Starfsmaður við félagsstarf eldri borgara – Hraunsel – 50% staða

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 17.03.2025

Umsóknarfrestur til: 30.03.2025

Tengiliður: Elín Ósk Baldursdóttir

Langar þig að vinna á líflegum vinnustað?
Fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðarbæjar óskar eftir starfsmanni í 50% stöðu í Hraunsel, félagsstarf eldri borgara. Vinnutíminn er 12-16 þrjá daga í viku og 13-17 tvo daga í viku. Um afleysingarstöðu til eins árs er að ræða.

Í félagsstarfi eldri borgara í Hafnarfirði er í boði metnaðarfull og fjölbreytta dagskrá fyrir eldri borgara.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Samskipti og samvinna við þá sem sækja félagsstarfið.
  • Samstarf við nefndir og stjórn innan félags eldri borgara í Hafnarfirði.
  • Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
  • Undirbúningur húsnæðis fyrir mismunandi virkni
  • Tekur þátt í undirbúningi, framkvæmd og frágangi vegna veitingasölu
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af félagsstarfi og/eða félagsstarfi eldri borgara kostur
  • Jákvætt viðmót og þjónustulund
  • Góð samskipta- og samtarfshæfni
  • Góð íslenskukunnátta
  • Góð tölvukunnátta

Nánari upplýsingar veita Linda Hildur Leifsdóttir verkefnastjóri félagsstarfs eldri borgara lindah@hafnarfjordur.is eða í síma 5550142 eða Elín Ósk Baldursdóttir deildarstjóri þjónustu og úrræða elinob@hafnarfjordur.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 30.3.2025

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. 

Önnur störf