Leikskólinn Norðurberg tók til starfa í ágúst árið 1982. Leikskólinn er staðsettur í fallegu umhverfi í norðurbæ Hafnarfjarðar, þar sem hraun, mosi, trjágróður, klettar og fjara setja mark sitt á umhverfið. Í leikskólanum dvelja samtímis 108 börn á fimm deildum: Birkibóli, Klettaborg, Álfasteini, Tröllagili og Lundi.

Leikskólinn Norðurberg Overlay Overlay

Leiðarljós

Virðing

Jákvæðni

Hugmyndafræði

Á Norðurbergi er lögð áhersla á gagnkvæma virðingu og jákvæðni – við komum fram við hvert annað eins og við viljum að komið sé fram við okkur. Uppeldisaðferð Howard Glasser um mikilvægi þess að næra hjartað er grunnurinn að öllu starfi leikskólans.

Starfsfólk leggur sig fram við að eiga í jákvæðum samskiptum við börnin og speglar góða hegðun í orðum. Með því að vekja athygli á jákvæðum eiginleikum og lífsgildum fá börn umbun. Við vinnum einnig eftir hugmyndafræði snemmtækrar íhlutunar, þar sem lögð er áhersla á málörvun og stuðning við málþroska leikskólabarna.

Umhverfismennt er rauður þráður í öllu okkar starfi. Markmiðið er að börnin læri að þekkja, virða og bera ábyrgð á umhverfi sínu og náttúru. Við tileinkum okkur vistvænar aðferðir í innkaupum, notkun á orku, vatni og efnum og úrgangsstjórnun, þannig að umhverfisvernd verður hluti af daglegu lífi barnanna. Leikskólinn fékk Grænfánann, viðurkenningu fyrir góða umhverfismennt og stefnu, vorið 2003, fyrstur leikskóla á landinu.

Stjórnendur

Anna Sigurborg Harðardóttir

Leikskólastjóri

Gunnhildur Grímsdóttir

Aðstoðarleikskólastjóri

Hulda Patricia Haraldsdóttir

Sérkennslustjóri

Elín Ósk Traustadóttir

Deildarstjóri á Álfasteini

Anna Marzena Bielinska

Deildarstjóri á Tröllagili

Jóhanna Berentsdóttir

Deildarstjóri á Birkibóli

Sigríður Jenny Halldórsdóttir

Deildarstjóri á Klettaborg

Berglind Mjöll Jónsdóttir

Deildarstjóri á Lundi

Lóa Björk Hallsdóttir

Deildarstjóri á Lundi

Farsæld barna

Öll börn eiga rétt á að fá þá þjónustu sem þau þurfa þegar á þarf að halda. Það getur verið flókið að fá aðstoð við hæfi og vita hvert eigi að leita eftir henni. Ný farsældarlög eiga að tryggja að börn og foreldrar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum.

Tengiliður farsældar á Norðurbergi er Hulda Patricia Haraldsdóttir.

Þjónusta fyrir börn

Þjónusta fyrir börn er veitt á þremur þjónustustigum. Gott er að hafa í huga að þjónustan er stigskipt en ekki mál barnsins sem slíkt. Þannig geta börn fengið þjónustu á fleiri en einu þjónustustigi.

Foreldrasamvinna

Boðið er upp á formleg foreldraviðtöl einu sinni á skólaári, eða oftar ef þörf er á. Að auki eru reglulegar samverustundir fyrir foreldra yfir árið.

Foreldrafélag

Í foreldrafélagi Norðurbergs sitja 7 foreldrar. Foreldrafélagið stendur til dæmis fyrir fræðslu fyrir foreldra, brúðuleikhúsi, sem og að fá jólasvein á jólaball leikskólans.

Foreldraráð

Í foreldraráði leikskólans eru 3 foreldrar. Kosið er í foreldraráð að hausti. Foreldraráð gefur umsagnir um skólanámskrá og aðrar áætlanir varðandi starfsemi leikskólans, og hefur umsagnarrétt um meiri háttar breytingar á leikskólastarfi.

Í ráðinu sitja:

  • Hrafnhildur Helgadóttir
  • Ólöf Lára Halldórsdóttir
  • Sonja Guðlaugsdóttir

Hagnýtar upplýsingar

Leikskólakerfið Vala er mikilvægur hluti af leikskólastarfinu í Hafnarfirði. Þar færðu tilkynningar og fréttir frá leikskólanum um dagskrá, svefn, mat og hvernig dagurinn hefur gengið. Þú getur á einfaldan hátt tilkynnt forföll, sent skilaboð, séð matseðil og leikskóladagatalið. Einnig fara umsóknir um leikskólavist, breytingar og flutningar í gegnum Völu.

Vala er aðgengileg í vafra og í appi á snjalltækjum. Appið er á íslensku, ensku og pólsku. Það þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn.

Þegar barn byrjar í leikskóla er mikilvægt að það gerist smám saman svo barnið verði öruggt í nýju umhverfi og njóti sín sem best. Í aðlögun kynnist barnið starfsfólki, hinum börnunum og leikskólanum. Aðlögun er líka tími fyrir foreldra og starfsfólk að kynnast og styrkja samstarf á milli heimilis og skóla.

Fyrsti dagurinn er yfirleitt stuttur, en tíminn lengist smám saman til að gefa barninu svigrúm til að venjast breyttum aðstæðum. Þetta hjálpar einnig til við að draga úr þreytu og spennu. Hversu lengi foreldrar eru með barninu í aðlögun fer eftir leikskóla og þörfum barnsins, en yfirleitt má búast við viðveru fyrstu vikuna.

Gott er að gera ráð fyrir meiri sveigjanleika í vinnu fyrst um sinn ef mögulegt er, því stundum þarf að sækja barnið með stuttum fyrirvara. Aðlögunarferlið getur í heildina tekið allt að 4–6 vikur, en ferlið er alltaf lagað að þörfum hvers barns.

Veikindi á að tilkynna leikskólanum gegnum Völu. Það er góð og gild regla að miða við að barn sé hitalaust heima í einn dag eftir veikindi. Algengt er að börn sem hefja leikskólaskólagöngu fái fjölmargar pestir fyrsta hálfa árið.

Það þarf að láta starfsfólk vita þegar komið er með barn á leikskólann og þegar barn er sótt. Þetta er mikilvægt öryggisatriði. Þegar sótt er um leikskóladvöl er skráð hverjir mega sækja barnið. Ef þarf að breyta því er hægt að tala við deildarstjóra.

Börnin fara vanalega alltaf út á hverjum degi. Þegar barn byrjar í leikskóla er gott að ræða við starfsfólk um hvað sé nauðsynlegt að taka með í skólann, til dæmis aukaföt, útiföt og skó sem henta íslensku veðri, sólaráburð, bleyjur, blautþurrkur og fleira.
Blaut og skítug föt eiga að fara með heim í lok dags en þurr föt má geyma í leikskólanum. Á föstudögum á að taka allt sem tilheyrir barninu heim. Mikilvægt er að merkja öll föt vel.

Börn fá morgunmat, hádegismat og síðdegishressingu í leikskólanum. Börnin þurfa því alla jafna ekki að koma með nesti. Ef barn getur ekki borðað einhvern mat vegna mataróþols, ofnæmis eða af trúarlegum ástæðum er mikilvægt að upplýsa leikskólastarfsfólk um það.

Venjulegir leikskóladagar eru 180 dagar á ári. Aðrir dagar þar sem leikskólinn er opinn en gætu fallið undir frí eru kallaðir skráningardagar. Á þeim dögum þarf að skrá börn sérstaklega í leikskólann, annars er litið á að þau séu í fríi. Leikskólar tilkynna skráningardaga með góðum fyrirvara og biðja um skráningu.
Skoða leikskóladagatalið 2024-2025

  • 2 dagar í október þegar vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar.
  • Frá og með 21. desember til og með 2. janúar.
  • 2 dagar í febrúar þegar vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar.
  • 3 dagar í dymbilviku fyrir páska.
  • Frá og með 10. júní til 10. ágúst.
  • Börn taka fjögurra vikna samfellt sumarfrí yfir sumartímann.

Leikskólar í Hafnarfirði eru lokaðir 5 daga á ári vegna skipulagsdaga, auk þess eru 4 skertir skóladagar yfir árið vegna skipulags skólastarfs. Leikskólarnir eru alltaf lokaðir á rauðum dögum. Þú getur séð dagatal leikskólans í Völu.

Leikskólar í Hafnarfirði eru lokaðir í 3 vikur í júlí en börn taka að lágmarki fjögurra vikna samfellt sumarleyfi. Það er ekki rukkað fyrir leikskólagjöld í sumarfríi eða þegar það er lokað.

Breytilegur dvalartími á milli daga skapar svigrúm fyrir fjölskyldur til að sníða leikskóladvöl barna að sínum þörfum. Fjölskyldur greiða bara fyrir þann tíma sem er nýttur og þannig er möguleiki á að lækka leikskólagjöldin. Lágmarksdvöl er 4 stundir á dag sem gerir að lágmarki 20 tíma dvöl á viku. Hámark er 42,5 stundir á viku (8,5 stundir á dag).

Skráning í sveigjanlega dvöl er í upphafi hverrar annar, eða í síðasta lagi:

  • 15. ágúst fyrir haustönn
  • 15. desember fyrir vorönn

Í leikskólanum er skipulögð dagskrá. Það er gott fyrir börnin að hafa ákveðna rútínu og vita hvað gerist næst, það er grundvöllur að öryggistilfinningu. Með þekktri dagskrá vita börnin að hverju þau ganga á hverjum degi og skipulagið kemur í veg fyrir óþarfa biðtíma og árekstra í samskiptum. Á haustin fá foreldrar skóladagatal fyrir veturinn þar sem fyrirkomulag hvers mánaðar er kynnt í grófum dráttum.

Leikskóladeginum skipt upp í tvennt

  • Markvisst fagstarf er frá kl. 9–15 alla virka daga.
  • Frjáls tími og leikstundir eru frá 7:30–9 og eftir kl. 15 á daginn.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendir út tilkynningar um veður þegar á þarf að halda, í samráði við lögreglu og fræðsluyfirvöld.
Mikilvægt er að foreldrar og forsjáraðilar fylgist vel með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum tilmælum frá yfirvöldum sem gætu haft áhrif á skólastarf barna og bregðist við í samræmi við aðstæður hverju sinni.

Leiðbeiningar fyrir foreldra

Ábendingagátt