Götulokanir við Víðistaðatún á almyrkvadeginum 12. ágúst

Tilkynningar

Götulokanir snerta Hraunbrún, Hellisgötu og Garðaveg á almyrkvadeginum 12. ágúst. Endilega skoðaðu kortið og sjáðu. Íbúar fá sérmeðferð.

Götulokanir í Hafnarfirði

Hafnarfjörður trekkir að miðvikudaginn 12. ágúst, á almyrkvadeginum. Búist er við sjö þúsund gestum á tónlistarhátíðina  Echolalia – Sólmyrkvahátíð Bjarkar & Smekkleysu sem haldin verður á Víðistaðatúni. Búast má við fyrstu gestum um hádegisbilið á túnið, en þá opnar svæðið.

Fjöldinn kallar á götulokanir við Víðistaðatún. Hér má sjá hvar lokanirnar verða:Nánari upplýsingar fyrir íbúa um viðburðinn er að finna hér á síðu Garcia Events, sem heldur þessa einstöku tónlistarhátíð.

  • Umferð um Hraunbrún verður lokuð fyrir almenna umferð en íbúum við Hraunbrún verður leyft að aka til og frá heimili sínum.
  • Hraunbrún verður alveg lokuð við gatnamót Hraunbrúnar og Garðavegs. Ekki verður hægt að keyra þar í gegn.
  • Þeir íbúar sem búa á Hraunbrún verða að koma frá Reykjavíkurvegi eða Hjallabraut til að keyra inn Hraunbrún. Ekki verður hægt að keyra inn á Hraunbrún frá Hellisgötu eða Garðavegi.
  • Frá 11:00 – 15:00 og 20:00-23:00 verður umferð stýrt um Hjallabraut og skert aðgengi um hana á meðan.

Já, við gerum þetta saman og búum til einstaka upplifun!

Ábendingagátt