List- og verkgreinakennarar – Víðistaðaskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 27.03.2025

Umsóknarfrestur til: 10.04.2025

Tengiliður: Dagný Kristinsdóttir

Við í Víðistaðaskóla leitum eftir skapandi, hugmyndaríkum og drífandi list- og verkgreinakennurum í eftirtöldum greinum:

  •         Hönnun- og smíði
  •         Tónmennt
  •         Heimilisfræði

Í boði eru þrjár stöður, starfshlutfall 80-100%.

Kennararnir bætast í góðan hóp annarra list og verkgreinakennara sem starfa við skólann. Skólinn er vel tækjum búinn og hefur yfir góðri aðstöðu að ráða.

Í Víðistaðaskóla eru rúmlega 500 nemendur og um 100 starfsmenn. Við leggjum áherslu á fjölbreytileikann, líðan nemenda og fjölbreytta kennsluhætti. Gildi skólans eru ábyrgð- virðing og vinátta. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Við erum heilsueflandi grunnskóli sem hugsar um umhverfi sitt í anda Græn fánans. Við erum metnaðarfull og áhugasöm í okkar störfum. Í skólanum er góður starfsandi og samheldni. 

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Annast kennslu í hönnun og smíði á mið,- og unglingastigi
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans 
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur: 

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta

Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Kristinsdóttir, skólastjóri, í síma 6645890, dagnyk@vidistadaskoli.is eða Valgerður Júlíusdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645891, valaj@vidistadaskoli.is

Önnur störf