Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Nýverið sóttu bæjarstjóri og sviðsstjórar Reykjanesbæjar Hafnarfjörð heim í þeim tilgangi að ræða verkefni, framkvæmd, fyrirkomulag og áskoranir í daglegum rekstri sveitarfélagana. Þeir fengu kynningar á skipulagi og verkefnum kollega í Hafnarfirði.
Mikilvægi þess að ræða verkefni, framkvæmd, fyrirkomulag og áskoranir í daglegum rekstri sveitarfélagana er oft vanmetið. Nýverið sóttu bæjarstjóri og sviðsstjórar Reykjanesbæjar Hafnarfjörð heim einmitt í þeim tilgangi og fengu kynningar á skipulagi og verkefnum kollega í Hafnarfirði. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar bauð hópinn velkominn með vel völdum orðum um Hafnarfjörð og Hafnarfjarðarbæ, þjónustu sveitarfélagsins og verkefni sem hvetja og efla samfélagið.
Í inngangi sínum fór Rósa meðal annars yfir helstu tölur innan sveitarfélagsins:
Hjá Hafnarfjarðarbæ starfa sex sviðsstjórar á jafn mörgum sviðum. Sigurður Nordal sviðsstjóri stjórnsýslusviðs fór yfir heildarstefnu Hafnarfjarðar og innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í starfsemi sveitarfélagsins. Um er að ræða framtíðarsýn til ársins 2035 með níu meginmarkmiðum sem tengd eru heimsmarkmiðunum og snúa að vellíðan íbúa, hreyfingu og heilsu, blómlegu atvinnulífi, lifandi byggð, vistvænu samfélagi, öflugu mannlífi, menntun fyrir alla, markvissri þátttöku og skilvirkri þjónustu. Öll þessi meginmarkmið kollvarpast og tengjast beint rekstri sveitarfélagsins og þeim verkefnum sem sviðsstjórar kynntu fyrir kollegum sínum í Reykjanesbæ.
Sigurður Haraldsson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, fór yfir þá innviðauppbyggingu sem í gangi er nú þegar og þá sem fyrirhuguð er í náinni framtíð; knatthús Hauka, reiðskemma Sörla, húsnæði Brettafélagsins, leikskóli í Hamranesi, grunn- og leikskóli í Hamranesi, gatnaframkvæmdir í Áslandi 4 og úthlutun lóða þar og uppbyggingu atvinnulóða á Hellnahrauni 4. Auk þess ræddi Sigurður um þá innviðauppbyggingu sem fyrirhuguð er á Hraun-vestur, Óseyrarhverfi, Hvaleyrarbraut, Flensborgarhöfn, Straumsvík, vegna Tækniskólans og Bókasafns Hafnarfjarðar.
Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, sviðsstjóri mennta- og lýðheilsusviðs, kynnti megináherslu sviðsins á öflugan stuðning við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra í gegnum skóla- og frístundastarf. Þá aðallega með mikilli þverfaglegri vinnu skólanna, fjölskyldu- og barnamálasviðs og mennta- og lýðheilsusviðs. Tengist þessi aukna áhersla meðal annars innleiðingu sveitarfélagsins á nýlegum farsældarlögum og samþættingu þjónustu í þágu farsældar. Verkefni sem Hafnarfjarðarbær hefur unnið að um árabil undir heitinu Brúin.
Þá sagði Fanney frá menntastefnu Hafnarfjarðar, Lestur er lífsins leikur, Barnahnappi, nýsköpunarsetri og endurskipulagningu skóladagsins. Guðlaug Ósk Gísladóttir sviðsstjóri fjölskyldu- og barnamálasviðs sagði frá ÞÚ, nýju miðlægu teymi sem vinnur með fjölbreytt úrræði m.a. í heimaþjónustu, stuðningsþjónustu og stoðþjónustu við fatlað fólk. Guðlaug ræddi félagslegt húsnæði Hafnarfjarðarbæjar, málefni flóttafólks, barnavernd, farsæld barna og málefni fatlað fólks.
Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, og Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Áherslan í kynningum Helgu Benediktsdóttur, sviðsstjóra fjármálasviðs, og Árdís Ármannsdóttur, sviðsstjóra þjónustu- og þróunarsviðs, var á stafræna vegferð sveitarfélagsins.
Þannig sagði Helga frá umbótaverkefnum sem eru til þess fallin að gera fjármálastjórn og áreiðanleika fjárhagsbókhalds Hafnarfjarðarbæjar enn markvissari og betra. Evolv er nýjasta og ferskasta dæmið. Evolv snýst um nýtingu stafrænna vélmenna sk. þjarka til að líkja eftir aðgerðum starfsfólks með það að markmiði að sjálfvirknivæða og einfalda ákveðna ferla. Dæmi um Evolv verkefni eru afstemmingar lánadrottna, fasteignayfirlit, hreyfingaryfirlit, sjóðsstýring og greiðsluáætlun, sjálfvirk samþykkt reikninga og frávikagreining aðalbókar.
Árdís kynnti svo upphaf og þegar fenginn árangur af stafrænni vegferð sveitarfélagsins, aukið gegnsæi, einfaldar reiknivélar, ábendingagátt sem tekur á móti um150 ábendingum á mánuði, sorphirðudagatal og snjalla leitarvél. Auk þess kynnti Árdís stærri stafræn verkefni eins og nýtt hönnunarkerfi sem hefur auðveldað allt samstarf við fjölbreytta aðila, endurhönnun grunnskólavefja, leikskólavefi á vef Hafnarfjarðarbæjar, nýtt smáforrit fyrir leikskólana, enskan vef, ljósmyndabanka og stafræna byltingu í byggingarmálum og mannauðsmálum sem skilað hafa umtalsverðum árangri.
Í lok kynningar var menningarbærinn Hafnarfjörður undirstrikaður með upptalningu á árlegum viðburðum, styrkjum og stuðningi sem er til þess fallinn að ýta undir og efla hafnfirskt menningar- og listalíf.
Sviðsstjórar og bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar þakka kollegum í Reykjanesbæ innilega fyrir komuna og áhugann. Til stendur að skipuleggja sambærilega heimsókn á Suðurnesin fljótlega.
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar þriðjudaginn 21. maí. Formlegur fundur hefst kl. 14:00 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34.
Umferðarhraði á yfir sextíu götum Hafnarfjarðarbæjar lækkar úr 50 km/klst í 40 eða 30 þann 22. maí. Ákvörðunin er tekin…
Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Akureyrarbæjar og föruneyti funduðu með Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra og fulltrúum Hafnarfjarðarbæjar í vikunni. Deildu þau reynslu og…
Leikskólinn Vesturkot er 30 ára. Samvinna var Særúnu Þorláksdóttur leikskólastjóra efst í huga þegar áfanganum var fagnað síðasta föstudag. Elstu…
Hróður pólsku deildar Bókasafns Hafnarfjarðar hefur náð út fyrir landssteinana. Nú í haust var Katarzyna Chojnowska, Kasia, bókavörður, verðlaunuð fyrir…
„Hver ykkar vita hvað heilsunammi er?“ Spurði Íþróttaálfurinn þegar hann hitti börnin á leikskólanum Vesturkoti í gær, fimmtudagsmorgun. „Epli, banana,…
Það er hressilegur siður að halda öskudaginn hátíðlegan í Hafnarfirði enda fátt skemmtilegra en að klæða sig upp í alls…
Hafnfirðingar hugsa til íbúa Suðurnesja. Frítt er í sundlaugar Hafnarfjarðar fyrir íbúa Suðurnesja þar sem heitavatnslögnin skemmdist í eldgosinu.
Mikilvægi kynheilbrigðis og kynfræðslu fyrir börn og ungmenni var viðfangsefnið í Viku 6 í skólum bæjarins. Skólar, félagsmiðstöðvar, ungmennahús og…
Aðalúthlutun safnasjóðs fyrir árið 2024 fór fram á nýafstaðnum ársfundi höfuðsafna og safnaráðs. Að þessu sinni hlaut Hafnarborg styrki til…