Innkaupasérfræðingur – Fjármálasvið

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 22.01.2026

Umsóknarfrestur til: 10.02.2026

Tengiliður: agustr@hafnarfjordur.is

Hjá Hafnarfjarðarbæ er starf innkaupasérfræðings lykilþáttur í því að tryggja vandaða þjónustu og ábyrga nýtingu fjármuna. Við erum að efla innkaupa- og samningsvinnu sveitarfélagsins með það að markmiði að ferlar séu skýrir, sanngjarnir og framkvæmanlegir og að samningar styðji við skilvirka framkvæmd í daglegum rekstri.

Starfið hentar þeim sem vill hafa áhrif í umhverfi þar sem verkefnin eru raunveruleg og snertiflöturinn breiður. Innkaupasérfræðingur vinnur í nánu samstarfi við rekstrareiningar og styður við ferlið frá þörf til samnings og eftirfylgni. Um er að ræða 100% stöðu.

Starfið veitir áþreifanleg tækifæri til að skila virði og styrkja þjónustu við bæjarbúa.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Þarfagreining og mótun valforsenda fyrir innkaupaferli í samvinnu við hagsmunaaðila
  • Hönnun á lykilmælikvörðum (KPI) fyrir samninga
  • Halda utan um útboðs og verðfyrirspurnarferli í samræmi við lög og reglur
  • Gerð samninga og stuðningur við rekstur þeirra
  • Gerð stöðuskýrslna um framvindu, tímamörk og áhættu
  • Halda utan um útboðskerfi
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Grunnháskólamenntun (BA/BS) sem nýtist í starfi s.s. á sviði viðskiptafræði, hagfræði eða verkfræði
  • Þekking og reynsla á útboðum, samningagerð og stærri verðfyrirspurnum
  • Þekking á opinberum innkaupalögum er kostur
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Góð hæfni í microsoft umhverfinu, ss. Excel, Word og PowerBI
  • Góð íslensku og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót 

Ágúst Þór Ragnarsson veitir nánar upplýsingar um starfið, agustr@hafnarfjordur.is og í síma 6632128

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og BHM.

Umsóknarfrestur er til og með 10 febrúar 2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf