Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðar hefur eftirlit með öllum greftri og framkvæmdum í landi bæjarins.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Umsóknarfrestur frá: 28.01.2026
Umsóknarfrestur til: 11.02.2026
Tengiliður: Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir
Deila starfi
Víðistaðaskóli auglýsir eftir kennara í Veröld sem er nýtt skólaúrræði vegna barna sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd. Veröld byggir á góðu starfi sem þróað hefur verið undanfarin ár sem kennslu- og stuðningsúrræði fyrir börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Við leitum að reynslumiklu, skipulögðu og áhugasömu fagfólki sem er tilbúið að leggja í þá vegferð að byggja upp og skapa faglegt og gott skólaumhverfi fyrir nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Nemendur Víðistaðaskóla eru ríflega 500 í 1.-10.bekk. Starfsmenn skólans eru liðlega 100 og ríkir góður starfsandi og samheldni innan hópsins. Við störfum eftir leiðarljósunum ábyrgð – virðing – vinátta. Við leggjum áherslu á líðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti, nemendalýðræði og að hver og einn fái tækifæri til að vera eins og hann er.
Um er að ræða 80-100% stöður. Ráðið er í stöðurnar eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar og hæfniskröfur:
Umsóknarfrestur er til og með 11. febrúar 2026.
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir starfandi skólastjóri, gudbjorgn@hafnarfjordur.is og Valgerður Júlíusdóttir aðstoðarskólastjóri, valaj@vidistadaskoli.is.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Umsóknarfrestur frá: 01.09.2025
Umsóknarfrestur til: 28.02.2026
Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf í leikskólum Hafnarfjarðar, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf. Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.
Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is
Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega, en farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.
Umsóknarfrestur frá: 30.01.2026
Umsóknarfrestur til: 15.02.2026
Tengiliður: ingibjorgo@hafnarfjordur.is
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í lærdómsríkt starf við þjónustu á heimili fatlaðs fólks. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, með áherslu á að íbúum líði sem best.
Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Um er að ræða 30% starf þar sem unnið er aðra hverja helgi á dag- og kvöldvöktum með möguleika á auknu starfshlutfalli í sumar.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Æskilegt er að hafa náð 20 ára aldri, en skilyrði er að hafa hreint sakavottorð.
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Ólafsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi á netfangið ingibjorgo@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5765.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2026.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins
Umsóknarfrestur frá: 29.01.2026
Tengiliður: Bjarnveig Dagsdóttir
Lækjarskóli óskar eftir að ráða drífandi og kraftmikinn aðstoðardeildarstjóra í 100% starf í tómstundastarf skólans.
Markmið tómstundamiðstöðvarinnar er að gefa börnum og unglingum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.
Aðstoðardeildarstjóri tekur þátt í að stýra daglegri starfsemi félagsmiðstöðvar og frístundarheimilis og sjá til þess að uppeldisleg og fagleg vinnubrögð séu ráðandi í öllu starfi deildarinnar.
Fríðindi í starfi:
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bjarnveig Dagsdóttir, deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar í gegnum netfangið bjarnveig@laekjarskoli.is eða Björgvin Sigurbjörnsson aðstoðarskólastjóri í gegnum netfangið bjorgvin@laekjarskoli.is
Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og BHM.
Ráðið er í stöðuna frá 16. febrúar 2026.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika
Umsóknarfrestur til: 09.02.2026
Tengiliður: hafsteinnv@hafnarfjordur.is
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða stöðuvörð. Um er að ræða nýtt starf í þjónustumiðstöð á umhverfis- og skipulagssviði og er staðsett að Norðurhellu 2. Um er að ræða 100% stöðu.
Í þjónustumiðstöð Hafnarfjarðar eru 20 stöðugildi og starfa starfsmenn við mjög fjölbreytt viðhaldsverkefni á svæðum bæjarins sem og við stofnanir.
Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Viktorsson, forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, í síma 585-5670 eða í gegnum tölvupóst: hafsteinnv@hafnarfjordur.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar 2026.
Umsóknarfrestur frá: 26.01.2026
Umsóknarfrestur til: 16.02.2026
Tengiliður: Margrét Rebekka Valgarðsdóttir
Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 25-50% starf út skólaárið 2025-2026 í frístundaheimilinu Hraunkoti.
Um er að ræða starf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í frístundaheimilinu eftir hádegi alla virka daga. Eftir að hefðbundnum skóla lýkur geta nemendur í 1. – 4. bekk farið í frístundaheimilið Hraunkot. Þar sem boðið er upp á fjölbreytt tómstundastarf til kl.16:30, alla virka daga, óháð getu, þroska eða fötlun barna. Sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa.
Nánari upplýsingar veita Margrét Rebekka Valgarðsdóttir, deildarstjóri tómstundamiðstöðvar Víðistaðaskóla, í síma 664-5876 eða í gegnum netfangið margretr@vidistadaskoli.isog Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir, skólastjóri Víðistaðaskóla, gudbjorgn@hafnarfjordur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 16.febrúar 2026.
