Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Hraunkot – Víðistaðaskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 06.01.2025

Umsóknarfrestur til: 20.01.2025

Tengiliður: Rakel Björk Björnsdóttir

Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 25-50% starf út skólaárið 2024-2025 í frístundaheimilinu Hraunkoti.

Um er að ræða starf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í frístundaheimilinu eftir hádegi alla virka daga. Eftir að hefðbundnum skóla lýkur geta nemendur í 1. – 4. bekk farið í frístundaheimilið Hraunkot. Þar sem boðið er upp á fjölbreytt tómstundastarf til kl.16:30, alla virka daga, óháð getu, þroska eða fötlun barna. Sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoðar við faglegt starf með nemendum
  • Starfar samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni
  • Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum
  • Tekur þátt í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd á fjölbreyttu tómstundastarfi
  • Stuðlar að velferð ungmenna í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Leitast við að virkja sem flesta óháð getu eða þroska í fjölbreytt verkefni og taka fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla og áhugi af starfi með börnum kostur
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veita Rakel Björk Björnsdóttir, deildarstjóri tómstundamiðstöðvar Víðistaðarskóla, í síma 664-5876 eða í gegnum netfangið rakelb@vidistadaskoli.is
og Dagný Kristinsdóttir, skólastjóri Víðistaðaskóla, dagnyk@vidistadaskoli.issími 6645890. 

Umsóknarfrestur er til og með 20. janúar 2025.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf