Starfsmaður óskast til starfa í Geitunga – úrræði fyrir fatlað fólk

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 18.07.2024

Umsóknarfrestur til: 01.08.2024

Tengiliður: Þórdís Rúríksdóttir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í ört stækkandi starf Geitungana sem er vinnu og virkni úrræði fyrir fatlað fólk. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Um er að ræða spennandi,lærdómsríkt og framsækið 100% starf með fjöbreyttum verkefnum.   

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Stuðla að virkni og félagslegri þátttöku fatlaðs fólk í samfélaginu
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja þjónustunotendur til vinnu og ýmissa tómstunda
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Líkamleg geta til að sinna krefjandi verkefnum á vinnustaðnum

 

Umsóknarfrestur er til 1.ágúst.2024

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Þórdís Rúriksdóttir, forstöðuþroskaþjálfi. thordisru@hafnarfjordur.is eða í síma: 565-5100 

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins

 

Önnur störf