Stöðuvörður – Umhverfis- og skipulagssvið

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 28.01.2026

Umsóknarfrestur til: 09.02.2026

Tengiliður: hafsteinnv@hafnarfjordur.is

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða stöðuvörð. Um er að ræða nýtt starf í þjónustumiðstöð á umhverfis- og skipulagssviði og er staðsett að Norðurhellu 2. Um er að ræða 100% stöðu.

Í þjónustumiðstöð Hafnarfjarðar eru 20 stöðugildi og starfa starfsmenn við mjög fjölbreytt viðhaldsverkefni á svæðum bæjarins sem og við stofnanir. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Stöðuvörður hjá Hafnarfjarðarbæ hefur eftirlit með stöðu ökutækja í samræmi við umferðarlög, lögreglusamþykkt Hafnarfjarðarbæjar og aðrar gildandi reglur
  • Starfið felur jafnframt í sér markvisst eftirlit með númerslausum ökutækjum á bæjarlandi og að koma upplýsingum um slík ökutæki til viðeigandi aðila 
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun  
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af sambærilegum störfum
  • Þekking á umferðarlögum og reglum sveitarfélaga er kostur
  • Góð samskiptahæfni og færni í þjónustu við almenning 
  • Góð íslenskunátta í orði og riti
  • Grunnfærni í notkun tölvu- og snjalltækja
  • Vera orðin 20 ára
  • Almenn ökuréttindi 
  • Hreint sakavottorð

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Viktorsson, forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, í síma 585-5670 eða í gegnum tölvupóst: hafsteinnv@hafnarfjordur.is 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar. 

Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar 2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf