Deildarstjóri – Leikskólinn Hlíðarendi

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 27.06.2024

Umsóknarfrestur til: 11.07.2024

Tengiliður: Bryndís Guðlaugsdóttir

Leikskólinn Hlíðarendi óskar eftir deildarstjóra í afleysingu næsta skólaár í 100% starfshlutfall.

Leikskólinn Hlíðarendi er fjögurra deilda og er staðsettur í útjaðri Setbergshverfis. Helstu áhersluþættir eru hreyfing, lífsleikni og umhverfismennt.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að og bera ábyrgð á uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
  • Að bera ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati á faglegu starfi deildarinnar
  • Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og tryggja að öll börn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum
  • Að bera ábyrgð á samstarfi við foreldra
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (Leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Stjórnunarreynsla æskileg
  • Einlægur áhugi fyrir velgengni allra barna
  • Færni í samskiptum og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
  • Góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

 

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veita Bryndís Guðlaugdóttir leikskólastjóri og Fjóla Kristjánsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 555 1440. Fyrirspurnir má einnig senda á netfangið hlidarendi@hafnarfjordur.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitafélaga og KÍ v/Félags leikskólakennara.

Umsóknarfrestur er til og með 11. júlí 2024.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.  

 

Önnur störf