Starfsmaður í heimaþjónustu – Sumarstarf

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 27.03.2025

Umsóknarfrestur til: 13.04.2025

Tengiliður: Elín Ósk Baldursdóttir

Fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða starfsfólk í stuðningsþjónustu í sumarafleysingar. Starfshlutfall er 100% 

Stuðningsþjónustan ber ábyrgð á fjölbreyttri þjónustu við íbúa Hafnarfjarðar. Leitast er við að veita einstaklingsmiðaða þjónustu.

Helstu verkefni:

  • Aðstoð við almenn þrif á heimilum
  • Virkja þjónustuþega
  • aðstoð við klæðnað, að matast eða gefa fyrirfram skömmtuð lyf
  • Félagslegur stuðningur
  • Samstarf við aðra starfsmenn stuðningsþjónustunnar
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi í stuðningsþjónustu æskileg
  • Jákvæðni í starfi, þjónustulund og góð samskiptafærni
  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
  • Bílpróf 

Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl 2025.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Verkalýðsfélagsins Hlífar.

Nánari upplýsingar veitir Elín Ósk Baldursdóttir deildarstjóri elinob@hafnarfjordur.is eða í síma 585 5500.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. 

Önnur störf