Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Blikaás

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 20.01.2026

Umsóknarfrestur til: 03.02.2026

Tengiliður: Stefán Arnarson

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan og öflugan starfsmann í starf á heimili fatlaðs fólks. 

Fjölbreytt og spennandi starf þar sem unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.

Um er að ræða 70% starf þar sem unnið er í vaktavinnu (morgun-, dag-, kvöld- og næturvaktir) auk þess sem unnið er aðra hverja helgi .

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita fötluðu fólki stuðning við athafnir daglegs lífs.
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja þjónustunotendur til ýmissa tómstunda
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Almenn heimilisstörf
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntun- og hæfniskröfur: 

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Líkamleg geta til að sinna verkefnum á vinnustað

Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri, en skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Stefán Arnarson, forstöðumaður í síma: 555-6554, netfang: stefana@hafnarfjordur.is

Launakjör samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 3. febrúar 2026

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Vakinn er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

 

 

 

Önnur störf