Ráðgjafi í hagnýtri atferlisgreiningu – Fjölskyldu – og skólaþjónusta

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 22.07.2024

Umsóknarfrestur til: 05.08.2024

Tengiliður: eirikurth@hafnarfjordur.is

Fjölskyldu- og skólaþjónusta Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða ráðgjafa í hagnýtri atferlisgreiningu til starfa. Um er að ræða 100% stöðugildi.  Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Hafnarfjarðarbær vinnur eftir lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og hefur undanfarin ár þróað verklag í snemmtækum stuðningi í þjónustu við leik- og grunnskólabörn sveitafélagsins sem kallast Brúin og er í takt við þau lög. Áhersla er lögð á samþætta þjónustu við börn og fjölskyldur á fyrri stigum með aukinni samvinnu aðila í nærumhverfinu.  

Fjölskyldu- og skólaþjónusta er deild sem starfar þvert á fjölskyldu- og barnamálasvið og mennta- og lýðheilsusvið Hafnarfjarðar.  Á fjölskyldu- og skólaþjónustu starfar hópur margs konar fagfólks af báðum sviðum sem veitir þjónustu til leik- og grunnskóla bæjarins auk þess að annast málstjórn í málum til fjölskyldna bæjarins.      

Á fjölskyldu- og skólaþjónustu er lögð áhersla á samstarf, teymisvinnu, góðan starfsanda  og tækifæri fyrir starfsfólk til að efla sig í starfi.

Hafnarfjarðarbær leggur áherslu á metnaðarfullt og faglegt starf í þágu bæjarbúa.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Kemur að atferlisgreiningu nemenda og atferlisráðgjöf til foreldra, barna og skóla.
  • Samvinna við málstjóra og aðra ráðgjafa í einstaklingsmálum. 
  • Veita börnum og foreldrum þeirra fræðslu og ráðgjöf.
  • Ráðgjöf og fræðsla fyrir starfsfólk í leik- og grunnskólum bæjarins.
  • Þverfagleg teymisvinna í gegnum brúarteymi leik- og grunnskóla með öðrum sérfræðingum mennta- og lýðheilsusviðs og fjölskyldu- og barnamálasviðs. 
  • Þátttaka í fræðslustarfi innan og utan stofnunar.
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni. 

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Framhaldsmenntun í sálfræði og réttindi til að starfa sem sálfræðingur, M.A/M.S próf í sálfræði eða í hagnýtri atferlisgreiningu.
  • Þekking á PMTO foreldrafærni.
  • Áhugi á skólastarfi og reynsla af snemmtækri íhlutun í leik- og grunnskóla.
  • Reynsla af snemmtækri atferlisíhlutun barna.
  • Jákvætt viðmót og góð samstarfs- og samskiptahæfni.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.
  • Leikni í þverfaglegu samstarfi.
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og góðir skipulagshæfileikar.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM. 

Nánari upplýsingar veitir deildarstjóri fjölskyldu- og skólaþjónustu Brúarinnar, Eiríkur Þorvarðarson. Senda má fyrirspurnir á netfangið eirikurth@hafnarfjordur.is.   

Greinargóð ferilskrá, prófskírteini og kynningarbréf fylgi umsókn.

Umsóknarfrestur er til og með 5. ágúst 2024

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Samkvæmt jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru öll kyn hvött til að sækja um starfið.

Önnur störf