Kennari í náttúrufræði og umsjón á unglingastigi – Hraunvallaskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 04.06.2024

Umsóknarfrestur til: 02.07.2024

Tengiliður: Lars Jóhann Imsland Hilmarsson

Hraunvallaskóli auglýsir eftir kennara til að sinna kennslu í náttúrufræði og umsjón á unglingastigi skólaárið 2024-2025.

Leitað er eftir kennara sem hefur brennandi áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi á unglingastigi þar sem lögð er áhersla á samþættingu námsgreina, sjálfstæði nemenda og samvinnu kennara. Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu og umsjón á unglingastigi í samráði samkennara, skólastjórnendur og foreldra
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk skólans
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Vinnur eftir SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Skýr skuldbinding gagnvart stefnu og áherslum skólans
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af kennslu æskileg
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta

Starfshlutfall er 100% og gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf 1. ágúst 2024.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars J. Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is, Ásta Björk Björnsdóttir aðstoðarskólastjóri astabjork@hraunvallaskoli.is og Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir aðstoðarskólastjóri gudbjorgn@hraunvallaskoli.is eða í síma 590 2800

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 2. júlí 2024

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Önnur störf