Sérkennari – Leikskólinn Tjarnarás

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 20.12.2024

Umsóknarfrestur til: 03.01.2025

Tengiliður: eyglosif@hafnarfjordur.is

Tjarnarási vantar sérkennara til starfa.

Leikskólinn Tjarnarás óskar eftir að ráða sérkennara í 100% starf, frá og með 1. febrúar. Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af sérkennslu með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.

Tjarnarás er fjögurra deilda leikskóli í Áslandinu í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Helstu áherslur í starfi leikskólans er þátttaka, frumkvæði og sköpun barnanna þar sem frjálsi leikurinn er í fyrirrúmi.

Einkunnarorð Tjarnaráss er Virðing og Ábyrgð.

Leitað er eftir áhugasömum og ábyrgum einstaklingi sem hefur metnað fyrir starfinu.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:                                                                        

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna, þ.m.t að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi í samstarfi við deildarstjóra
  • Veita leikskólabörnum stuðning í daglegu starfi leikskólans.
  • Skipuleggur og heldur utan um sérkennslu í nánu samstarfi við sérkennslustjóra
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem sérkennari (Leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Góð samskiptahæfni.
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Upplýsingar um starfið veitir Eygló Sif Halldórsdóttir leikskólastjóri eyglosif@hafnarfjordur.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Umsóknarfrestur er til og með 3. janúar 2025

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.