Náttúrufræði- og stærðfræðikennari á unglingastigi – Skarðshlíðarskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 20.03.2025

Umsóknarfrestur til: 03.04.2025

Tengiliður: Ingibjörg Magnúsdóttir

Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum náttúrufræði- og stærðfræðikennara með umsjón í unglingadeild til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi. 

Ráðið er í starfið frá og með 1. ágúst 2025.

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja. Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.

Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Í vetur eru um 490 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast náttúrufræði- og stærðfræðikennslu og umsjón í unglingadeild
  • Taka þátt í uppbyggingu og mótun á skólastarfi
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Haldgóð þekking á kennslufræði náttúrufræði og stærðfræði
  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum, námaðlögun og samþættingu
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta 

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða í tölvupósti ingibjorg@skardshlidarskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl 2025.

Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Önnur störf