Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Vinnuskóli Hafnarfjarðar býður ungmennum í Hafnarfirði á aldrinum 14-17 ára upp á skemmtilega og fræðandi sumarvinnu. Vinnuskólinn er hugsaður sem fyrsti vinnustaður ungmenna þar sem þau læra hvernig það er að vera hluti af vinnumarkaðnum í öruggu starfsumhverfi.
Snýst ekki bara um verkefnin heldur líka samveru og félagsleg tengsl.
Vinnuskóli Hafnarfjarðar býður ungmennum í Hafnarfirði á aldrinum 14-17 ára upp á skemmtilega og fræðandi sumarvinnu. Vinnuskólinn er hugsaður sem fyrsti vinnustaður ungmenna þar sem þau læra hvernig það er að vera hluti af vinnumarkaðnum í öruggu starfsumhverfi. Vinnuskólinn snýst ekki einungis um verkefnin og vinnuna sjálfa heldur er hann líka hugsaður til að efla ungmennin félagslega, hjálpa þeim að viðhalda rútínu yfir sumartímann og draga úr líkum á einangrun með samveru með jafnöldrum. Vinnudagarnir eru brotnir upp með skemmtun, fræðslu, keppni um best hreinsuðu svæðin og sumarhátíð þegar líður á sumarið.
Fyrir og eftir myndir
1029 ungmenni við störf í vinnuskóla sumarið 2022
1029 ungmenni mættu til starfa í Vinnuskóla Hafnarfjarðar mánudaginn 13. júní og eru hóparnir almennt við störf til 28. júlí. Ungmennum er úthlutaður tími eftir aldri, frá 81 tíma yfir sumarið í 220 tíma. Daglegur vinnutími fer einnig eftir aldri. Viðmiðið er að 14-16 ára vinni þrjár klukkustundir á dag fjóra daga vikunnar og þá til skiptist fyrir og eftir hádegi eða frá kl. 9-12 og 13-16. Vinnutími hjá 17 ára er 6 klukkustundir á dag alla virka daga. Morgunhópur vinnur alla daga frá kl. 7-13.
Helstu og sýnilegu verkefni vinnuskólans
Helstu verkefni ungmenna í vinnuskólanum snúa að götu- og hverfahreinsun, hreinsun leikvalla og skólalóða auk annarra tilfallandi verkefna. Vinnuskólinn starfar undir stefnu skóla án aðgreiningar þar sem reynt er að koma til móts við mismunandi þarfir og áhuga nemenda. Nokkuð er um að ungmenni fari í sérverkefni sem felast meðal annars í aðstoð á íþrótta- og leikjanámskeiðum og stofnunum innan bæjarins. Með vinnu sinni fegrar og bætir starfsfólk vinnuskólans umhverfið um leið og þau þjálfast í vinnubrögðum sem skila sér út í samfélagið til framtíðar.
Oft þeirra fyrstu kynni af launuðu starfi
Í flestum tilfellum er um að ræða fyrstu kynni ungmennanna af launuðu starfi. Líkt og aðrir á starfsfólk Vinnuskólans rétt á bæði matar- og kaffitímum sem oftar en ekki eru teknir á vettvangi. Það er því ekki óeðlilegt að sjá til sitjandi ungmenna við næringu og hvíld. Eftir bestu getu er reynt að hafa fjölbreytni í verkefnum unglinganna, en slíkt ýtir undir ánægju í vinnunni. Hópunum er dreift í ýmis verkefni innan bæjarins en markmiðið er að hafa hópana ekki mjög langt frá heimilum sínum. Flokkstjóri er ávallt með sínum hóp og er hlutverk hans meðal annars að kenna ungmennunum rétt handtök við þau verk sem unnin eru, hvetja þau og efla og vera til staðar ef eitthvað er. Allir flokkstjórar Hafnarfjarðarbæjar fara í gegnum námskeið og fræðslu sem miðar að því að efla og styrkja starfsfólkið sem er 18 ára og eldra í því að stjórna og vera til staðar fyrir stóran hóp af ungmennum.
Hægt er að fylgjast með fréttum af starfi vinnuskólans á Facebook-síðu skólans hér: Vinnuskóli Hafnarfjarðar | Facebook
Félagsskapur Karla í skúrnum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…