Leiðbeinandinn mun taka þig í gegnum ýmis sjónræn dæmi og stíla og kynna aðrar aðferðir við teikningu. Kynnt verða hefðbundin og óhefðbundin verkfæri við að skapa. Námskeiðið fer að stærstum hluta fram inni í stúdíói Heiðdísar sem unnið hefur að því að gera aðstöðuna fullkomna fyrir krakka þar sem þau geta sullað eins mikið og þau vilja og skemmt sér við að skapa sína eigin list.
VERKEFNI
Kennsluaðferðir kennara útskýrðar, efni og aðferðir kynntar.
Tilraunir með þurrum efnum
Tilraunir með blaut efni
Mixed media og abstrakt.
Að nota línu, tón, áferð, mælikvarða og samsetningu.
KENNARI
Heiðdís Helgadóttir er starfandi listamaður, hönnuður og arkitekt. Hún lærði listfræði við Háskóla Íslands og lauk í beinu framhaldi Arkitektúr við Listaháskóla Íslands. Heiðdís stofnaði sitt eigið fyrirtæki í kringum hönnun sína árið 2012 og hefur starfað við eigin list síðan og stækkar áhugi hennar á teikningu og hönnun dag frá degi. Sjá meira inni á www.heiddis.com
EFNI
Allt efni innifalið, málning, litir, penslar, pappír, svunta, og allt tilheyrandi. Ætlast er til að nemendur hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti.
Aðrar íþróttir og tómstundir
Sundskóli – sundnámskeið
Ýmis sundnámskeið eða sundskóli í boði fyrir allt frá byrjendum til lengra komna.
Sumarnámskeið Klifið
Klifið býður upp á fjölbreytt og skemmtileg sumarnámskeið fyrir börn sem elska að skapa og tjá sig í gegnum myndlist, teikningu, leiklist, söng, dans og stafræna sköpun. Við leggjum áherslu á gleði, tjáningu og öruggt umhverfi þar sem hvert barn…
Reiðnámskeið
Fákar og fjör í samstarfi við hestamannfélögin Sörla og Sóta bjóða upp á ævintýraleg, fræðandi og skemmtileg reiðnámskeið á Álftanesi! Sumarnámskeiðin eru fjölbreytt og henta börnum á ólíkum aldri og getustigum. Námskeiðin eru eftirminnileg upplifun fyrir börn sem langar að…
Myndlist
Leiðbeinandinn mun taka þig í gegnum ýmis sjónræn dæmi og stíla og kynna aðrar aðferðir við teikningu. Kynnt verða hefðbundin og óhefðbundin verkfæri við að skapa. Námskeiðið fer að stærstum hluta fram inni í stúdíói Heiðdísar sem unnið hefur að…
Heilsuefling Hress 65 ára og eldri
Hress býður upp á metnaðarfulla þjálfun og mælingar sem bætir lýðheilsu 65 ára til muna.