Breyting á deiliskipulagi Miðbær Hraun vestur í Hafnarfirði – Hverfisgata 22

Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 09.03. 2023 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar að Hverfisgötu 22 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Um er að ræða breytingu á deiliskipulaginu Miðbær Hraun vestur.

Í deiliskipulagsbreytingunni felst að núverandi íbúðarhús á lóðinni verði endurbyggt. Tvö stök hús á lóðinni, Hverfisgata 22 B, verði rifin og heimilt að byggðar verði nýjar einnar hæðar byggingar í stað þeirra. Byggingarreitur lóðarinnar stækki og nái að lóðarmörkum að sunnan og vestanverðu. Kvaðir um safnaðarheimili og göngustíg á lóð falli niður. Hámarks nýtingarhlutfall lóðar verði 0.65.

Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá Umhverfis- og skipulagssviði Norðurhellu 2, frá 16.03. til 27.04.2023. Einnig er hægt er að kynna sér deiliskipulagstillöguna á hér að neðan.

Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við breytinguna eigi síðar en 27.04. 2023 á netfangið

skipulag@hafnarfjordur.is eða stílaðar á:

Hafnarfjarðarbær
bt. umhverfis- og skipulagssvið
Strandgötu 6
220 Hafnarfjörður

Ábendingagátt