Umsóknarfrestur frá: 23.01.2026
Umsóknarfrestur til: 08.02.2026
Tengiliður: tinnas@hafnarfjordur.is
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsjónarmanni Vinnuskólans í fullt starf sem einnig mun stýra verkefnum tengdum virkni og valdeflingu ungs fólks. Í Vinnuskólanum í Hafnarfirði starfa yfir 1.000 ungmenni á hverju sumri. Starfsmaðurinn hefur yfirumsjón með allri starfsemi Vinnuskólans, og vinnur við önnur verkefni tengdum ungmennavirkni og sértæku frístundastarfi. Um er að ræða skrifstofustarf en viðkomandi sinnir einnig hópastarfi og eftirfylgni með ýmsum verkefnum utanhúss á starfstíma vinnuskólans.
Starfið hentar vel þeim einstaklingum sem hafa hæfni og ánægju af að vinna með ungu fólki, hafa mikla skipulagshæfileika og vilja fjölbreytt og lifandi starf. Starfið heyrir undir skrifstofu æskulýðsmála á Mennta- og lýðheilsusviði, en þar er unnið metnaðarfullt starf og rík áhersla á inngildandi starfshætti, farsæld og valdeflingu ungs fólks. Vinnuskólinn er mikilvægur vettvangur þar sem unnið er að því að tryggja jöfn tækifæri, öryggi og virkni ungmenna með fjölbreyttan bakgrunn. Allt starf með ungmennum byggir á farsældarlögunum, snemmtækri íhlutun og þverfaglegu samstarfi með það að markmiði að efla velferð, ábyrgð og þátttöku ungs fólks.
Gerð er krafa um að viðkomandi sé með hreint sakavottorð við ráðningu.
Nánari upplýsingar veitir Tinna Rós Steinsdóttir, rekstrarstjóri íþrótta- og tómstundamála, tinnas@hafnarfjordur.is, s. 664-5750
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamning Sambands íslenskra sveitarfélaga og BHM.
Umsóknarfrestur er til og með 8. febrúar 2026.
Umsóknarfrestur frá: 22.01.2026
Umsóknarfrestur til: 10.02.2026
Tengiliður: agustr@hafnarfjordur.is
Hjá Hafnarfjarðarbæ er starf innkaupasérfræðings lykilþáttur í því að tryggja vandaða þjónustu og ábyrga nýtingu fjármuna. Við erum að efla innkaupa- og samningsvinnu sveitarfélagsins með það að markmiði að ferlar séu skýrir, sanngjarnir og framkvæmanlegir og að samningar styðji við skilvirka framkvæmd í daglegum rekstri.
Starfið hentar þeim sem vill hafa áhrif í umhverfi þar sem verkefnin eru raunveruleg og snertiflöturinn breiður. Innkaupasérfræðingur vinnur í nánu samstarfi við rekstrareiningar og styður við ferlið frá þörf til samnings og eftirfylgni. Um er að ræða 100% stöðu.
Starfið veitir áþreifanleg tækifæri til að skila virði og styrkja þjónustu við bæjarbúa.
Ágúst Þór Ragnarsson veitir nánar upplýsingar um starfið, agustr@hafnarfjordur.is og í síma 6632128
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og BHM.
Umsóknarfrestur er til og með 10 febrúar 2026.
Umsóknarfrestur frá: 20.01.2026
Umsóknarfrestur til: 03.02.2026
Tengiliður: gudbjorgn@hraunvallaskoli.is
Hraunvallaskóli auglýsir eftir umsjónarkennara í Hraunborg – deild fyrir börn með einhverfu – út skólaárið 2025-2026.
Starfshlutfall er 100% og gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf sem fyrst.
Við erum að byggja upp nýja einhverfudeild sem leggur áherslu á einstaklingsmiðaða þjónustu, virðingu og jákvætt umhverfi fyrir börn með einhverfu og fjölskyldur þeirra. Markmið okkar er að skapa öflugt teymi starfsfólks sem vinnur saman að því að styðja hvert barn til þátttöku, þroska og vellíðunar. Deildin vinnur út frá styrkleikum barnanna og leggur áherslu á fjölbreyttar leiðir til að efla félagsfærni, nám og sjálfstæði. Við leitum að starfsfólki sem deilir okkar sýn og hefur brennandi áhuga á að taka þátt í að móta nýja starfsemi þar sem velferð og mannréttindi barnanna eru í forgrunni.
Umsækjandi þarf að hafa jákvæða afstöðu til nemenda með fjölþættan vanda og tiltrú á getu hvers og eins til breytinga og þróunar þar sem leitast er við að byggja á styrk hvers og eins.
Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is og Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastóri, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is og Anna Rut Pálmadóttir, deildarstjóri stoðþjónustu, annar@hraunvallaskoli.is eða í síma 590-2800.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 3. febrúar 2026.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Tengiliður: Stefán Arnarson
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan og öflugan starfsmann í starf á heimili fatlaðs fólks.
Fjölbreytt og spennandi starf þar sem unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.
