Skóla- og frístundaliði – Öldutúnsskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 14.06.2024

Umsóknarfrestur til: 30.06.2024

Tengiliður: Valdimar Víðisson

Öldutúnsskóli auglýsir eftir skóla- og frístundaliða

Við í Öldutúnsskóla auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum skóla- og frístundaliða til starfa. Um er að ræða 100% starf í Öldutúnsskóla og frístundaheimilinu Selinu. 

Ráðið er í stöðuna í ágúst.

Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu

Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Skólinn leggur ríka áherslu á umhverfismál og hefur tekið á móti Grænfánanum fimm sinnum.

Í Öldutúnsskóla eru um 620 nemendur í 1. – 10. bekk.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoðar við faglegt starf með nemendum.
  • Stuðningur inn í bekk og í frístund.
  • Starfar samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni.
  • Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum.
  • Stuðlar að velferð ungmenna í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Leitast við að virkja sem flesta óháð getu eða þroska í fjölbreytt verkefni og taka fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla og áhugi af starfi með börnum og unglingum.
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Stundvísi og samviskusemi.
  • Góð íslenskukunnátta.

Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn hafðu endilega samband við okkur.

Nánari upplýsingar veitir Valdimar Víðisson, skólastjóri, í síma 664-5898, og í gegnum tölvupóst valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is

Umsóknarfrestur er til 30. júní 2024.

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við STH 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Önnur störf