gt;<DIV&gt;Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:</DIV&gt;<DIV&gt;“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að lagðar verði dagsektir á íbúðareiganda kr. 30.000 krónur á dag frá og með 1. janúar 2009, verði ekki brugðist við erindinu fyrir þann tíma.“</DIV&gt;</DIV&gt;

    • 0910333 – Arnahraun 21 íbúð 0101, ólögleg búseta

      Borist hefur vitneskja um búsetu í ólöglegri íbúð í geymslu í sameign Arnarhrauns 21, sem auk þess uppfyllir ekki ákvæði byggingarreglugerðar. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 07.10.2009 eiganda geymslunnar skylt að ljúka búsetu þar innan fjögurra vikna og fjarlægja allar breytingar sem eru án byggingarleyfis. Yrði ekki brugðist við þessu innan þess tíma mundi skipulags- og byggingarfulltrúi vísa erindinu til Skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 18.11.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: „Skipulags- og byggingarráð gerir eiganda geymslunnar skylt að ljúka búsetu þar innan fjögurra vikna og fjarlægja allar breytingar sem eru án byggingarleyfis. Verði ekki brugðist við þessu innan þess tíma mun skipulags- og byggingarráð vísa erindinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.“

      <DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Skipulags- og byggingarráð gerir eiganda geymslunnar skylt að ljúka búsetu þar innan fjögurra vikna og fjarlægja allar breytingar sem eru án byggingarleyfis. Verði ekki brugðist við þessu innan þess tíma mun skipulags- og byggingarráð vísa erindinu til&nbsp;bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

Ábendingagátt