Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Umsóknarfrestur frá: 17.07.2024
Umsóknarfrestur til: 31.07.2024
Tengiliður: Lars J. Imsland
Deila starfi
Hraunvallaskóli auglýsir eftir sérkennara til að sinna sérkennslu skólaárið 2024-2025
Skólinn hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Segja má að nemendur hefji skólagöngu sína átján mánaða í Hraunvallaskóla og ljúki henni við sextán ára aldur. Hraunvallaskóli starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Kennsla er miðuð við að mæta ólíkum þörfum einstaklinga sem læra að skipuleggja nám sitt sjálfir og meta árangur sinn. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta – samvinna – ábyrgð.
Sérkennari er hluti af sérkennsluteymi skólans og vinnur í nánu samstarfi við umsjónarkennara að námi barna með sérþarfir.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir skólastjóri gudbjorgn@hraunvallaskoli.is og Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir aðstoðarskólastjóri gudbjorgi@hraunvallaskoli.is eða í síma 590 2800.
Umsóknarfrestur er til 31. júlí 2024. Um er að ræða 50-100% starf
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Umsóknarfrestur frá: 01.09.2023
Umsóknarfrestur til: 31.08.2024
Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf í leikskólum Hafnarfjarðar, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf. Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.
Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is
Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega, en farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.
Umsóknarfrestur frá: 18.07.2024
Umsóknarfrestur til: 01.08.2024
Tengiliður: Þórdís Rúríksdóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í ört stækkandi starf Geitungana sem er vinnu og virkni úrræði fyrir fatlað fólk. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Um er að ræða spennandi,lærdómsríkt og framsækið 100% starf með fjöbreyttum verkefnum.
Umsóknarfrestur er til 1.ágúst.2024
Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Þórdís Rúriksdóttir, forstöðuþroskaþjálfi. thordisru@hafnarfjordur.is eða í síma: 565-5100
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins
Umsóknarfrestur til: 08.08.2024
Tengiliður: Ingibjörg Magnúsdóttir
Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum tónmenntarkennara til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024.
Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.
Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.
Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Nú eru um 460 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði. Í haust hefst öflugt samstarfsverkefni milli leik, grunn og tónlistarskóla.
Hæfniskröfur:
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871/ ingibjorg@skardshlidarskoli.is
Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur er til og með 8. ágúst 2024.
Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Umsóknarfrestur til: 07.08.2024
Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum kennurum á miðstigi til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024.
Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja. Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Í vetur eru um 440 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða í tölvupósti ingibjorg@skardshlidarskoli.is
Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur og er til og með 7. ágúst 2024.
Umsóknarfrestur frá: 19.07.2024
Tengiliður: Kristinn Guðlaugsson
Hvaleyrarskóli óskar eftir að ráða drífandi og kraftmikinn skóla- og frístundaliða í 70-100% starf
Í Hvaleyrarskóla eru tæplega 400 nemendur í 1. til 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, kurteisi og samvinna og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Í skólanum er unnið samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa þannig jákvæðan skólabrag. Hvaleyrarskóli er jafnframt heilsueflandi grunnskóli og vinnur eftir Olweusaráætluninni gegn einelti. Hvaleyrarskóli er skóli margbreytileikans þar sem lögð er rækt við fjölmenningu.
Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT, Olweus, markvissar málörvunar og Byrjendalæsis.
Nánari upplýsingar um skólann má einnig finna á heimasíðunni http://www.hvaleyrarskoli.is.
Ef þetta eitthvað sem vekur áhuga þinn hafðu samband við okkur. Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri í síma 664-5833/ kristinn@hvaleyrarskoli.is Vala Stefánsdóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 868 6859/ vala@hvaleyrarskoli.is eða í síma skólans 565-0200.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 8. ágúst 2024.
Hvaleyrarskóli óskar eftir að ráða kennara í sérkennslu og ÍSAT-kennslu, skólaárið 2024-2025 vegna námsleyfis.
Í Hvaleyrarskóla eru um 400 nemendur í 1. til 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, kurteisi og samvinna og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Í skólanum er unnið samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa þannig jákvæðan skólabrag. Hvaleyrarskóli er jafnframt heilsueflandi grunnskóli og vinnur eftir Olweusaráætluninni gegn einelti. Hvaleyrarskóli er skóli margbreytileikans þar sem lögð er rækt við fjölmenningu.
Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT, Olweus, markvissar málörvunar, byrjendalæsis og Orð af orði ásamt áherslu á skák- og sviðslistiarkennslu.
