Óskað er eftir sumarstarfsmanni á Læk athvarf

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 10.03.2026

Umsóknarfrestur til: 24.03.2026

Tengiliður: Brynja Rut Vilhjálmsdóttir




<br />


Leitað er að metnaðarfullum og áhugasömum einstakling í sumarstarf og tilfallandi tímavinnu. Lækur er athvarf fyrir einstaklinga með geðrænar áskoranir. Markmið Lækjar er að draga úr félagslegri einangrun og auka lífsgæði. Í boði er spennandi og lærdómsríkt starf með fjölbreyttum verkefnum. Óskað er eftir sumarafleysingu í 80% dagvinnu fyrir tímabilið 1. júlí -15. ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Virkja gesti á þeirra forsendum/fjölbreytt verkefni
  • Móttaka gesta
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla og áhugi á málaflokknum
  • Hugmyndarík/ur
  • Sýna frumkvæði og jákvæðni í samskiptum og starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, framtakssemi og samstarfsvilji
  • Íslenskukunnátta A2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma

Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri, en skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð

Upplýsingar um starfið veitir Brynja Rut Vilhjálmsdóttir, sími: 664-5746 eða 585-5770, eða í gegnum tölvupóst: brynjarut@hafnarfjordur.is

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar (STH).

Umsóknarfrestur er til og með 24. mars 2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.


Önnur störf