Hafnarvörður – Hafnarfjarðarhöfn

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 16.07.2024

Umsóknarfrestur til: 26.07.2024

Tengiliður: Lúðvík Geirsson

Hafnarfjarðarhöfn óskar eftir að ráða hafnarvörð til starfa.  Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.  Hafnarfjarðarhöfn er með starfsemi bæði í Hafnarfirði og Straumsvík.  Daglegur vinnutími er frá 07.30 – 16.00 virka daga, auk þess sem unnið er á kvöld- og helgarvöktum.

Helstu verkefni:

·         Almenn störf við móttöku skipa og þjónustu við þau

·         Landtengingar skipa

·         Vigtun á bílvog og pallvogum

·         Skráning í aflaupplýsingakerfi Fiskistofu

·         Aðstoð um borð í hafnsögu- og dráttarbátum

·         Viðhald og umhirða á hafnarbökkum

·         Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:

·         Vélstjóraréttindi að lágmarki 750 kW

·         Námskeið frá Slysvarnarskóla sjómanna æskileg

·         Vigtarréttindi æskileg

·         Almenn ökuréttindi skilyrði og meirapróf (C) æskilegt

·         Góð íslensku- og enskukunnátta

·         Almenn góð tölvukunnátta

·         Samskipta- og samstarfshæfni og þjónustulund

·         Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni.

Gerð er krafa um að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri í síma 414-2300.

Umsóknarfrestur er til og með 26. júlí 2024.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Önnur störf