Nánari upplýsingar um starfið veita Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri, kristinn@hvaleyrarskoli.is í síma 664 5833 eða Vala Stefánsdóttir, aðstoðarskólastjóri, vala@hvaleyrarskoli.is í síma 868 6859. Sími skólans er 565 0200.
Umsóknarfrestur er til 8. ágúst næst komandi. Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Ráðið er í stöðuna sem fyrst.
Umsóknarfrestur frá: 22.07.2024
Umsóknarfrestur til: 05.08.2024
Tengiliður: eirikurth@hafnarfjordur.is
Fjölskyldu- og skólaþjónusta Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða ráðgjafa í hagnýtri atferlisgreiningu til starfa. Um er að ræða 100% stöðugildi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Hafnarfjarðarbær vinnur eftir lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og hefur undanfarin ár þróað verklag í snemmtækum stuðningi í þjónustu við leik- og grunnskólabörn sveitafélagsins sem kallast Brúin og er í takt við þau lög. Áhersla er lögð á samþætta þjónustu við börn og fjölskyldur á fyrri stigum með aukinni samvinnu aðila í nærumhverfinu.
Fjölskyldu- og skólaþjónusta er deild sem starfar þvert á fjölskyldu- og barnamálasvið og mennta- og lýðheilsusvið Hafnarfjarðar. Á fjölskyldu- og skólaþjónustu starfar hópur margs konar fagfólks af báðum sviðum sem veitir þjónustu til leik- og grunnskóla bæjarins auk þess að annast málstjórn í málum til fjölskyldna bæjarins.
Á fjölskyldu- og skólaþjónustu er lögð áhersla á samstarf, teymisvinnu, góðan starfsanda og tækifæri fyrir starfsfólk til að efla sig í starfi.
Hafnarfjarðarbær leggur áherslu á metnaðarfullt og faglegt starf í þágu bæjarbúa.
Menntunar og hæfniskröfur:
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Nánari upplýsingar veitir deildarstjóri fjölskyldu- og skólaþjónustu Brúarinnar, Eiríkur Þorvarðarson. Senda má fyrirspurnir á netfangið eirikurth@hafnarfjordur.is.
Greinargóð ferilskrá, prófskírteini og kynningarbréf fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur er til og með 5. ágúst 2024
Samkvæmt jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru öll kyn hvött til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur til: 06.08.2024
Tengiliður: gudbjorgn@hraunvallaskoli.is
Hraunvallaskóli auglýsir eftir kennara til að sinna umsjónarkennslu á yngsta stigi skólaárið 2024-2025.
Starfshlutfall er 80-100% og gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf 1. ágúst 2024.
Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum.
Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir, skólastjóri, gudbjorgn@hraunvallaskoli.is og Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir, aðstoðarskólastjóri, gudbjorgi@hraunvallaskoli.is eða í síma 590 2800.
Umsóknarfrestur er framlengdur til 6. ágúst 2024.
Umsóknarfrestur frá: 16.07.2024
Tengiliður: robertg@setbergsskoli.is
Setbergsskóli auglýsir eftir skóla- og frístundaliðum með fjölbreytta hæfni og áhuga á að vinna með börnum á frístundaheimilinu Krakkabergi skólaárið 2024 – 2025. Starfshlutfall er 30-50%. Vinnutími er frá kl 13:00-16:30, alla virka daga.
Frístundaheimilið er fyrir nemendur í 1. – 4. bekk Setbergsskóla. Þar gefst færi á að lengja viðveru barna eftir að skólastarfi lýkur.
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veita Róbert Gíslason, deildarstjóri tómstundastarfs Setbergsskóla, robertg@setbergsskoli.is og María Pálmadóttir, skólastjóri, maria@setbergsskoli.is.
Umsóknarfrestur er til og með 6. ágúst.
Umsóknarfrestur til: 09.08.2024
Tengiliður: Aldís Arnardóttir
Hafnarborg er menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar. Sýningardagskrá safnsins er fjölbreytt og þar fer einnig fram öflugt fræðslustarf með leiðsögnum, viðburðum og fyrirlestrum sem tengjast sýningunum. Tónleikar eru fastur liður í starfseminni.
Um 60% starf er að ræða.
Vinnutími er að jafnaði virka daga frá kl. 11:30-17:30, með möguleika á aukavinnu.
Helstu verkefni:
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Aldís Arnardóttir í síma 585-5791 aldisa@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 9. ágúst nk.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf innan grunnskóla eða tónlistarskóla, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni.
Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf hjá Hafnarfjarðarbæ. Hér er um að ræða önnur afleysingarstörf en í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskóla og á sviði málefna fatlaðra. Þau störf eru auglýst sér á ráðningarsíðu.
