Komdu að dansa í sumar! Öllum krökkum á aldrinum 7-13 ára er velkomið að mæta á dans og leikja námskeiðin okkar í sumar.  Námskeiðin verða haldin inn í Listdansskóla Hafnarfjarðar ásamt því að farið verður út með hópana þegar veður leyfir, hvert námskeið endar svo með sýningu fyrir foreldra þar sem allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal. Námskeiðin verða flest með svipuðu móti hvað varðar dagskrá og upphitunaræfingar en þar sem áhersla er lögð á skapandi vinnu nemenda er auðvelt að koma á nokkur námskeið yfir sumarið. Leiðbeinendur okkar eru starfsmenn Listdansskóla Hafnarfjarðar sem hafa reynslu af námskeiðahaldi og vinna með börnum.

Einnig bjóðum við uppá seinniparts dansnámskeið fyrir 4-6 ára, 12-14 ára, 15 ára og eldri ásamt silki námskeiði en nánari upplýsingar um þau má finna hér: https://www.listdansskoli.is/sumarnamskeid/

DAGSKRÁ DAGNÁMSKEIÐANNA🌼

Námskeið 1
Dagsetning: 10. – 14. júní (5 dagar)
frá kl. 09.00 – 12.00 fyrir 7-9 ára
frá kl. 13.00 – 16.00 fyrir 9-11 ára

Námskeið 2
Dagsetning: 18. – 21. júní (4 dagar)
frá kl. 09.00 – 12.00 fyrir 9-11 ára
frá kl. 13.00 – 16.00 fyrir 7-9 ára

Námskeið 3
Dagsetning: 24. – 28. júní (5 dagar)
frá kl. 09.00 – 12.00 fyrir 7-8 ára
frá kl. 13.00 – 16.00 fyrir 11-13 ára

Námskeið 4
Dagsetning: 6. – 9. ágúst (4 dagar)
frá kl. 09.00 – 12.00 fyrir 7-9 ára
frá kl. 13.00 – 16.00 fyrir 10-12 ára

Námskeið 5
Dagsetning: 12. – 16. ágúst (5 dagar)
frá kl. 09.00 – 12.00 fyrir 7-9 ára
frá kl. 13.00 – 16.00 fyrir 10-12 ára

Verð fyrir hvert námskeið er 8500kr, allir krakkar velkomnir!

Ábendingagátt