Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti þann 31.08. 2022 tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 – Hafnarsvæði, þétting byggðar – Suðurhöfn, Flensborgarhöfn og Hamarshöfn. Tillagan var auglýst frá 16.03. til 27.04. 2022 skv. 1.mgr. 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skv. lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Athugasemdir bárust og hefur þeim sem gerðu athugasemdir, verið send umsögn bæjarstjórnar. Athugasemdir gáfu ekki tilefni til breytinga á tillögunni og hefur hún verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Hafnarfjarðar – netfang: skipulag@hafnarfjordur.is
Hafnarsvæði – þétting byggðar Suðurhöfn, Flensborgarhöfn og Hamarshöfn
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Breytingin felst í að Suðurhöfn H1 verður að hluta til íbúðasvæði ÍB15 og miðsvæði M6 og M7. Flensborgarhöfn H2 breytist í miðsvæði M5. Ný smábátahöfn og 5m strandræma verður H6.
Breytingartillagan ásamt umhverfisskýrslu verða til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6, hjá umhverfis- og skipulagssviði Hafnarfjarðar Norðurhellu 2 og hjá Skipulagsstofnun Borgartúni 7b í Reykjavík frá 16.03. til 27.04.2022.
er hægt er að skoða skipulagstillöguna hér:
Breyting á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 HAFNARSVÆÐI – ÞÉTTING BYGGÐAR Suðurhöfn, Flensborgarhöfn og Hamarshöfn
Aðalskipulag Hafnarfjarðar Suðurhöfn
BREYTING Á AÐALSKIPULAGI HAFNARFJARÐAR 2013-2025 – FLENSBORGARHÖFN OG HLUTI SUÐURHAFNAR
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingarnar og skal þeim skilað eigi síðar en 27.04.2022 á netfangið skipulag@hafnarfjordur.is eða skriflega í þjónustuver:
Hafnarfjarðarbær
bt. umhverfis- og skipulagssvið Strandgötu 6 220 Hafnarfjörður
Var efnið hjálplegt?