Starfsmaður – Vinaskjól

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 12.07.2024

Umsóknarfrestur til: 07.08.2024

Tengiliður: Geir Bjarnason

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða metnaðarfulla starfsmenn í Vinaskjól. Vinaskjól býður uppá frístundastarf fyrir ungmenni með fatlanir, á aldrinum 16-20 ára. Þar upplifa þau hinar ýmsu tómstundir og félagskap með öðrum ungmennum. Opnunartíminn er frá 13-17 alla virka daga þannig að um er að ræða hlutastarf í dagvinnu, í fjölbreyttum og spennandi verkefnum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita ungmennum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja eftir áætlunum og verklagsreglum
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Virkja þjónustunotendur til ýmissa tómstunda
  • Stuðla að velferð og félagslegum þroska ungmennanna
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntun- og hæfniskröfur: 

  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað
  • Íslenskukunnátta skilyrði

Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri, en skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar

Frekari upplýsingar um starfið veitir Geir Bjarnason geir@hafnarfjordur.is, 6645754

Umsóknarfrestur er til og með 07. ágúst  2024

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Vakinn er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf