Kennari – Leikskólinn Álfasteinn

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 24.06.2024

Umsóknarfrestur til: 08.07.2024

Tengiliður: Inga Líndal Finnbogadóttir, Jónína Rósa Ragnarsdóttir

Leikskólinn Álfasteinn óskar eftir að ráða kennara í fullt starf fyrir skólaárið 2024-2025.

Leikskólinn Álfasteinn er fimm deilda leikskóli með 74 börn, staðsettur á Holtinu þar sem stutt er í ósnortna náttúruna. Stefna og áherslur leikskólans eru í anda John Dewy´s ásamt því að starfa markvisst með einingakubba Caroline Pratt. Lögð er áhersla á fjölbreytt starfsumhverfi, samstöðu og metnaðarfullt fagstarf. Unnið er samkvæmt SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt og skapa jákvæð og uppbyggileg samskipti. Okkar markmið er að vera framúrskarandi leikskóli!

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Mjög góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veita Inga Líndal, leikskólastjóri,  ingalindal@hafnarfjordur.is og Jónína Rósa Ragnarsdóttir, joninarosa@hafnarfjordur.is

Ferilskrá og leyfisbréf kennara fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.

Umsóknarfrestur til 8. júlí 2024

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf