Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Umsóknarfrestur frá: 01.09.2023
Umsóknarfrestur til: 31.08.2024
Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is
Deila starfi
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf hjá Hafnarfjarðarbæ. Hér er um að ræða önnur afleysingarstörf en í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskóla og á sviði málefna fatlaðra. Þau störf eru auglýst sér á ráðningarsíðu.
Við leitum reglulega að starfsfólki í fjölbreytt afleysingastörf. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.
Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is
Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega, en farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf í leikskólum Hafnarfjarðar, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf. Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Umsóknarfrestur frá: 20.06.2024
Umsóknarfrestur til: 04.07.2024
Tengiliður: Elísabet Karlsdóttir
Leikskólinn Bjarkalundur auglýsir eftir kennara í fullt starf.
Leikskólinn Bjarkalundur er staðsettur á Völlunum og er fjögurra deilda leikskóli sem opnaði haustið 2016. Leikskólinn lítur til starfsaðferða Reggio Emilia. Áherslur leikskólans eru snemmtæk íhlutun í starfi með börnum ásamt læsi og flæði. Unnið er samkvæmt SMT skólafærni, sem gengur m.a. út á það að veita jákvæðri hegðun athygli og styrkja hana. Gildi leikskólans eru samvinna, virðing og umhyggja. Samskipti innan skólans byggjast á þessum gildum og eiga þau að endurspeglast í öllu starfi skólans.
Í leikskólanum Bjarkalundi starfar jákvætt, áhugasamt og skemmtilegt starfsfólk þar sem áhersla er lögð á fagmennsku.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Fríðindi í starfi:
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Upplýsingar um starfið veita Telma Ýr Friðriksdóttir leikskólastjóri og Elísabet Karlsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 555-4941 eða í gegnum netfangið bjarkalundur@hafnarfjordur.is.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara.
Umsóknarfrestur er til 4. júlí 2024.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Umsóknarfrestur frá: 21.06.2024
Umsóknarfrestur til: 05.07.2024
Tengiliður: jonaelin@hanarfjordur.is
Leikskólinn Hörðuvellir óskar eftir að ráða sérkennara í 100% starf.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi sem hefur metnað og áhuga fyrir starfinu.
Starfið er laust frá 6. ágúst eða eftir samkomulagi.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóna Elín Pétursdóttir jonaelin@hafnarfjordur.is síma 5550721 eða 6959866
Umsóknarfrestur er til og með 5. júlí 2024
Greinargóð ferilskrá og eða leyfisbréf fylgi umsókn.
Leikskólinn Hörðuvellir auglýsir eftir leikskólakennurum í 100% starf. Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaða einstaklinga eða einstaklinga með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Leikskólinn er fjögurra deilda með 75 börn. Hörðuvellir eru á fallegum útsýnisstað við lækinn.
Einkunnarorð leikskólans er: Leikur – Reynsla – Þekking.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóna Elín Pétursdóttir leikskólastjóri, jonaelin@hafnarfjordur.is eða í síma 555-0721
Umsóknarfrestur til og með 5. júlí 2024
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Tengiliður: Guðbjörg Hjaltadóttir
Hraunvallaleikskóli óskar eftir að ráða kennara í 50-100% starf.
Hraunvallaleikskóli er sex deilda leikskóli staðsettur á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði John Dewey og einkennist leikskólastarfið af fjölmenningu þar sem m.a. er virðing borin fyrir einstaklingnum, menningu og uppruna hans og allir hafa sama tækifæri til náms. Leikskólinn vinnur að þróunarverkefni um snemmtæka íhlutun. Mjög gott samstarf er við Hraunvallaskóla en leikskólinn er í sama húsnæði og grunnskólinn. Gildi leikskólans eru vinátta, samvinna og ábyrgð sem endurspegla allt starf leikskólans.
Leitað er eftir áhugasömum og ábyrgum einstaklingi sem hefur metnað fyrir starfinu.