Um er að ræða 70% starf þar sem unnið er í vaktavinnu (morgun-, dag-, kvöld- og næturvaktir) auk þess sem unnið er aðra hverja helgi .
Menntun- og hæfniskröfur:
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri, en skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Stefán Arnarson, forstöðumaður í síma: 555-6554, netfang: stefana@hafnarfjordur.is
Launakjör samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 3. febrúar 2026
Vakinn er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Umsóknarfrestur frá: 19.01.2026
Umsóknarfrestur til: 04.02.2026
Tengiliður: Inga Líndal Finnbogadóttir, Jónína Rósa Ragnarsdóttir
Leikskólinn Álfasteinn óskar eftir að ráða kennara í fullt starf frá 1. mars 2026
Leikskólinn Álfasteinn er fjögurra deilda leikskóli með 62 börn, staðsettur á Holtinu þar sem stutt er í ósnortna náttúruna. Stefna og áherslur leikskólans eru í anda John Dewy´s ásamt því að starfa markvisst með einingakubba Caroline Pratt. Lögð er áhersla á fjölbreytt starfsumhverfi, samvinnu og metnaðarfullt fagstarf. Unnið er samkvæmt SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt og skapa jákvæð og uppbyggileg samskipti. Okkar markmið er að vera framúrskarandi leikskóli!
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Inga Líndal, leikskólastjóri, ingalindal@hafnarfjordur.is og Jónína Rósa Ragnarsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, joninarosa@hafnarfjordur.is
Ferilskrá og leyfisbréf kennara fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.
Umsóknarfrestur til 4. febrúar 2026
Umsóknarfrestur frá: 12.01.2026
Umsóknarfrestur til: 31.05.2026
Tengiliður: ernaar@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn um starf í tímavinnu sem starfsmaður í einstaklingsstuðningi hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma eftir að hefðbundnum vinnutíma lýkur. Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára.
Meginmarkmið með einstaklingsstuðningi er að að veita persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun í og efla viðkomandi til sjálfsbjargar og sjálfræðis.
Hæfniskröfur:
1. Samskipta‐ og samstarfshæfni
2. Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
3. Þjónustulund og áreiðanleiki
4. Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
5. Hæfni til einstaklingsmiðaðra úrlausna
6. Geta til að vinna undir álagi og aðlögunarhæfni
7. Góð almenn tölvukunnátta
8. Góð íslensku‐ og enskukunnátta
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Hér er um að ræða umsóknargrunn sem er unnið úr ef tækifæri opnast og því er umsóknum ekki svarað sérstaklega nema til ráðningar komi.
Upplýsingar veitir Erna Aradóttir ernaar@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5500.
Umsóknir eru gildar í 6 mánuði og geymdar samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn Íslands.
Umsóknarfrestur til: 02.02.2026
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða verkstjóra í þjónustumiðstöð. Þjónustumiðstöð heyrir undir umhverfis- og skipulagssvið og er staðsett að Norðurhellu 2. Um er að ræða 100% stöðugildi.
Hafsteinn Viktorsson, forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, í síma 585-5670 eða í gegnum tölvupóst: hafsteinnv@hafnarfjordur.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 02.02.2026.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf sem tengjast málefnum fatlaðra, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf hjá Hafnarfjarðarbæ. Hér er um að ræða önnur afleysingarstörf en í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskóla og á sviði málefna fatlaðra. Þau störf eru auglýst sér á ráðningarsíðu.
Við leitum reglulega að starfsfólki í fjölbreytt afleysingastörf. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf innan grunnskóla eða tónlistarskóla, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni.
Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Tengiliður: fanney@hafnarfjordur.is
Við óskum eftir framsæknum deildarstjóra ráðgjafar- og greiningarþjónustu.
Skrifstofa Mennta- og lýðheilsusviðs vinnur markvisst að því að skapa heildstæða þjónustu sem styður börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra. Áhersla er lögð á samþætta þjónustu og þverfaglega nálgun, þar sem sérfræðingar vinna saman að farsæld barna. Faglegt umhverfi þar sem samstarf, traust og lausnamiðuð nálgun eru í forgrunni. Faglegan stuðning og þróun starfsmanna, m.a. með handleiðslu, fræðslu og endurmenntun. Gott vinnuumhverfi, þar sem metnaður, jákvæð samskipti og gagnsæi eru grunnstoðir. Öflugt tengslanet við skóla, teymi, foreldra og helstu samstarfsaðila innan og utan sveitarfélagsins.
Þjónusta M&L nær yfir alla þjónsutu við börn í Hafnarfirði og skipar lykilhlutverk í að tryggja að börn og ungmenni fái snemmtækan stuðning, viðeigandi úrræði og faglega eftirfylgd. Deildastjóri vinnur að því að efla og þróa þjónustu í takt við þarfir samfélagsins og stefnu Hafnarfjarðar í menntamálum og um farsæld barna.
Nánari upplýsingar veitir Fanney Dóróthe Halldórsdóttir sviðsstjóri Mennta- og lýðheilsusviðs fanney@hafnarfjordur.is
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Sálfræðingafélag Íslands.
Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar 2026.