Félagsliði í heimaþjónustu – Sumarstarf

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 27.03.2025

Umsóknarfrestur til: 13.04.2025

Tengiliður: Elín Ósk Baldursdóttir

Fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða starfsfólk í stuðningsþjónustu í sumarafleysingar.

Starfshlutfall er 100% og um vaktavinnu er að ræða. Vaktir á morgnana, kvöldin og um helgar. . Um er að ræða sumarafleysingar. 

Stuðningsþjónustan ber ábyrgð á fjölbreyttri þjónustu við íbúa Hafnarfjarðar. Leitast er við að veita einstaklingsmiðaða þjónustu.

Helstu verkefni:

  • Persónuleg aðstoð og stuðningur við næringu og hreyfingu
  • Veitir aðstoð við innkaup
  • Gefur fyrirframskömmtuð lyf
  • Að setja upp áætlanir og aðstoða með skipulag heimilis, þrif, og fleira.
  • Samstarf við aðra starfsmenn stuðningsþjónustunnar
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Próf af styttri námsbrautum s.s. félagsliðanám eða sjúkraliðanám
  • Reynsla af starfi í stuðningsþjónustu
  • Jákvæðni í starfi, þjónustulund og góð samskiptafærni
  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
  • Góð íslenskukunnátta
  • Bílpróf

Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl 2025.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Verkalýðsfélagsins Hlífar.

Nánari upplýsingar veitir Elín Ósk Baldursdóttir deildarstjóri elinob@hafnarfjordur.is eða í síma 585 5500.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. 

Önnur störf