Ráðið er í starfið frá ágúst 2024 eða samkomulagi.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg leikskólastjóri gudbjorgh@hraunvallaskoli.is eða í síma 6645844
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur frá: 24.06.2024
Umsóknarfrestur til: 08.07.2024
Tengiliður: Inga Líndal Finnbogadóttir, Jónína Rósa Ragnarsdóttir
Leikskólinn Álfasteinn óskar eftir að ráða kennara í fullt starf fyrir skólaárið 2024-2025.
Leikskólinn Álfasteinn er fimm deilda leikskóli með 74 börn, staðsettur á Holtinu þar sem stutt er í ósnortna náttúruna. Stefna og áherslur leikskólans eru í anda John Dewy´s ásamt því að starfa markvisst með einingakubba Caroline Pratt. Lögð er áhersla á fjölbreytt starfsumhverfi, samstöðu og metnaðarfullt fagstarf. Unnið er samkvæmt SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt og skapa jákvæð og uppbyggileg samskipti. Okkar markmið er að vera framúrskarandi leikskóli!
Nánari upplýsingar um starfið veita Inga Líndal, leikskólastjóri, ingalindal@hafnarfjordur.is og Jónína Rósa Ragnarsdóttir, joninarosa@hafnarfjordur.is
Ferilskrá og leyfisbréf kennara fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.
Umsóknarfrestur til 8. júlí 2024
Umsóknarfrestur til: 07.07.2024
Tengiliður: Hjördís Fenger
Leikskólinn Tjarnarás óskar eftir að ráða kennara í fullt starf.
Leikskólinn Tjarnarás er fjögurra deilda leikskóli í Áslandinu, þar sem stutt er í ósnortna náttúruna. Helstu áherslur í starfi skólans er þátttaka, frumkvæði og sköpun barnanna þar sem frjálsi leikurinn er í fyrirrúmi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hjördís Fenger, leikskólastjóri, hjordisf@hafnarfjordur.is síma 5659710
Umsóknarfrestur er til og með 4. júlí 2024.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Umsóknarfrestur frá: 25.06.2024
Umsóknarfrestur til: 09.07.2024
Tengiliður: Lars J. Imsland
Hraunvallaskóli auglýsir eftir sérkennara til að sinna sérkennslu skólaárið 2024-2025
Skólinn hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Segja má að nemendur hefji skólagöngu sína átján mánaða í Hraunvallaskóla og ljúki henni við sextán ára aldur. Hraunvallaskóli starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Kennsla er miðuð við að mæta ólíkum þörfum einstaklinga sem læra að skipuleggja nám sitt sjálfir og meta árangur sinn. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta – samvinna – ábyrgð.
Sérkennari er hluti af sérkennsluteymi skólans og vinnur í nánu samstarfi við umsjónarkennara að námi barna með sérþarfir.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir aðstoðarskólastjóri gudbjorgn@hraunvallaskoli.is eða í síma 590 2800.
Umsóknarfrestur er til 9. júlí 2024. Um er að ræða 50-100% starf
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur frá: 27.06.2024
Umsóknarfrestur til: 12.07.2024
Tengiliður: valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is
Öldutúnsskóli auglýsir eftir íslenskukennara á unglingastigi.
Í Öldutúnsskóla eru um 630 nemendur í 1. – 10. bekk.
Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu.
Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Skólinn leggur ríka áherslu á umhverfismál og hefur tekið á móti Grænfánanum fimm sinnum.
Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn hafðu samband við okkur.
Nánari upplýsingar veita Valdimar Víðisson, skólastjóri, í síma: 664-5898, valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is og Margrét Sverrisdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 664-5894, margret.sverrisdottir@oldutunsskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 12. júlí 2024.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur til: 11.07.2024
Tengiliður: Bryndís Guðlaugsdóttir
Leikskólinn Hlíðarendi óskar eftir deildarstjóra í afleysingu næsta skólaár í 100% starfshlutfall.
Leikskólinn Hlíðarendi er fjögurra deilda og er staðsettur í útjaðri Setbergshverfis. Helstu áhersluþættir eru hreyfing, lífsleikni og umhverfismennt.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Nánari upplýsingar um starfið veita Bryndís Guðlaugdóttir leikskólastjóri og Fjóla Kristjánsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 555 1440. Fyrirspurnir má einnig senda á netfangið hlidarendi@hafnarfjordur.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitafélaga og KÍ v/Félags leikskólakennara.
