Sorphirða
Í Hafnarfirði er fjórflokkun sorps við hvert heimili lögum samkvæmt; matarleifar, blandaður úrgangur, plast og pappír. Auk þess eiga íbúar að flokka gler, málma, textíl og skilagjaldsskyldar umbúðir en hægt er að losa það á grenndarstöðvum eða næstu endurvinnslustöð. Matarleifar og blandaður úrgangur er tæmdur á 14 daga fresti og plastumbúðir og pappír á 28 daga fresti.
Allar almennar upplýsingar um fjórflokkun heimilissorps má finna á vefnum www.flokkum.is.
Sértækar upplýsingar fyrir Hafnarfjörð má finna hér fyrir neðan.

Grátunnur - Dagsetningar:
Blátunnur - Dagsetningar:
Næsta losun á sorpi
Sláðu inn götuheiti og fáðu upp sorphirðudagatal fyrir það svæði.
Flokkun sorps
Í Hafnarfirði er fjórflokkun sorps við hvert heimili lögum samkvæmt; matarleifar, blandaður úrgangur, plast og pappír. Auk þess eiga íbúar að flokka gler, málma, textíl og skilagjaldsskyldar umbúðir sem hægt er að fara með á grenndarstöðvar eða næstu endurvinnslustöð.
Matarleifar
Í lífrænu tunnuna fara meðal annars:
- Eggjaskurn
- Matarleifar
- Kaffikorgur
- Fiskiúrgangur og bein
Lífrænn úrgangur er losaður á 14 daga fresti.

Blandaður úrgangur
Í tunnuna fyrir blandaðan úrgang fara meðal annars:
- Blautklútar
- Ryksugupokar
- Bleyjur
- Dömubindi
Blandaður úrgangur er tæmdur á 14 daga fresti.

Pappír og pappi
Í pappírstunnuna fara meðal annars:
- Dagblöð
- Bréfpokar
- Pítsakassar
- Fernur
Pappírstunnan er tæmd á 28 daga fresti.

Plastumbúðir
Í plasttunnuna fara meðal annars:
- Snakkpokar
- Plastfilmur
- Plastpokar
- Sjampóbrúsar
Plasttunnan er tæmd á 28 daga fresti.

Grenndarstöðvar
Gler, málmum, textíl og skilagjaldsskyldum umbúðum verður safnað á grenndarstöðvum.
- Litlar grenndarstöðvar eru á tveimur stöðum í Hafnarfirði. Þrjár bætast við sumarið 2024. Þar er hægt að henda gleri, málmi, textíl og skilagjaldskyldum umbúðum.
- Stórar grenndarstöðvar eru á fjórum stöðum í Hafnarfirði. Þar er hægt að henda plasti, gleri, málmi, textíl, pappír og pappa ásamt skilagjaldskyldum umbúðum.
Nýtt og snjallar hlutverk grendarstöðva
Skynjarar verða settir í alla grenndargáma til að tryggja tímanlega losun, og málmumbúðum og gleri verður safnað á öllum grenndarstöðvum. Nánar um nýtt og snjallar hlutverk grendarstöðva.
Spilliefni og stórir hlutir
Það má ekki setja spilliefni í ruslatunnur. Spilliefni, málmar, timbur og aðrir stórir og þungir hlutir sem skemmt geta tækjabúnað eiga að fara á endurvinnslustöðvar.
Spurt og svarað um nýtt flokkunarkerfi
Á síðunni flokkum.is má finna svör við algengum spurningum. Þar er hægt að kynna sér nánar nýtt flokkunarkerfi, grenndargáma og allt sem snýr að nýjum sorptunnum.
Fyrirkomulag sorpíláta
Hér má finna upplýsingar um fyrirkomulag sorpíláta í fjölbýlum og sérbýlum.
Það er á ábyrgð fasteignaeiganda og húsfélaga að sjá til að réttur fjöldi íláta í hverjum flokki sé til staðar.
Kaupa tunnur
Á Mínum síðum er hægt að kaupa nýjar 240L tunnur og panta losun á aukatunnum.
Hjá Þjónustumiðstöð er hægt að kaupa ný lok á tunnur (árgerð 2013 eða yngri) og fá nýja tappa. Fasteignaeigendur í Hafnarfirði eiga sín sorpílát og sjá um kaup, endurnýjun og viðhald þeirra.
Grenndargámar
Það eru grenndargámar á sex stöðum í Hafnarfirði. Á öllum stöðum eru gámar fyrir pappír, plast og gler, auk fatagáma frá RKÍ og flöskugáma frá Skátunum á einhverjum þeirra. Stór málmgámur er staðsettur við grenndarstöðina við Fjörð.
- Tjarnarvellir, við Bónus
- Hlíðarberg, við Iceland
- Miðvangur, við Nettó
- Hólshraun, við Fjarðarkaup
- Sólvangur, við Sólvang
- Fjarðargata, við Fjörð
Sorptunnugeymslur
Frágangur og umgengni um sorp skiptir miklu máli. Ýmsir aðilar bjóða upp á lausnir í þessum efnum.
Sorpgeymslur sem eru læstar skulu vera með samræmdum lás við kerfið sem Hafnarfjarðarbær notar. Lásana má nálgast til dæmis í Húsasmiðjunni, Lásahúsinu, Neyðarþjónustunni og Lásaþjónustunni.
Jarðvegslosun
Í Bolaöldum er heimilt að losa endurnýtanlegt, óvirkt jarðefni eins og mold, möl og grjót. Einnig má losa steinsteypubrot sem búið er að klippa af öll útistandandi járn og hreinsa af öðrum efnum, til dæmis einangrun, pappa og klæðningu.
Smærri farma úrgangs má fara með í Sorpu við Breiðhellu. Íbúar greiða ekki fyrir losun á úrgangi frá daglegum heimilisrekstri. Fyrirtæki greiða ekki fyrir endurvinnsluefni. Förgun grass, trjágreina og garðaúrgangs frá heimilum er gjaldfrjáls hjá Sorpu.