Við leitum reglulega að starfsfólki í fjölbreytt afleysingastörf. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf sem tengjast málefnum fatlaðra, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Tengiliður: ernaar@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn um starf í tímavinnu sem liðsmaður hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma eftir að hefðbundnum vinnutíma lýkur.
Meginmarkmið með liðveislu er að rjúfa félagslega einangrun einstaklinga með fötlun og efla viðkomandi til sjálfsbjargar og sjálfræðis.
Hér er um að ræða umsóknargrunn sem er unnið úr ef tækifæri opnast og því er umsóknum ekki svarað sérstaklega nema til ráðningar komi.
Upplýsingar veitir Erna Aradóttir ernaar@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5500.
Umsóknir eru gildar í 6 mánuði og geymdar samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn Íslands.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Hér getur þú lagt inn umsókn um starf í tímavinnu sem persónulegur ráðgjafi hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma eftir að hefðbundnum vinnutíma lýkur.
Meginmarkmið með persónulegri ráðgjöf er að veita börnum og unglingum stuðning til að takast á við persónuleg og félagsleg vandamál og efla viðkomandi til sjálfsbjargar og sjálfræðis.
Umsóknarfrestur frá: 12.06.2024
Umsóknarfrestur til: 28.07.2024
Tengiliður: valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is
Öldutúnsskóli auglýsir eftir heimilisfræðikennara.
Í Öldutúnsskóla eru um 630 nemendur í 1. – 10. bekk.
Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu.
Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Skólinn leggur ríka áherslu á umhverfismál og hefur tekið á móti Grænfánanum fimm sinnum.
Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn hafðu samband við okkur.
Nánari upplýsingar veita Valdimar Víðisson, skólastjóri, í síma: 664-5898, valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is og Margrét Sverrisdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 664-5894, margret.sverrisdottir@oldutunsskoli.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 28. júlí.
Umsóknarfrestur frá: 12.07.2024
Tengiliður: Geir Bjarnason
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn til starfa í Klettinn. Kletturinn er frístundaklúbbur fyrir börn og ungmenni með fatlanir í 5-10 bekk. Þar upplifa þau hinar ýmsu tómstundir og félagskap með öðrum ungmennum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Um er að ræða spennandi hlutastarf á virkum dögum milli 13 og 17 sem hentar vel skólafólki.
Menntun- og hæfniskröfur:
Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 18 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Geir Bjarnason, geir@hafnarfjordur.is, 664-5754
Umsóknarfrestur er til og með 7. ágúst 2024.
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Vakinn er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða metnaðarfulla starfsmenn í Vinaskjól. Vinaskjól býður uppá frístundastarf fyrir ungmenni með fatlanir, á aldrinum 16-20 ára. Þar upplifa þau hinar ýmsu tómstundir og félagskap með öðrum ungmennum. Opnunartíminn er frá 13-17 alla virka daga þannig að um er að ræða hlutastarf í dagvinnu, í fjölbreyttum og spennandi verkefnum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri, en skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Frekari upplýsingar um starfið veitir Geir Bjarnason geir@hafnarfjordur.is, 6645754
Umsóknarfrestur er til og með 07. ágúst 2024
Vakinn er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Umsóknarfrestur frá: 24.07.2024
Umsóknarfrestur til: 12.08.2024
Tengiliður: Anna Bára Gunnarsdóttir
Viltu verða partur af sterkri og snjallri liðsheild? Þjónustufulltrúi óskast
Þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar auglýsir laust til umsóknar starf þjónustufulltrúa í 100% starf. Í boði er áhugavert og lifandi starf í skapandi starfsumhverfi með fjölbreyttum verkefnum sem kalla á hæfni í samskiptum, frumkvæði og ríka þjónustulund.
Hlýleg, áreiðanleg og snjöll þjónusta
Hafnarfjarðarbær er framsækið sveitarfélag og vinnustaður sem er sífellt að vaxa og dafna og leitum við að jákvæðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem vill taka þátt í að efla og þróa vinnustaðinn og þjónustu sveitarfélagsins. Þjónustuverið er staðsett í Ráðhúsi Hafnarfjarðar, Strandgötu 6 og þar starfa sex starfsmenn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Bára Gunnarsdóttir deildarstjóri þjónustuvers í síma 585-5500 og á netfang: annabg@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur til og með 12. ágúst
Mikilvægt er að umsókn fylgi ferilskrá og kynningarbréf. Unnið verður úr umsóknum eftir að umsóknarfresti lýkur. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.