Umsóknarfrestur er til og með 11. júlí 2024.
Umsóknarfrestur frá: 28.06.2024
Umsóknarfrestur til: 15.07.2024
Tengiliður: Kristján Hans Óskarsson
Öldutúnsskóli auglýsir eftir drífandi og kraftmiklum aðstoðardeildarstjóra til starfa. Um er að ræða 50-100% starf.
Í tómstundamiðstöðinni er starfsemi frístundaheimilis fyrir 6–9 ára börn og félagsmiðstöð fyrir 10–16 ára börn. Markmið tómstundamiðstöðvarinnar er að gefa börnum og unglingum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.
Aðstoðardeildarstjórastaðan snýr að frístundaheimilinu Selinu. Í frístundaheimilinu Selinu er boðið uppá fjölbreytt tómstundastarf fyrir nemendur á aldrinum 6–9 ára eftir að hefðbundnum skóladegi líkur til klukkan 17:00 alla virka daga, óháð getu, þroska eða fötlun en sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa.
Verkefni aðstoðardeildarstjóra
Aðstoðardeildarstjóri tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá í samstarfi við samstarfsmenn og börnin sem tekur mið af áhugamálum þeirra hverju sinni. Hann ber ábyrgð á öryggi og vellíðan barna og starfsfólks, skapar andrúmsloft sem einkennist af gagnkvæmri virðingu, jákvæðum samskiptum og lýðræðislegum vinnubrögðum. Hann vinnur náið með deildarstjóra tómstundamiðstöðvar og sér um skipulagningu, undirbúning og framkvæmd á fjölbreyttu tómstundastarfi.
Nánari upplýsingar veitir Kristján Hans Óskarsson, deildarstjóri tómstundar, í síma 664-5712 og í gegnum tölvupóst kristjan.oskarsson@oldutunsskoli.is og Valdimar Víðisson, skólastjóri, í síma 664-5898 og í gegnum tölvupóst valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is
Umsóknarfrestur er til 15. júlí 2024
Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Umsóknarfrestur frá: 01.07.2024
Tengiliður: ingibjorgo@hafnarfjordur.is
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett í Steinahlíð. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið helgar, morgun, kvöld og næturvaktir. Starfshlutfall eftir samkomulagi.
Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og vera með hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Ólafsdóttir, Forstöðuþroskaþjálfi í síma: 565-5344, netfang:ingibjorgo@hafnarfjordur.is
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 15.07.2024
Samkvæmt jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið.
Tengiliður: Hrönn Bergþórsdóttir
Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða kennara í nýsköpun, hönnun, list og verkgreinar.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024.
Víðistaðaskóli var stofnaður árið 1970, skólinn er heildstæður skóli með 1. – 10. bekk og eru nemendur um 480. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð – Virðing – Vinátta. Í Víðistaðaskóla fögnum við fjölbreytileikanum og er áhersla lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína. Lögð er áhersla á líðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti og góðan námsárangur. Unnið er að þróun teymiskennslu og notkunar spjalda í skólastarfi. Í skólanum er metnaðarfullt starf sem byggir á skólaþróun og nemendalýðræði. Víðistaðaskóli er heilsueflandi grunnskóli og starfar í anda grænfánans þar sem lögð er áhersla á umhverfismennt og útikennslu. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og samheldni meðal allra sem í skólanum starfa.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hrönn Bergþórsdóttir, skólastjóri, í síma 6645890, hronn@vidistadaskoli.is eða Valgerður Júlíusdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645891, valaj@vidistadaskoli.is
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur frá: 19.06.2024
Umsóknarfrestur til: 03.07.2024
Tengiliður: Ingibjörg Magnúsdóttir
Við auglýsum eftir kennara í upplýsingatækni til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi í 50 til 100% starfi.
Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.
Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.
Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Þegar hverfið verður fullbyggt verða um 450 til 500 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði. .
Menntunar og hæfniskröfur:
Ráðið er í stöðuna frá 1.ágúst 2024.
Nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða í tölvupósti ingibjorg@skardshlidarskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 3.júlí 2024.
Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf innan grunnskóla eða tónlistarskóla, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni.
Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf sem tengjast málefnum fatlaðra, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Tengiliður: ernaar@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn um starf í tímavinnu sem liðsmaður hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma eftir að hefðbundnum vinnutíma lýkur.
Meginmarkmið með liðveislu er að rjúfa félagslega einangrun einstaklinga með fötlun og efla viðkomandi til sjálfsbjargar og sjálfræðis.
Hér er um að ræða umsóknargrunn sem er unnið úr ef tækifæri opnast og því er umsóknum ekki svarað sérstaklega nema til ráðningar komi.
Upplýsingar veitir Erna Aradóttir ernaar@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5500.
Umsóknir eru gildar í 6 mánuði og geymdar samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn Íslands.
Hér getur þú lagt inn umsókn um starf í tímavinnu sem persónulegur ráðgjafi hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma eftir að hefðbundnum vinnutíma lýkur.
Meginmarkmið með persónulegri ráðgjöf er að veita börnum og unglingum stuðning til að takast á við persónuleg og félagsleg vandamál og efla viðkomandi til sjálfsbjargar og sjálfræðis.
Tengiliður: Jóna Elín Pétursdóttir
Leikskólinn Hörðurvellir óskar eftir að ráða deildarstjóra í fullt starf,
Leikskólinn Hörðuvellir er fjögurra deilda leikskóli með um 75 börn á aldrinum ca 18 mán – 6 ára. Hörðuvellir eru á fallegum útsýnisstað í hjarta bæjarins. Umhverfis lóðina eru Lækurinn og hraunið með fallegum lautum sem kjörið er til vettvangsferða og náttúruskoðunar.
Einkunnarorð leikskólans er: LEIKUR-REYNSLA -ÞEKKING, hinn frjálsi leikur er helsta námsleið barnanna í gegnum hann öðlast börnin reynslu og þekkingin eykst með árunum. Einnig er unnið að sameiginlegu átaki innan Hafnarfjarðar sem ber heitið“ Lestur er lífsins leikur.“
Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.
Starfið er laust frá 6. ágúst 2024
Upplýsingar um starfið veitirJóna Elín Pétursdóttir jonaelin@hafnarfjordur.is sími 5550721.
Umsóknarfrestur er til og með 5.júlí 2024
Umsóknarfrestur frá: 12.06.2024
Öldutúnsskóli auglýsir eftir heimilisfræðikennara.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 12. júlí.
Umsóknarfrestur frá: 14.06.2024
Hraunvallaskóli auglýsir eftir deildarstjóra í tómstundarmiðstöð skólans
Tómstundamiðstöð Hraunvallskóla samanstendur af frístundaheimilinu Hraunseli og félagsmiðstöðinni Mosanum. Í frístundaheimilinu Hraunseli er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf fyrir nemendur á aldrinum 6-9 ára eftir að hefðbundnum skóladegi líkur til kl. 17:00 alla virka daga, óháð getu þroska eða fötlun en sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa. Félagsmiðstöðin Mosinn er fyrir börn og unglinga í 5.-10. bekk og er opin að jafnaði þrjú kvöld/eftirmiðdaga í viku. Aðaláherslan er á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir alla í 5.-10. bekk. Markmið starfsins er að gefa að gefa börnum og unglingum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.
Hraunvallaskóli er heildstæður, grunnskóli staðsettur í fallegu umhverfi í hrauninu í Vallarhverfi í Hafnarfirði. Einkunnarorð skólans eru vinátta, samvinna og ábyrgð. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun gaum og skapa jákvæðan skólabrag.
Verkefni deildarstjóra:
Deildarstjóri ber ábyrgð á að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá í samstarfi við börn og unglinga sem tekur mið af áhugamálum þeirra hverju sinni. Hann ber ábyrgð á öryggi og vellíðan barna og starfsfólks, skapar andrúmsloft sem einkennist af gagnkvæmri virðingu, jákvæðum samskiptum og lýðræðislegum vinnubrögðum. Hann vinnur náið með stjórnunarteymi Hraunvallaskóla.
