Sérkennslustjóri – Heilsuleikskólinn Hamravellir (tímabundin ráðning)

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 17.03.2026

Umsóknarfrestur til: 07.04.2026

Tengiliður: Hildur Arnar Bjargardóttir

Heilsuleikskólinn Hamravellir óskar eftir að ráða metnaðarfullan og öflugan sérkennslustjóra. Ráðið er í stöðuna tímabundið til áramóta með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Í Heilsuleikskólanum Hamravöllum er hópur faglegra og skemmtilegra starfsmanna sem óskar eftir liðsauka.

Heilsuleikskólinn Hamravellir er staðsettur innarlega á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Hamravellir er heilsuleikskóli þar sem áhersla er lögð á hollt mataræði, útiveru, hreyfingu og sköpun. Einkunnarorð leikskólans eru hreyfing, sköpun og vellíðan og gildi leikskólans eru leikur og umhyggja.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að bera ábyrgð á og stjórna skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslu í samstarfi við aðra stjórnendur leikskólans
  • Að vera faglegur umsjónaraðili sérkennslu í leikskólanum, annast ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans og upplýsingagjöf til foreldra
  • Að hafa umsjón með uppeldis- og námsgögnum leikskólans sem tengjast sérkennslu
  • Ber ábyrgð á að börnum sem njóta sérkennslu í leikskólanum sé boðið upp á þroskavænleg verkefni 
  • Veitir foreldrum/forráðamönnum barna sem njóta sérkennslu stuðning, fræðslu og ráðgjöf. 
  • Sinnir sérkennslu barna og barnahópa með íhlutun
  • Er tengiliður farsældar
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Framhaldsmenntun í sérkennslu æskileg
  • Þekking og reynsla af sérkennslu í leikskólum
  • Einlægur áhugi fyrir velgengni allra barna
  • Færni og lipurð í samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða þroskaþjálfa með starfsréttindi sem slíkur sem hefur reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Hildur Arnar Bjargardóttir, leikskólastjóri, hildurarnar@hafnarfjordur.is eða í síma 664-5832

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara eða Þroskaþjálfafélag Íslands.

 Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf