Leikskólinn Arnarberg tók til starfa í rólegu og friðsælu hverfi við Haukahraun 2 í ágúst 2003. Hjá okkur eru 80 börn á aldrinum 18 mánaða til 6 ára á fjórum deildum: Hamri, Kletti, Króki og Reit. Deildirnar eru aldursblandaðar nema yngstu börnin eru saman á einni deild.

Leikskólinn Arnarberg Overlay Overlay

Leiðarljós

Umburðarlyndi

Samkennd

Samvinna

Hugmyndafræði

Einkunnarorð Arnarbergs eru Læsi er leikur og segja má að þau séu meginþráður alls okkar starfs. Hér á læsi ekki einungis við lestur bóka, heldur líka að kunna að lesa í líðan og velferð einstaklingsins, hreysti og umhverfi. Leikurinn ýtir undir þroska á mörgum sviðum og það er í gegnum hann sem börnin læra mikilvæg atriði um hreyfingu, notkun tungumálsins, félagsleg samskipti, tilfinningatengsl og sköpunarkraft svo eitthvað sé nefnt.

Í öllu okkar starfi leggjum við áherslu á að við séum öll jöfn og eigum jafnan rétt. Með því viljum við stuðla að umburðarlyndi, samkennd og samvinnu einstaklinga á milli. Með þessa þætti að leiðarljósi erum við sannfærð um að við hjálpum börnunum okkar að verða sterkari og sjálfstæðari einstaklingar sem geta tekið á móti áskorunum lífsins með gleði og öryggi að vopni.

Stjórnendur

Bjarney Kristín Hlöðversdóttir

Leikskólastjóri

Kristbjörg Lára Helgadóttir

Aðstoðarleikskólastjóri

Berglind Kristín Long Bjarnadóttir

Sérkennslustjóri - Tengiliður farsældar

Jeannette Jeffrey

Deildarstjóri

Katrín Lilja Traustadóttir

Deildarstjóri

Birna Dögg Sigurðardóttir

Deildarstjóri

Anna Björk Baldursdóttir

Deildarstjóri

Farsæld barna

Öll börn eiga rétt á að fá þá þjónustu sem þau þurfa þegar á þarf að halda. Það getur verið flókið að fá aðstoð við hæfi og vita hvert eigi að leita eftir henni. Ný farsældarlög eiga að tryggja að börn og foreldrar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum.

Þjónusta fyrir börn

Þjónusta fyrir börn er veitt á þremur þjónustustigum. Gott er að hafa í huga að þjónustan er stigskipt en ekki mál barnsins sem slíkt. Þannig geta börn fengið þjónustu á fleiri en einu þjónustustigi.

Tengiliður farsældar í Arnarbergi er Berglind Kristín L. Bjarnadóttir.

Foreldrasamvinna

Við leggjum mikla áherslu á foreldrasamvinnu. Föst foreldraviðtöl eru boðuð einu sinni á ári en foreldrum stendur alltaf til boða að biðja um viðtal við kennara. Einnig eru fastir dagar þar sem foreldrum er boðið í morgunmat eða kaffi til að njóta þess að vera með börnum sínum og hitta aðra foreldra.

Foreldrafélag

Í foreldrafélagi Arnarbergs sitja 9 manns, þar af 7 foreldrar og 2 starfsmenn leikskólans. Foreldrafélagið stendur til dæmis fyrir sumarhátíð, sveitaferð, jólagjöfum og útskriftarferð elstu barnanna, auk þess sem það hefur stutt við leikskólann með fyrirlestrum. Á hverju hausti eru haldnir stærri foreldrafundir þar sem foreldrafélagið fer yfir starf síðasta árs og nýtt félag kosið.

Foreldraráð

Í foreldraráði leikskólans eru 3 foreldrar. Kosið er í foreldraráð á stórum foreldrafundi á haustin. Foreldraráð er vettvangur fyrir foreldra til að fylgjast með því starfi sem fram fer í leikskólanum, koma með hugmyndir og hafa áhrif. Ráðið gefur umsagnir um skólanámskrá og aðrar áætlanir varðandi starfsemi leikskólans, og hefur umsagnarrétt um allar meiri háttar breytingar á leikskólastarfinu.

 

Í ráðinu sitja: 

  • Hrönn G. Guðmundsdóttir
  • Erna Eiríksdóttir
  • Sigurður T. Björgvinsson

Hagnýtar upplýsingar

Leikskólakerfið Vala er mikilvægur hluti af leikskólastarfinu í Hafnarfirði. Þar færðu tilkynningar og fréttir frá leikskólanum um dagskrá, svefn, mat og hvernig dagurinn hefur gengið. Þú getur á einfaldan hátt tilkynnt forföll, sent skilaboð, séð matseðil og leikskóladagatalið. Einnig fara umsóknir um leikskólavist, breytingar og flutningar í gegnum Völu.

Vala er aðgengileg í vafra og í appi á snjalltækjum. Appið er á íslensku, ensku og pólsku. Það þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn.

Þegar barn byrjar í leikskóla er mikilvægt að það gerist smám saman svo barnið verði öruggt í nýju umhverfi og njóti sín sem best. Í aðlögun kynnist barnið starfsfólki, hinum börnunum og leikskólanum. Aðlögun er líka tími fyrir foreldra og starfsfólk að kynnast og styrkja samstarf á milli heimilis og skóla.

Fyrsti dagurinn er yfirleitt stuttur, en tíminn lengist smám saman til að gefa barninu svigrúm til að venjast breyttum aðstæðum. Þetta hjálpar einnig til við að draga úr þreytu og spennu. Hversu lengi foreldrar eru með barninu í aðlögun fer eftir leikskóla og þörfum barnsins, en yfirleitt má búast við viðveru fyrstu vikuna.

Gott er að gera ráð fyrir meiri sveigjanleika í vinnu fyrst um sinn ef mögulegt er, því stundum þarf að sækja barnið með stuttum fyrirvara. Aðlögunarferlið getur í heildina tekið allt að 4–6 vikur, en ferlið er alltaf lagað að þörfum hvers barns.

Veikindi á að tilkynna leikskólanum gegnum Völu. Það er góð og gild regla að miða við að barn sé hitalaust heima í einn dag eftir veikindi. Algengt er að börn sem hefja leikskólaskólagöngu fái fjölmargar pestir fyrsta hálfa árið.

Það þarf að láta starfsfólk vita þegar komið er með barn á leikskólann og þegar barn er sótt. Þetta er mikilvægt öryggisatriði. Þegar sótt er um leikskóladvöl er skráð hverjir mega sækja barnið. Ef þarf að breyta því er hægt að tala við deildarstjóra.

Börnin fara vanalega alltaf út á hverjum degi. Þegar barn byrjar í leikskóla er gott að ræða við starfsfólk um hvað sé nauðsynlegt að taka með í skólann, til dæmis aukaföt, útiföt og skó sem henta íslensku veðri, sólaráburð, bleyjur, blautþurrkur og fleira.
Blaut og skítug föt eiga að fara með heim í lok dags en þurr föt má geyma í leikskólanum. Á föstudögum á að taka allt sem tilheyrir barninu heim. Mikilvægt er að merkja öll föt vel.

Börn fá morgunmat, hádegismat og síðdegishressingu í leikskólanum. Börnin þurfa því alla jafna ekki að koma með nesti. Ef barn getur ekki borðað einhvern mat vegna mataróþols, ofnæmis eða af trúarlegum ástæðum er mikilvægt að upplýsa leikskólastarfsfólk um það.

Venjulegir leikskóladagar eru 180 dagar á ári. Aðrir dagar þar sem leikskólinn er opinn en gætu fallið undir frí eru kallaðir skráningardagar. Á þeim dögum þarf að skrá börn sérstaklega í leikskólann, annars er litið á að þau séu í fríi. Leikskólar tilkynna skráningardaga með góðum fyrirvara og biðja um skráningu.
Skoða leikskóladagatalið 2024-2025

  • 2 dagar í október þegar vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar.
  • Frá og með 21. desember til og með 2. janúar.
  • 2 dagar í febrúar þegar vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar.
  • 3 dagar í dymbilviku fyrir páska.
  • Frá og með 10. júní til 10. ágúst.
  • Börn taka fjögurra vikna samfellt sumarfrí yfir sumartímann.

Leikskólar í Hafnarfirði eru lokaðir 5 daga á ári vegna skipulagsdaga, auk þess eru 4 skertir skóladagar yfir árið vegna skipulags skólastarfs. Leikskólarnir eru alltaf lokaðir á rauðum dögum. Þú getur séð dagatal leikskólans í Völu.

Leikskólar í Hafnarfirði eru lokaðir í 3 vikur í júlí en börn taka að lágmarki fjögurra vikna samfellt sumarleyfi. Það er ekki rukkað fyrir leikskólagjöld í sumarfríi eða þegar það er lokað.

Breytilegur dvalartími á milli daga skapar svigrúm fyrir fjölskyldur til að sníða leikskóladvöl barna að sínum þörfum. Fjölskyldur greiða bara fyrir þann tíma sem er nýttur og þannig er möguleiki á að lækka leikskólagjöldin. Lágmarksdvöl er 4 stundir á dag sem gerir að lágmarki 20 tíma dvöl á viku. Hámark er 42,5 stundir á viku (8,5 stundir á dag).

Skráning í sveigjanlega dvöl er í upphafi hverrar annar, eða í síðasta lagi:

  • 15. ágúst fyrir haustönn
  • 15. desember fyrir vorönn

Í leikskólanum er skipulögð dagskrá. Það er gott fyrir börnin að hafa ákveðna rútínu og vita hvað gerist næst, það er grundvöllur að öryggistilfinningu. Með þekktri dagskrá vita börnin að hverju þau ganga á hverjum degi og skipulagið kemur í veg fyrir óþarfa biðtíma og árekstra í samskiptum. Á haustin fá foreldrar skóladagatal fyrir veturinn þar sem fyrirkomulag hvers mánaðar er kynnt í grófum dráttum.

Leikskóladeginum skipt upp í tvennt

  • Markvisst fagstarf er frá kl. 9–15 alla virka daga.
  • Frjáls tími og leikstundir eru frá 7:30–9 og eftir kl. 15 á daginn.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendir út tilkynningar um veður þegar á þarf að halda, í samráði við lögreglu og fræðsluyfirvöld.
Mikilvægt er að foreldrar og forsjáraðilar fylgist vel með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum tilmælum frá yfirvöldum sem gætu haft áhrif á skólastarf barna og bregðist við í samræmi við aðstæður hverju sinni.

Leiðbeiningar fyrir foreldra

Ábendingagátt