Ferilskrá fylgi umsókn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars J. Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is, Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir aðstoðarskólastjóri gudbjorgn@hraunvallaskoli.is, Ásta Björk Björnsdóttir aðstoðarskólastjóri astabjork@hraunvallaskoli.is og Sara Pálmadóttir sarap@hafnarfjordur.is eða í síma 590 2800.
Umsóknarfrestur er framlengdur til 12. júlí. 2024. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024. Um 100% starf er að ræða.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika
Tengiliður: maria@setbergsskoli.is
Setbergsskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara í miðdeild. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024
Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 430 talsins auk þess sem við skólann er starfrækt sérdeild fyrir börn með einhverfu. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru.
Góður starfsandi og jákvæð samskipti einkenna starfmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi. Við skólann er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á fjölbreytt námsumhverfi, læsi, sköpun, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf. Allir nemendur í 5. – 10. bekk hafa spjaldtölvur til umráða og yngri nemendur hafa einnig aðgang að slíkum tækjum.
Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Nánari upplýsingar um skólann og það öfluga starf sem þar er unnið er að finna á heimasíðu skólans.
Menntunar – og hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 5651011 eða í gegnum netfangið maria@setbergsskoli.is
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.setbergsskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 3. júlí n.k.
Setbergsskóli óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í 50 – 70% starfshlutfall.
Ráðið er í starfið frá 16. ágúst 2024.
Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 440 talsins. Góður starfsandi og jákvæð samskipti einkenna starfmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi. Við skólann er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á fjölbreytt námsumhverfi, læsi, sköpun, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf. Allir nemendur í 5. – 10. bekk hafa spjaldtölvur til umráða og yngri nemendur hafa einnig aðgang að slíkum tækjum. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru.
Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Nánari upplýsingar um skólann og það öfluga starf sem þar er unnið er að finna á heimasíðu skólans, setbergsskoli.is.
Ef ekki fæst einstaklingur í starfið sem uppfyllir námskröfur fyrir stuðningsfulltrúa, kemur til greina að ráða inn einstakling í starfsheitið: Skóla og frístundaliði
Ferilskrá og kynningarbréf fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur er til og með 3. júlí 2024.
Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 6645880 eða í gegnum netfangið maria@setbergsskoli.is.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Setbergsskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 50 – 70% starfshlutfall.
Umsóknarfrestur frá: 21.11.2023
Tengiliður: Berglind Kristjánsdóttir og Katrín Hildur Jónasdóttir
Skarðshlíðarleikskóli auglýsir eftir leikskólakennurum í 100% starf í ágúst.
Skarðshlíðarleikskóli er nýlegur fjögurra deilda leikskóli sem uppfyllir nútímakröfur leikskólastarfs. Hann er staðsettur að Hádegisskarði 1. í einungis 4 mínútna fjarlægð frá Reykjanesbraut um Kaldárselsveg.
Hugmyndafræðilegur grunnur skólans tekur mið af lærdómssamfélagi (e. Professional Learning Community) þar sem allir læra saman og er áhersla lögð á virka þátttöku við að þróa öflugt skólastarf. Við leggjum áherslu á lýðræði, frumkvæði og lífsgleði í daglegum samskiptum og að auka leikni og færni barna í gegnum leikinn. Við viljum skapa góðan starfsanda þar sem allir fá að njóta sín og leggja sitt af mörkum. Stefna skólans tekur mið af Fjölgreindarkenningu Howards Gardners og Uppeldi til ábyrgðar.
Þar sem þetta er nýlegur skóli færð þú gullið tækifæri til að taka þátt í að móta námskrá leikskólans, búa til hefðir og móta starfið. Leikskólinn deilir húsnæði með grunnskóla, tónlistarskóla, íþróttahúsi og bókasafni sem býður upp á mikla og spennandi möguleika á samstarfi sem er í stöðugri þróun.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Kristjánsdóttir í síma 527 7380
Umsóknarfrestur er til 11. júlí 2024.