Skipulags- og byggingarráð

6. október 2020 kl. 08:30

í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg

Fundur 716

Mætt til fundar

  • Ólafur Ingi Tómasson formaður
  • Ágúst Bjarni Garðarsson varaformaður
  • Lovísa Björg Traustadóttir aðalmaður
  • Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður
  • Sigurður Pétur Sigmundsson aðalmaður
  • Gísli Sveinbergsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurjón Ingvason varaáheyrnarfulltrúi

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Berglind Guðmundsdóttir arkitekt og Ívar Bragason lögmaður á stjórnsýslusviði.
Í fjarfundi sátu Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.

Bæjarstjórn samþykkti samhljóða þann 18. mars 2020 með vísan VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011 að heimilt sé að halda fundi bæjarstjórnar, ráða og nefnda í fjarfundi. Heimild til fjarfunda var endurnýjuð í bæjarstjórn þann 19.8.2020.

Ritari

  • Anna María Elíasdóttir skrifstofustjóri

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Berglind Guðmundsdóttir arkitekt og Ívar Bragason lögmaður á stjórnsýslusviði.
Í fjarfundi sátu Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.

Bæjarstjórn samþykkti samhljóða þann 18. mars 2020 með vísan VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011 að heimilt sé að halda fundi bæjarstjórnar, ráða og nefnda í fjarfundi. Heimild til fjarfunda var endurnýjuð í bæjarstjórn þann 19.8.2020.

  1. Almenn erindi

    • 2001456 – Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2021 og 2022-2024

      Tekin til umræðu fjárhagsáætlun 2021 og gjaldskrá fyrir árið 2021. Lögð fram áætlun fyrir aðkeypta skipulagsvinnu 2020-2023.

      Tekið til umræðu.

    • 1709249 – Samþykktir um stjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar

      Lagt fram til kynningar

      Lagt fram til kynningar.

    • 1701175 – Selhraun suður, breyting á deiliskipulagi

      Lagt fram á ný erindi Norðurhellu 13 um breytingu á skipulagi svæðisins. Umsögn skipulagsfulltrúa lögð fram.

      Skipulags og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagssviði að vinna tillögu að breyttu aðalskipulagi með það að markmiði að breyta landnotkun fyrir lóðirnar Norðurhellu 13-15-17-19 og Suðurhellu 12-14 í blandaða byggð atvinnu- og íbúðarhúsnæðis og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

    • 2008009 – Hvaleyri , golfklúbburinn Keilir, breyting á deiliskipulagi

      Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 11. ágúst sl. var samþykkt að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Golfklúbbsins Keilis, erindinu var vísað til staðfestingar í bæjarsjórn sem staðfesti afgreiðslu ráðsins. Auglýsingatíma er lokið. Athugasemdir bárust.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir deiliskipulagsbreytinguna með vísan í umsögn umhverfis- og skipulagssviðs. Erindinu er jafnframt vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.

    • 2007341 – Sléttuhlíð, deiliskipulagsbreyting

      Erindið var tekið fyrir á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 22. september sl. og óskað var eftir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs. Umsögn dags. 1. október lögð fram.

      Samkvæmt umsögn umhverfis- og skipulagssviðs eru verulegir vankantar á að teikningum hafi verið skilað inn fyrir sumarhús í Sléttuhlíð einnig kemur fram að ekki sé ljóst hvernig staðið sé að skolpmálum á svæðinu. Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagssviði að leggja fram gögn um stöðu samþykktra byggingarnefndarteininga svo og ástands á fráveitu/rotþróm í Sléttuhlíð. Afgreiðslu erindis er frestað þar til umbeðin gögn liggja fyrir.

    • 2009429 – Skarðshlíð 3. áfangi, breyting á deiliskipulag

      Hafnarfjarðarkaupstaður sækir þann 16.9.2020 um breytingu á deiliskipulagi Skarðshlíðar 3. áfanga. Breytingin snýr að niðurfellingu á helgunarsvæði fyrir raflínur.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

    • 1701084 – Hamranes I, nýbyggingarsvæði

      Lögð fram rammaáætlun vegna Hamranes.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagða rammaáætlun Hamraness og vísar til samþykktar í bæjarstjórn.

    • 2009443 – Suðurgata 36, deiliskipulag

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa vísar umsókn Kristins Ragnarssonar f.h. eigenda dags. 15.9.2020 um breytt deiliskipulag til skipulags- og byggingarráðs. Tillaga að breyttu deiliskipulagi gerir ráð fyrir fjölgun íbúða þ.e. að á jarðhæð verði heimilað að fá samþykktar
      tvær íbúðir þannig að íbúðum á lóð fjölgi úr tveimur íbúðum í þrjár.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Suðurgötu og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn. Tillagan verður auk þess grenndarkynnt aðliggjandi lóðarhöfum.

    • 1909118 – Hlíðarbraut 10, þétting byggðar

      Skipulags- og byggingarráð fól umhverfis- og skipulagssviði á fundi sínum þann 22.9.2020 að svara framkomnum athugasemdum Skipulagsstofnunar dags. 27.8.2020. Svar skipulagsfulltrúa dags. 02.10.2020 lagt fram.

      Skipulags- og byggingarráð tekur undir svar skipulagsfulltrúa.

    • 1809389 – Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2013-2025, endurskoðun

      Lögð fram skipulagslýsing vegna endurskoðunar aðalskipulags Hafnarfjarðar 2013-2025.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að skipulagslýsingin fari til kynningar og umsagnar samkvæmt kafla „4.3 ÁBENDINGAR OG ATHUGASEMDIR VIÐ LÝSINGU“ Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagssviði að hefja undirbúning og kostnaðargreiningu að gerð vinnslutillögu aðalskipulagsins. Skipulagslýsing vegna endurskoðunar aðalskipulags Hafnarfjarðar 2013-2025 er auk þess vísað til bæjarstjórnar.

    • 1801074 – Smyrlahraun 41a

      Bæjarráð samþykkti þann 14.3.2020 að í stað byggingar leikvallar/leikskóla á lóðinni yrði byggður búsetukjarni fyrir fatlað fólk og vísaði til afgreiðslu umhverfis- og skipulagssviðs. Fjölskylduráð óskaði eftir lóðinni fyrir búsetukjarna þann 14.9.2018.

      Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að vinna áfram að málinu.

    • 2010043 – Áform um friðlýsingu Urriðakotshrauns í Garðabæ

      Lagt fram bréf Umhverfisstofnunar dags. 29. sept 2020 umn áform um friðlýsingu Urriðakotshrauns.

      Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs.

    • 1808180 – Fornubúðir 5, skipulagsbreyting

      Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 30.06.2020 var samþykkt óveruleg breyting á gildandi deiliskipulagi og að málsmeðferð yrði í samræmi við 2.mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Erindinu var jafnframt vísað til staðfestingar í bæjarstjórn. Komið hefur í ljós misritun í orðalagi. Rétt orðalag hljóðar svona: “Á lóðinni er gert ráð fyrir fyrirtækjum og stofnunum sem tengjast höfn, útgerð, hafrannsóknum og öryggismálum sjófarenda auk þjónustu við fyrirtæki og stofnanir á svæðinu. Að auki er fjölbreyttari landnotkun heimil, s.s. þjónustu- og menningarstarfsemi.”

      Skipulags- og byggingarráð staðfestir framlagða leiðréttingu orðalags.

    Fyrirspurnir

    • 1801069 – Umboðsmaður Alþingis, utangarðsfólk, húsnæðisvandi, frumkvæðisathugun

      Lagt fram erindi frá fjölskylduráði þar sem óskað er eftir heppilegri staðsetningu fyrir gámahús fyrir einstaklinga í húsnæðisvanda.

      Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að leggja fram tillögu að heppilegri staðsetningu.

    Fundargerðir

    • 1903229 – Miðbær, deiliskipulag, starfshópur

      Lögð fram fundargerð 20. fundar dags. 9.9.2020.

    • 2009018F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 812

      Lögð fram fundargerð 812 fundar.

    • 2009024F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 813

      Lögð fram fundargerð 813 fundar.

Ábendingagátt