Félagsliði í heimaþjónustu

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 07.01.2025

Umsóknarfrestur til: 17.01.2025

Tengiliður: Elín Ósk Baldursdóttir

Fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða starfsfólk í fullt starf í stuðningsþjónustu.

Um framtíðarstarf er að ræða og dagvinnu. Æskilegt að starfsmaður geti byrjað sem fyrst.

Stuðningsþjónustan ber ábyrgð á fjölbreyttri þjónustu við íbúa Hafnarfjarðar. Leitast er við að veita einstaklingsmiðaða þjónustu.

Helstu verkefni:

  • Persónuleg aðstoð og stuðningur við næringu og hreyfingu
  • Veitir aðstoð við innkaup
  • Gefur fyrirframskömmtuð lyf
  • Stuðningur vegna vinnu og virkni
  • Að setja upp áætlanir er varða heimili, uppeldi og virkni í samfélaginu í samráði við teymisstjóra og yfirmann
  • Að setja upp áætlanir og aðstoða með skipulag heimilis, þrif, og fleira.
  • Samstarf við aðra starfsmenn stuðningsþjónustunnar
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Próf af styttri námsbrautum s.s. félagsliðanám eða sjúkraliðanám er æskilegt
  • Reynsla af starfi í stuðningsþjónustu
  • Jákvæðni í starfi, þjónustulund og góð samskiptafærni
  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
  • Færni í helstu tölvuforritum t.d. Word, Excel og Outlook

Einstaklingurinn þarf að hafa bílpróf og bíl til umráða. Einnig þarf hann að tala íslensku

Umsóknarfrestur er til og með 17. janúar 2025.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Verkalýðsfélagsins Hlífar.

Nánari upplýsingar veitir Elín Ósk Baldursdóttir deildarstjóri elinob@hafnarfjordur.is eða í síma 585 5500.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. 

Önnur störf